Læknablaðið - 15.05.1998, Page 81
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
439
Novo Nordisk Foundation
Research Meetings
Styrkir til vísindastarfsemi
Norræna rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings Komité) ráðgerir að veita allt að
300.000 DKR á ári til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til eins til
þriggja daga málþinga (mögulega sem velskilgreinda fundi í tenglsum við stærri
ráðstefnur, (satellite symposium) eða til að bjóða alþjóðlega viðurkenndum vís-
indamönnum til styttri dvalar hjá rannsóknarhópum í tengslum við fyrirlestrahald
eða sambærilega starfsemi. Styrkir verða ekki veittir vegna námskeiða.
Starfsemin skal vera á sviði innkirtlafræði eða tilraunalífeðlisfræði.
Hver styrkur nemur að jafnaði 100.000 DKR eða hærri upphæð.
Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 1999 eða 2000.
Umsóknir skal senda í fimm eintökum til:
Novo Nordisk Fonden,
Brogárdsvej 70
Postbox 71
DK-2820 Gentofte, Danmark
sími: +45-4443 9038
bréfsími: +45-4443 9098
heimasíða: http://www.novonordiskfonden.dk
í umsókninni skal koma fram rökstuðningur fyrir mikilvægi þeirrar starfsemi
sem sótt er um styrk til (mest ein síða), lýsing á starfseminni, fjárhagsáætlun og
áætluð tímasetning, upplýsingar um virkni rannsóknarhóps umsækjenda á
fræðasviðinu og þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir framhald
þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir birtingu á helstu niðurstöðum rannsóknarhóps
umsækjenda síðastliðin tvö til þrjú ár (mest tvær síður).
Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu hafa borist til Novo Nordisk Fonden
í síðasta lagi 15. ágúst 1998. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir sem berast
á bréfsíma verða ekki teknar til greina. Umsóknum verður svarað um miðjan
október 1998.