Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1998, Page 65

Læknablaðið - 15.05.1998, Page 65
Nafn sérlyfs: Lanzap. SÝRUHJÚPHYLKI; A 02 B C 03. Hvert syruhjúphvlki inniheldur: Lansoprazolum INN 30 mg. Eiginleikan Lyfið blokkar prótónupumpuna (H+,K+- ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði grunnframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá smá- þörmum, en breytist í virkt form í súru umhverfi paríetalfrumnanna. Fylgni er milli áhrifa á sýruframleiðslu og flatarmáls undir blóðþéttniferlinum (AUC), en ekki blóðþéttni hveiju sinni. Blóðþéttni nær hámarki 1,5 klst. eftir töku lyfsins. Aðgengi er yfirleitt hátt (80-90%), en er mjög breytilegt milli einstaklinga. Binding við plasmaprótein er um 90%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst. Hann lengist með hækkandi aldri og við skerta lifrarstarfsemi. Lyfið umbrotnar að fullu í lifur og skilst út sem óvirk umbrotsefni, 65% í saur og afgangur í þvagi. Ábendingan Skammtímameðferð á sársjúkdómi í skeifugöm og maga. Skammtímameðferð á bólgu í vélinda vegna bakflæðis. Æskilegt er að þessar greiningar séu staðfestar með röntgen eða speglun. Frábendingar: Engar þekktar. Varúð: Við skerta lifrarstarfsemi er helmingunartími lengdur og skammta getur þurft að minnka. Meðganga og brjóstagjöf: Klínísk reynsla af gjöf lyfsins á meðgöngutíma er lítil. Fósturskemmdir hafa ekki komið fram við dýratilraunir. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Algengar (>1%). Miðtaugakeifi: Höfuðverkur, svimi. Meltingarfœri: Niðurgangur, ógleði, magaverkir, hægðatregða, uppköst, vindgangur. Húð: Útbrot. Sjaldgæfar (0,1-1%): Þreyta. Milliverkanir: Lyfið umbrotnar fyrir tilstilli cýtókróm P- 450 enzýma og gæti haft milliverkanir við díazepam, fenýtóín, teófýllín, warfarín, sýrubindandi lyf eða bólgueyðandi gigtarlyf. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin verður að gleypa í heilu lagi. Lyfið er ætlað til skammtímameðferðar, mest í 8 vikur. Skeifugamarsán Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Magasár. Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 4 vikur til viðbótar. Bólga í vélinda vegna bakflœðis: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað bömum. Pakkningar og ^ hámarksverð 1.9.’97: 14 stk. 3.052 kr.; 28 stk. 5.347 kr.; 56 stk. 9.878 kr. Hámarksmagn sem ávísa ^ má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti. Afgreiðslutilhögun: R Greiðsluþátttaka Heimildin 1) Sci. Am. 1996, Feb: 92-7. 2) Læknablaðiö 1996,82: 366-70. LYFJAVERSLUN ÍSLANDS HF. Lansóprazól Helicobacter pylori ...þú færð í magann þegar hún birtist! MIBIMBWWW Ungi ástralski læknirinn Barry J. Marshall vakti athygli þegar hann tilkynnti áriö 1985 að hann hefði sjálfviljugur innbyrt H. pylori. Með þessu vildi hann sýna fram á að bakterían gæti orsakað ætisár hjá heilbrigðum einstaklingi. Marshall var nokkuð „heppinn" en fékk slæmar magabólgur sem hurfu án meðferðar. 1 Þriðji hver íslendingur sýktur í nýrri íslenskri rannsókn reyndist algengi mótefna gegn H. pylori meðal íslendinga vera að minnsta kosti 35% sem er nokkuð hærra en í nágrannalöndum okkar. | Flestir eru einkennalausir_______ Flestir þeir sem sýktir eru af H. pylori eru einkennalausir en 10-15% þeirra sem smitast fá ætisár einhvern tímann á ævinni. | Sár í maga_______________________ Fullsannað þykir að H. pylori veldur nær öllum maga- og skeifugarnarsárum sem ekki eru af völdum lyfja, s.s. NSAID.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.