Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1998, Side 81

Læknablaðið - 15.05.1998, Side 81
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 439 Novo Nordisk Foundation Research Meetings Styrkir til vísindastarfsemi Norræna rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings Komité) ráðgerir að veita allt að 300.000 DKR á ári til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til eins til þriggja daga málþinga (mögulega sem velskilgreinda fundi í tenglsum við stærri ráðstefnur, (satellite symposium) eða til að bjóða alþjóðlega viðurkenndum vís- indamönnum til styttri dvalar hjá rannsóknarhópum í tengslum við fyrirlestrahald eða sambærilega starfsemi. Styrkir verða ekki veittir vegna námskeiða. Starfsemin skal vera á sviði innkirtlafræði eða tilraunalífeðlisfræði. Hver styrkur nemur að jafnaði 100.000 DKR eða hærri upphæð. Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 1999 eða 2000. Umsóknir skal senda í fimm eintökum til: Novo Nordisk Fonden, Brogárdsvej 70 Postbox 71 DK-2820 Gentofte, Danmark sími: +45-4443 9038 bréfsími: +45-4443 9098 heimasíða: http://www.novonordiskfonden.dk í umsókninni skal koma fram rökstuðningur fyrir mikilvægi þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til (mest ein síða), lýsing á starfseminni, fjárhagsáætlun og áætluð tímasetning, upplýsingar um virkni rannsóknarhóps umsækjenda á fræðasviðinu og þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir framhald þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir birtingu á helstu niðurstöðum rannsóknarhóps umsækjenda síðastliðin tvö til þrjú ár (mest tvær síður). Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu hafa borist til Novo Nordisk Fonden í síðasta lagi 15. ágúst 1998. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir sem berast á bréfsíma verða ekki teknar til greina. Umsóknum verður svarað um miðjan október 1998.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.