Læknablaðið - 15.05.1998, Síða 65
Nafn sérlyfs: Lanzap. SÝRUHJÚPHYLKI; A 02 B C 03. Hvert syruhjúphvlki inniheldur: Lansoprazolum INN 30 mg. Eiginleikan Lyfið blokkar prótónupumpuna
(H+,K+- ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði grunnframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá smá-
þörmum, en breytist í virkt form í súru umhverfi paríetalfrumnanna. Fylgni er milli áhrifa á sýruframleiðslu og flatarmáls undir blóðþéttniferlinum (AUC), en ekki
blóðþéttni hveiju sinni. Blóðþéttni nær hámarki 1,5 klst. eftir töku lyfsins. Aðgengi er yfirleitt hátt (80-90%), en er mjög breytilegt milli einstaklinga. Binding við
plasmaprótein er um 90%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst. Hann lengist með hækkandi aldri og við skerta lifrarstarfsemi. Lyfið umbrotnar að fullu í lifur og skilst út
sem óvirk umbrotsefni, 65% í saur og afgangur í þvagi. Ábendingan Skammtímameðferð á sársjúkdómi í skeifugöm og maga. Skammtímameðferð á bólgu í vélinda
vegna bakflæðis. Æskilegt er að þessar greiningar séu staðfestar með röntgen eða speglun. Frábendingar: Engar þekktar. Varúð: Við skerta lifrarstarfsemi er
helmingunartími lengdur og skammta getur þurft að minnka. Meðganga og brjóstagjöf: Klínísk reynsla af gjöf lyfsins á meðgöngutíma er lítil. Fósturskemmdir hafa ekki
komið fram við dýratilraunir. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Algengar (>1%). Miðtaugakeifi: Höfuðverkur, svimi. Meltingarfœri:
Niðurgangur, ógleði, magaverkir, hægðatregða, uppköst, vindgangur. Húð: Útbrot. Sjaldgæfar (0,1-1%): Þreyta. Milliverkanir: Lyfið umbrotnar fyrir tilstilli cýtókróm P-
450 enzýma og gæti haft milliverkanir við díazepam, fenýtóín, teófýllín, warfarín, sýrubindandi lyf eða bólgueyðandi gigtarlyf. Skammtastærðir handa fullorðnum:
Sýruhjúphylkin verður að gleypa í heilu lagi. Lyfið er ætlað til skammtímameðferðar, mest í 8 vikur. Skeifugamarsán Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 2 vikur.
Hafi sárið ekki gróið má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Magasár. Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 4 vikur til viðbótar. Bólga í vélinda vegna bakflœðis:
Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast má halda meðferð áfram
í 4 vikur til viðbótar. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað bömum. Pakkningar og ^
hámarksverð 1.9.’97: 14 stk. 3.052 kr.; 28 stk. 5.347 kr.; 56 stk. 9.878 kr. Hámarksmagn sem ávísa ^
má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti. Afgreiðslutilhögun: R Greiðsluþátttaka
Heimildin 1) Sci. Am. 1996, Feb: 92-7. 2) Læknablaðiö 1996,82: 366-70. LYFJAVERSLUN ÍSLANDS HF.
Lansóprazól
Helicobacter pylori
...þú færð í magann
þegar hún birtist!
MIBIMBWWW
Ungi ástralski læknirinn
Barry J. Marshall vakti
athygli þegar hann
tilkynnti áriö 1985 að
hann hefði sjálfviljugur
innbyrt H. pylori. Með
þessu vildi hann sýna
fram á að bakterían gæti
orsakað ætisár hjá
heilbrigðum einstaklingi.
Marshall var nokkuð
„heppinn" en fékk
slæmar magabólgur sem
hurfu án meðferðar.
1 Þriðji hver íslendingur sýktur
í nýrri íslenskri rannsókn reyndist algengi
mótefna gegn H. pylori meðal íslendinga
vera að minnsta kosti 35% sem er nokkuð
hærra en í nágrannalöndum okkar.
| Flestir eru einkennalausir_______
Flestir þeir sem sýktir eru af H. pylori eru
einkennalausir en 10-15% þeirra sem
smitast fá ætisár einhvern tímann á ævinni.
| Sár í maga_______________________
Fullsannað þykir að H. pylori veldur nær
öllum maga- og skeifugarnarsárum sem
ekki eru af völdum lyfja, s.s. NSAID.