Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1999, Síða 94

Læknablaðið - 15.01.1999, Síða 94
82 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Hallgerður Gísladóttir sagnfræðingur Gömul læknisráð á Þjóðminjasafni Hallgerður Gísladóttir á þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins heldur áfram að seilast í skúffur og skjalaskápa deildarinnar eftir gömlum læknisráðum sem þar eru skráð. Að þessu sinni fjalla öll ráðin um fæðingarhjálp og það vekur athygli að þau eru öll nema tvö höfð eftir karlkyns heimildarmönnum. Ráð um fæðingarhjálp Ráð við erfiðri fæðingu var að hvolfa potti yfir konuna eða reisa yfir henni sperrur. Einnig að breiða messuklæði yfir konuna. Sumir töldu að gott væri að láta rjúpnafjaðrir undir sængina hjá konunni. Karl úr S-Þing. f. 1901. Lausnarsteinar voru settir í sjóðandi vatn og látnir liggja í því þar til það var farið að kólna, þá átti konan að drekka af því. Karl af Snæfellsnesi f. 1893. Ef fæðing gengur illa, er gott að láta konuna drekka lút- sterkt baunakaffi. Einnig er gott ráð að taka konuna upp úr rúminu og leggja hana á gólf- ið. ísfirskur karlmaður f. 1932 Móðir heimildarmanns kom eitt sinn hart niður og hafði ljósmóðirin þá verið að hugsa um að setja hana á borð eða tvö koffort til að betur gengi, en barnið fæddist áður en til þess kæmi. Hún heyrði líka að gott væri að setja konuna í bóndabeygju og var þetta talið frá Grænlandi. Kona úr Strandasýslu f. 1900. Ef ógiftri konu gekk illa að fæða átti helst að finna barns- föðurinn og láta hann sitja undir henni. Venja var að yfir- heyra mæður um faðemi bama á meðan þær lágu í blóðbönd- unum, en það var frá því að barnið fæddist og þangað til skilið var á milli. Norðlenskur karlmaður f. 1888. Ráð við erfiðri fæðingu var að láta konuna sitja yftr volgu vatni. Konaf. 1894. Lausnarsteinar voru lagðir undir tungurætur konunnar. Karl úr Amessýslu f. 1903. Eitt ráð til að greiða fyrir erfiðri fæðingu var að leggja burnirót hjá konunni, svo að hún snerti hana. Eftir því sem ég hefi heyrt gamla konu, fædda um 1845, segja voru lausnarsteinar lagði á kvið konu eða við vinstra lær henn- ar. KarlúrA-Barðastrandarsýsluf. 1895. Ýmis ráð voru notuð til að greiða fyrir erfiðri fæðingu. Til dæmis þekkti ég þetta: ljósmóðirin lét hita lútsterkt baunakaffi og lét konuna drekka. Þegar það hafði ekki áhrif, þá lét yfirsetukonan færa sér bala með ísköldu vatni í og vatt upp úr því rekkjuvoð og vafði henni utanum konuna og rétt á eftir fæddist barnið. Til var það að yfirsetukona lét karlmann setjast með konuna og þannig heppnaðist stund- unt að hún fæddi. Karl úr Eyjafjarðarsýslu f. 1899.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.