Læknablaðið - 15.01.1999, Qupperneq 71
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
61
lækna til þess að gera þetta
verkfæri illnothæft. Eg held
að þó svo einungis 150 læknar
hafi skrifað undir þessar yfir-
lýsingar þá séu mun fleiri
kollegar sama sinnis. Undir-
skriftum var ekki safnað af
Læknafélaginu heldur var
grasrótin þar að verki og þetta
var unnið á einum sólarhring,
að því er mér skilst. Ég tel ár-
angurinn því mjög góðan,
miðað við það að menn voru í
fullri vinnu jafnhliða því að
vera að safna undirskriftum.
Það sem ég óttast þó mest
er að læknar verði ef til vill
þvingaðir beint eða óbeint til
þess að taka þátt í uppbygg-
ingu miðlægs gagnagrunns af
vinnuveitendum sínum eða
sérleyfishafa, til dæmis með
því að starfsöryggi þeirra
verði telft í tvísýnu taki þeir
ekki þáttt í þessum grunni.
Þetta gæti orðið alvarlegasta
afleiðingin.“
Málið allt í skötulíki
- Má ekki einnig búast við
því að einhver hópur sjúklinga
muni alfarið neita fyrirfram að
heilsufarsupplýsingar um þá
verði afhentar inn í þennan
grunn?
„I kjölfar þeirrar miklu um-
ræðu sem orðið hefur um mál-
ið er nokkuð ljóst að afstaða
almennings hefur breyst tals-
vert og mér finnst líklegt að
stór hluti þeirra sem hafa mikl-
ar og viðkvæmar upplýsingar
Guðmundur Björnsson formað-
ur Lœknafélags Islands.
muni að eigin frumkvæði ekki
vilja setja þær upplýsingar í
gagnagrunninn og það gerir
hann enn ómarkvissari."
- Munt þú senda heilsufars-
upplýsingar inn í miðlægan
gagnagrunn án þess að til
komi skriflegt frumkvæði sjúk-
linga?
„Ætli ég muni ekki, eins og
allir aðrir læknar verði þessi
gagnagrunnur að veruleika,
spyrja alla mína sjúklinga
hvort þeir vilji setja upplýs-
ingar er þá varðar inn í grunn-
inn eða ekki og upplýsa þá
jafnframt um hvað málið snýst,
þannig að á endanum fáum
við þetta upplýsta samþykki.
Það skortir í þessum lögum.
Það væri ekkert vandamál fyr-
ir okkur að vinna eftir lögun-
um ef um væri að ræða upp-
lýst samþykki og gögnin væru
klárlega persónugreinanleg,
og það einfaldlega sagt. Það
er upplýsta samþykkið sem
skiptir höfuðmáli. Ég er alveg
sama sinnis og mjög margir
aðrir kollegar að telja svona
gagnagrunn bjóða upp á feiki-
lega mikla möguleika en eins
og að málum hefur verið stað-
ið þá er þetta allt í skötulíki.
Það hefði verið hreinlegra fyr-
ir þá sem vildu kljást við þetta
verkefni að ganga hreint til
verks þannig að um væri að
ræða upplýst samþykki og
persónugreinanlegar upplýs-
ingar í sátt við læknastéttina
og aðra heilbrigðisstarfs-
menn, þá hefði þetta verið
leikur einn.“
- Er stríðið tapað eða er það
einungis orrustan?
„Þetta er ekki stríð og mál-
inu er alls ekki lokið. Ég er
mikill bílaáhugamaður og ég
hef stundum líkt þessu við
keppni í Formúlu 1. Málið
snýst ekki um það að sigra
andstæðinginn heldur að
vinna keppnina og sá vinnur
keppnina sem hefur besta bíl-
inn. besta ökumanninn og síð-
ast en ekki síst besta viðgerð-
arliðið. I umfjöllun um mið-
lægan gagnagrunn höfum við
ekki látið stjórnast af illind-
um, heiftúð eða öfund, heldur
er verið að verja starfsréttindi
og siðferðilegar skyldur lækna,
um það snýst málið.“
-bþ-