Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1999, Page 79

Læknablaðið - 15.01.1999, Page 79
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 67 eftir aðra umræðu hefur það síður en svo batnað að okkar mati. Þau ákvæði sem við höf- um beitt okkur fyrir, svo sem um persónuverndina, hafa ekkert breyst. Og þó höfðu fjölmargir aðilar gert athuga- semdir við þau, Tölvunefnd, Vísindasiðanefnd og ýmsir aðrir höfðu vakið á því athygli að þessi ákvæði samrýmdust ekki þeim mannréttindasátt- málum sem við erum aðilar að á alþjóðavísu. Það voru kall- aðir til tugir einstaklinga, sér- fræðinga á hinum ýmsu svið- um, stofnana og samtaka en eftir á að hyggja sér maður að það stóð aldrei til að gera neitt með álit þeirra. Ábendingar þeirra hafa ekkert komist til skila. Það var bara hlustað á þá til málamynda.“ - Það hefur legið á því að afgreiða gagnagrunnsfrum- varpið, hvers vegna þessi asi? „Það hefur ekki fengist nein skýring á því. Það er í raun óskiljanlegt að menn skuli ætla að afgreiða svona flókið mál í þessum flýti. Þessi mál eru til umræðu í útlöndum og sumar þjóðir hafa leyst þessi mál með ágætum hætti. Eg held að við gætum vel nýtt okkur reynslu Finna sem hafa komið sér niður á ágætt fyrir- komulag á þessum málum. Eg var fyrir skömmu á ársfundi Vísindastofnunar Evrópu þar sem meðal annars var rætt um nauðsyn umræðu um siðfræði vísindanna og alveg sérstak- lega lífvísinda vegna þeirra byltingarkenndu breytinga sem eru að gerast innan þeirra, ekki aðeins í erfðafræði held- ur í fleiri greinum lífvísinda. Það var ljóst að menn vilja gefa sér góðan tíma til að ræða þessi mál vegna þess að þau eru flókin. Þarna eru á ferðinni ný vandamál sem menn hafa ekki þurft að glíma við áður. Vísindin og tæknin þróast mjög hratt en siðfræðin kemur í kjölfarið þegar menn átta sig á því að það er í óefni komið. Það má tína til margar greinar vísinda þar sem mál- um er þannig háttað.“ Beinlínis stefnt að málaferlum - Því er haldið fram að búið sé að tala meira um þetta frum- varp en flest önnur sem Al- þingi hefur afgreitt en þú ert ekki á því að það sé fullrætt? „Það er vissulega búið að tala mikið um þetta frumvarp en menn hafa talað dálítið mikið framhjá hver öðrum. Það hefði verið hægt að setja niður nefndir til að fjalla um einstök svið sem þetta frum- varp snertir en sú leið var ekki farin. Vinnunefnd þingsins, heilbrigðis- og trygginga- nefnd, er þríklofin í málinu. Nefndarmönnum er að vissu leyti vorkunn, þeir hefðu þurft að vinna í málinu í sumar meðan tími var til en gerðu það ekki. Þegar þeir svo taka til við málið í haust eftir að þingið hefst er orðið ljóst að það er ákaflega mörgum spurningum ósvarað og mikill ágreiningur um marga þætti sem þarf að ná sáttum um. Nú stöndum við frammi fyrir því að það á samþykkja frumvarp sem hefur klofið læknastéttina og vísindasam- félagið bæði langsum og þversum. Það er nauðsynlegt að brúa þá gjá því að þótt lög- in verði samþykkt þyrftu læknar að brjóta gegn lækna- eiði sínum vilji þeir láta upp- lýsingar frá sér í grunninn. Þeir hafa svarið þess eið að halda trúnað við sjúklinga sína en frumvarpið gerir ráð fyrir því að þessar upplýsing- ar fari nánast á opinn markað. Eg get ekki ímyndað mér að læknar geti afhent þessar upp- lýsingar. Ef beita á þá lög- þvingunum hlýtur það að leiða til málaferla og það virð- ist beinlínis að því stefnt að svo skuli fara.“ Höfum skömm og skaða af þessu - Nú hafa yfir 150 læknar lýst því yfir að þeir muni ekki leggja upplýsingar í þennan grunn. Er málið þá ekki unnið fyrir gýg ef þeir neita? „Jú, að sjálfsögðu og ekki síður vegna þess að til viðbót- ar þessum læknum er stór hópur sem ekki skrifuðu undir af ýmsum ástæðum en eru sama sinnis. Það er því ljóst að ef þriðjungur og jafnvel helmingur íslenskra lækna ætlar að standa við sinn eið og virða trúnað við sjúklinga sína þá verður þessi gagnagrunnur aldrei að veruleika. Þá hlýtur maður að spyrja: Til hvers var þá öll þessi barátta? Var það bara til að knýja upp verðið á hlutabréfum í fyrirtækinu? Áhættufjárfestarnir sem hafa verið að kaupa þessi hlutabréf munu væntanlega selja þau eftir að frumvarpið verður að lögum en þeir sem þá kaupa munu taka hina raunverulegu áhættu vegna þess að væntan- lega munu bréfin lækka í verði ef gagnagrunnurinn verður ekki nothæfur sem það rannsóknartæki sem honum er ætlað að vera. Það verður svo verkefni landlæknis og Heilbrigðis- ráðuneytisins að brúa þá gjá sem myndast hefur og það gerist ekki á einni nóttu. Frumvarpið hefur því skapað heilmikinn vanda sem sumir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.