Læknablaðið - 15.01.1999, Síða 52
44
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85: 44-9
Nýrnalækningar
Sögulegt ágrip
Páll Ásmundsson, Runólfur Pálsson
Árið 1810 kom til íslands breskur leiðangur
undir forystu Sir George Mackensie, skosks
jarðfræðings. Með honum voru í för tveir ungir
læknanemar, Henry Holland og Richard Bright.
Hinn fyrrnefndi rannsakaði sjúkdóma Islend-
inga og skrifaði síðar doktorsritgerð um það
efni. Richard Bright var 21 árs að aldri og safn-
aði plöntum og steinum fyrir leiðangurinn. Þeir
félagar æfðu hér nokkuð lækniskúnstir á sauð-
svörtum almúganum, einkum í kirkjunni í Ol-
afsvík. Árið 1820 var svo Richard Bright kom-
inn í aðstoðarlæknisstöðu við Guy's Hospital í
London og hóf þar feril sinn sem einn merkasti
læknir 19. aldar ásamt ekki ómerkari mönnum
en Thomas Addison og Thomas Hodgkin (1).
Richard Bright er af mörgum álitinn faðir
nýrnalækninga nútímans. Hann sýndi meðal
annars fyrstur manna fram á tengsl milli vefja-
breytinga í nýrum og bjúgsöfnunar og prótín-
migu. Enn í dag tala enskir um „Bright's dis-
ease“ þótt nú teljist frekar um að ræða heil-
kenni en ákveðinn sjúkdóm.
Berum næst niður á þessari öld, nánar tiltek-
ið í heimsstyrjöldinni síðari. Þá urðu þær fram-
farir í meðferð nýrnabilunar, sem lögðu grunn
að nýrnalækningum sem sérgrein. Árið 1944
birti hollenski læknirinn Willem Kolff grein í
Acta Medica Scandinavica þar sem hann lýsti
reynslu sinni af fyrstu blóðskilunum (hemodia-
lysis) sem gerðar voru með árangri á mönnum
(mynd 1) (2). Sú skilunaraðferð þætti frumstæð
í dag. Blóð var tekið í slumpum úr sjúklingn-
um, hreinsað í skilu (dialyzer) og síðan skilað
Frá blóðskilunardeild og lyflækningadeild Landspítalans.
Doctor Richard Bright ofGuy's
Had several patients large in size.
Their legs were swollen as could be;
Their eyes so pujfed they could not see.
To this oedeina Bright objected,
And so he had them venesected.
He took a teaspoon by the handle
Held it above a tallow candle
And boiled some urine o'er the flame
(As you or I might do the same).
To his surprise, wefind it stated,
The urine was coagulated.
Alas, his dropsied patients died.
The thoughtful doctor looked inside.
Hefound their kidneys large and white
The capsules were adherent quite.
So that is why the name ofBright is
Associated with nephritis.
Birt án höfundarnafns í The St Bartholomew's
Hospital Journal.
sjúklingnum aftur. Á þessum tíma var farið að
nota heparín en blóðþynning var nauðsynleg
forsenda skilunar. Fyrsti sjúklingurinn sem
Kolff fleytti gegnum bráða nýmabilun var kona
sem var uppljóstrari Þjóðverja. Kolff sagði síð-
ar að hann hefði næstum séð eftir að bjarga
henni.
Svíinn Nils Alwall vann að tilraunum með
skilun samtímis Kolff og kom árið 1946 fram
með tæki sem gerðu samfellda blóðskilun mögu-
lega. Búnaður hans gerði einnig kleift að stýra
örsíun (ultrafiltration) og stjóma með þeim hætti
hve mikill vökvi var tekinn af sjúklingnum (3).
Næstu ár varð veruleg þróun í skilunarbún-