Læknablaðið - 15.01.1999, Síða 88
76
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
- En læknastéttin, hvernig
hefur hún verið í ykkar garð?
„Hún hefur verið ágæt. En
stundum hafa þeir verið eins
og í vörn. Kannski er best að
lýsa þessu með orðum Olafs
landlæknis þegar við komum
einhverju sinni á fund hjá
honum. Hann sagðist alltaf
vera hálfhræddur við okkur,
við værum svo frek og ætluð-
umst til svo mikils af læknum.
Það má kannski til sanns veg-
ar færa, sumir þeirra jákvæðu
hafa ekki alltaf getað sætt sig
við litla fingurinn sem þeim er
réttur og viljað fá alla hönd-
ina. En ef undan einhverju er
að kvarta í heilbrigðiskerfinu
væri það frekar ráðuneytið
sem er stundum ansi stíft.“
Fordómarnir minnka,
en þeir eru enn til
- Frá upphafi hafa ríkt for-
dómar í garð alnæmis, hefur
eitthvað dregið úr þeim?
„Já, það hefur gerst mjög
hratt á undanförnum árum
með aukinni umræðu. En þeir
eru enn til staðar og brjótast af
og til út eins og gerðist um
daginn í lesendabréfi til DV
þar sem einhver kona krafðist
þess að fá að vita nafnið á
leikskólanum sem alnæmis-
srnitað barn dvaldist á en frá
því hafði verið greint í frétt-
um. Hún vildi bjarga barninu
sínu frá þessum voða. Svona
hystería á ekki að þurfa að
vera til.
í fyrstu var alnæmi kallað
hommasjúkdómur og þá datt
umræðan niður af því að fólki
fannst hann ekki koma því
við. En nú eru það aðrir hópar
sem eru að smitast, yngra fólk
og jafnvel böm, og þá brjótast
fordómarnir út aftur. Og af því
ég er að tala við Læknablaðið
vil ég nefna að læknar voru
líka haldnir fordómum í upp-
hafi. Það sást meðal annars á
allri umræðunni sem þeir héldu
uppi um nafn á sjúkdómnum.
Það er sígild aðferð íslend-
inga til að forðast að horfast í
augu við vandamál að týna sér
í umræðum um nafn á því. En
læknar hafa tekið miklum
framförum hvað þetta varðar.“
Þurfum að efla
forvarnarstarfið
- Nú eru aðrir hópar að fá
alnæmi en í upphafi, er það
teikn um að fólk sé farið að
slaka á gagnvart sjúkdómn-
um?
„Já, það leikur enginn vafi á
því að árveknin hefur minnk-
að. Við getum kennt okkur
sjálfum um, bæði við í Al-
næmissamtökunum og heil-
brigðiskerfið höfum sofnað á
verðinum. Forvamarstarfið og
umræðan hefur dottið niður.
Nú er að koma út úr skólunum
heil kynslóð sem hefur fengið
sama og enga fræðslu um al-
næmi. Þau halda að það sé
ekkert mál að fá alnæmi, það
séu til lyf við því og það sé
jafnvel verra að fá klamydíu
eða lekanda. Ég hef verið að
fylgjast með dóttur minni sem
er 16 ára, en í kynfræðslunni
sem hún fær er töluvert fjallað
um lekanda og klamydíu en
varla minnst á alnæmi. Enda
þykir það hallærislegt í þess-
um aldurshópi að nota smokk.
Við þurfum að taka okkur
tak aftur. Það þýðir ekkert að
hætta því þá er hætta á að við
missum framhjá okkur aldurs-
hóp sem við náum ekki til aft-
ur,“ segir Ingi Rafn Hauksson
formaður Alnæmissamtak-
anna á Islandi.
-ÞH
Heimasíða Læknafélags Islands
http://www.icemed.is
Á heimasíðu Læknafélags íslands er meöal annars að finna upplýsingar
um stjórn LÍ og heiðursfélaga, lög félagsins, Codex Ethicus, ýmis önnur
lög og reglugerðir er lækna varðar, samning sjúkrahúslækna, úrskurð
Kjaranefndar, gjaldskrá heilsugæslulækna, starfsemi skrifstofu LÍ, sér-
greina- og svæðafélög lækna, Læknablaöið, læknavefinn, læknaskrár,
Fræðslustofnun lækna, Orlofsnefnd læknafélaganna, Lífeyrissjóð
lækna auk þess sem vísað er í margvíslegar tengingar á netinu sem
geta komið sér vel.