Læknablaðið - 15.05.1998, Blaðsíða 62
422
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Frumvarp til laga
um gagnagrunna á heilbrigðissviði
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997-98.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Lög þessi gilda um gagnagrunna á heilbrigð-
issviði. Lögin taka ekki til lífsýna.
Gerð og starfræksla gagnagrunns á heil-
brigðissviði er einungis heimil aðila sem upp-
fyllir skilyrði laga þessara og hefur fengið
starfsleyfi samkvæmt þeim.
2. gr.
I lögum þessum merkir:
1. Gagnagrunnur á heilbrigðissviði: Safn
sjálfstæðra verka, gagna eða annars efnis er
hefur að geyma heilsufarsupplýsingar og aðrar
upplýsingar þeim tengdar sem komið er fyrir
með skipulegum eða kerfisbundnum hætti og
hægt er að komast í með rafrænum aðferðum
eða á annan hátt. Sjúkraskrár sem færðar eru
lögum samkvæmt, aðrar skrár sem einstakar
heilbrigðis- og rannsóknarstofnanir halda um
þá einstaklinga sem þær veita heilbrigðisþjón-
ustu og skrár sem stjórnvöld á sviði heilbrigð-
is- og tryggingamála halda um notendur heil-
brigðisþjónustu og rekstur heilbrigðiskerfisins
teljast ekki gagnagrunnur á heilbrigðissviði í
skilningi laga þessara.
2. Kerfisbundin skráning upplýsinga: Söfn-
un og skráning ákveðinna og afmarkaðra upp
lýsinga í skipulagsbundna heild.
3. Heilsufarsupplýsingar: Upplýsingar er
varða heilsuhagi einstaklinga, aðrar upplýsing-
ar er varða heilsuhagi og erfðafræðilegar upp-
lýsingar.
4. Persónuupplýsingar: Upplýsingar er varða
einkamálefni, þar með talda heilsuhagi, fjár-
hagsmálefni eða önnur málefni persónugreinds
eða persónugreinanlegs einstaklings sem sann-
gjarnt er og eðlilegt að leynt fari. Einstaklingur
skal eigi teljast persónugreinanlegur ef verja
þyrfti verulegum tíma og mannafla til að per-
sónugreining hans gæti átt sér stað. Sama gild-
ir ef persónugreining getur einungis átt sér stað
með notkun greiningarlykils sem sá aðili er
hefur upplýsingar undir höndum hefur ekki að-
gang að. Þegar einstaklingur er ekki persónu-
greinanlegur skal litið svo á að upplýsingar
sem hann varða séu ekki persónuupplýsingar í
skilningi laga þessara.
5. Erfðafræðilegar upplýsingar: Hvers kyns
upplýsingar sem varða erfanlega eiginleika
einstaklings eða varða erfðamynstur slíkra eig-
inleika innan hóps skyldra einstaklinga, enn
fremur allar upplýsingar sem varða flutning
erfðaupplýsinga (erfðavísa) er lúta að eigin-
leikum sem ákvarða sjúkdóma og heilsu ein-
staklings og hóps skyldra einstaklinga án tillits
til þess hvort unnt er að greina þessa eiginleika
eða ekki.
3. gr.
Heilbrigðisráðherra skal beita sér fyrir gerð
og starfrækslu samhæfðra gagnagrunna á
heilbrigðissviði.
Heilbrigðisráðherra er heimilt að semja um
gerð og starfrækslu gagnagrunna við aðila sem
uppfylla skilyrði laga þessara fyrir veitingu
starfsleyfis. Heilbrigðisráðherra veitir starfs-
leyfi samkvæmt lögum þessum.
Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis eru sem
hér segir:
1. Að starfsleyfishafi sé íslenskur lögaðili.
2. Að gagnagrunnurinn verði alfarið staðsett-
ur hér á landi.
3. Að fyrir liggi tækni-, öryggis- og skipu-