Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1999, Síða 7

Læknablaðið - 15.01.1999, Síða 7
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85: 7-8 7 Ritstjórnargrein Blóðskilun á íslandi í 30 ár Þann 15. ágúst síðastliðinn voru liðin 30 ár frá því fyrsta blóðskilunarmeðferðin var fram- kvæmd hérlendis. í tilefni þessa 30 ára afmælis er þetta hefti Læknablaðsins helgað nýrna- læknisfræði. I blaðinu eru birtar þrjár greinar um rannsóknir á sviði nýrnasjúkdóma og nýrnalækninga (1-3). Vísindarannsóknir á sviði nýrnasjúkdóma hafa aukist hér á landi á undan- förnum árum og gefa þær greinar sem birtast í þessu þemahefti nokkra mynd af þessu starfi. Miklar breytingar hafa orðið á þeim þremur áratugum sem liðnir eru síðan skilunarmeðferð við nýmabilun hófst hér á landi. Nú þegar alda- mót eru á næsta leiti er vert að staldra við og velta fyrir sér stöðu meðferðar við lokastigs- nýrnabilun í dag og jafnframt að horfa fram á við og velta fyrir sér þeim viðfangsefnum sem verða brýnust í upphafi næstu aldar. Enginn vafi er á því að glæsilegir áfangar hafa náðst í meðferð við lokastigsnýmabilun á síðari helmingi þeirrar aldar sem er að líða. Ber þar hæst skilun og nýrnaígræðslur sem halda lífi í stórum hópum fólks um allan heim. Geysileg aukning hefur orðið á fjölda sjúklinga í meðferð vegna lokastigsnýmabilunar á und- anförnum áratugum. Langmest er fjölgunin hjá öldruðum einstaklingum. Hérlendis hefur fjölg- un sjúklinga verið svipuð og annars staðar en þó vekur athygli að nýgengi sjúklinga sem koma til meðferðar vegna lokastigsnýrnabilunar er hér mun lægra en meðal grannþjóða (1). Þrátt fyrir miklar framfarir í skilunartækni er árleg dánartíðni sjúklinga í skilunarmeðferð há (20-30%) (4). Dánartíðnin er hæst meðal elstu einstaklinganna eins og við mátti búast en hún er einnig óásættanlega há meðal þeirra sem yngri eru. Lífshorfur þessara sjúklinga eru jafn- vel lakari en sjúklinga með krabbamein í ristli eða blöðruhálskirtli (5). Hérlendis hefur dánar- tíðni verið svipuð og meðal annarra Norður- landaþjóða (1). Rannsóknir á sjúklingum í blóðskilun hafa sýnt að dánartíðni er lægri eftir því sem magn skilunar er meira (6,7). Fyrir bragðið er lögð vaxandi áhersla á að tryggja að sjúklingar fái fullnægjandi skilun. I ljós hefur komið að oft er verulegur munur á milli skilunarskammts sem ávísað er á sjúklinga í blóðskilunarmeðferð og þess skammts sem þeir fá. Þróaðar hafa verið aðgengilegar aðferðir til að meta það magn skilunar sem sjúklingar fá í hverri meðferð og byggjast þær á lækkun úreaþéttni í blóði (8). Ymsir þættir hafa áhrif á magn skilunar. Lengd skilunartímans virðist sérlega mikilvægur þáttur (9). Franskir sjúklingar sem fá einstaklega langa blóðskilunarmeðferð (átta klukkustundir þrisvar í viku) hafa mun betri lífshorfur en ann- ars staðar þekkist, eða um 70% eftir 10 ár (10). Blóðþrýstingsstjóm er einnig framúrskarandi góð hjá þessum sjúklingum og kann það að eiga þátt í betri lifun. Mikil lenging á blóðskil- unartíma er ekki auðveld í framkvæmd vegna þess hve mikið það bindur sjúklinga við með- ferðarstofnunina. Einkum er það óhagstætt fyrir þá sem reyna að stunda atvinnu þrátt fyrir veik- indi sín. Skilun að kvöld- eða næturlagi væri til bóta fyrir slíka sjúklinga en það hefur reynst erfitt í framkvæmd vegna skorts á starfsfólki og aukins kostnaðar. Þótt kviðskilun gefi meira frjálsræði fyrir sjúklinga er enn erfiðara að tryggja fullnægjandi skilun hjá slíkum sjúk- lingum. En hvað er það sem dregur þessa sjúklinga til dauða? í allt að helminga tilfella eru það hjarta- og æðasjúkdómar (11). Líklega ráða þar mestu þekktir áhættuþættir, svo sem háþrýst- ingur og blóðfituraskanir, sem finnast hjá flest- urn skilunarsjúklinguin. Talið er að vannæring sé mikilvæg orsök hárrar dánartíðni hjá skilun- arsjúklingum (12). Hafa rannsóknir sýnt sterka fylgni milli lækkaðs albúmíns í sermi og auk- innar dánartíðni (7). Lengi hefur tíðkast að setja sjúklinga með langt gengna langvinna nýrnabilun á prótínskert fæði í þeim tilgangi að draga úr þvageitrunareinkennum og seinka þörf fyrir skilun. Þetta getur þó reynst tvíeggjað því umtalsverð vannæring getur hlotist af. Eiga sumir sjúklingar erfitt með að bæta næringar-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.