Læknablaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 14
Nuvcllc (Schering)
TÖFLUR; G 03 F B 01 R, E
Hver pakkning inniheldur 16 hvítar og 12 bleikar töflur.
Hver hvít tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg.
Hver bleik tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg,
Levonorgestrelum INN 75 mícróg.
Eiginleikar: Nuvelle inniheldur estradíól valerat (valerinsýru ester
af náttúrulega estrógen kvenhormóninu, estradíól) og samtengt
prógestogen, levónorgestrel. Estradíól valerat bætir upp
minnkaöa estrógenframleiöslu í líkamanum viö tíðahvörf. Levón-
orgestrel viöbót á síöari hluta hvers tímabils viöheldur reglulegum
tíöahring og vinnur gegn ofvexti í leg-slímhúð. Estradíól valerat og
levónorgestrel frásogast vel frá meltingarvegi og koma fram í
blóöi innan 15 mín. Við frásog og fyrstu umferð um lifur klofnar
estradíól valerat í estradíól og valerin sýru. Á sama tíma um-
brotnar estradíól áfram og er virkasta umbrotsefniö estrón.
Próteinbinding estradíóls er 97%. Estradíól valerat er ekki útskilið
á óbreyttu formi umbrotsefni estradíóls eru skilin út í þvagi og
galli.
Levónorgestrel er útskilið sem óvirk umbrotsefni í þvagi og saur.
Ábendingar: Uppbótarmeðferð viö einkennum estrógenskorts
viö tíðahvörf. Til varnar beinþynningu hjá konum meö aukna
áhættu á beinþynningu (þ.e. eftir brottnám eggjastokka, snemm-
bær tíðahvörf, ættgeng tilhneiging til beinþynningar, skert hreyfi-
geta og langvinn meöferö meö sterum og konur undir kjör-
þyngd). Nuvelle dugir ekki sem getnaöarvörn.
Frábendingar: Þungun, truflun á lifrarstarfsemi, gula eöa þrá-
látur kláöi á fyrri meðgöngu, Dubin-Johnsons heilkenni, Rotor
heilkenni, segabláæöabólga eöa blóösegamyndun eða saga um
þaö, sigðfrumublóðleysi, grunur um hormónatengda sjúkdóma
eöa æxli í legi og brjóstum, ógreind óregluleg blæöing frá legi,
truflun á blóðfituefnaskiptum, saga um meðgöngubólu (herpes
gestationis), otosclerosis sem hefur versnaö viö fyrri meögöngu,
endometriosis, alvarleg sykursýki meö æöabreytingum, brjósta-
kvilli (mastopathy).
Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið á hvorki aö nota á meðgöngu-
tíma né af konum með barn á brjósti.
Aukaverkanir: Langvarandi einhliöa meöferö meö estrógenum
getur hugsanlega aukiö líkur á illkynja æxlum í legbolsslímhúð og
brjóstum, en sú hætta minnkar viö notkun estrógen-gestagen
blöndu, sem líkir eftir hormónaferli tíðahringsins.
Fyrstu mánuöi meöferöarinnar getur borið á milliblæöingum og
spennu í brjóstum. Þetta eru venjulega tímabundin einkenni og
hverfa viö áframhaldandi meöferö.
Algengar (>1%): Brjóstaspenna, höfuðverkur, blæöinga-
truflanir.
Sjaldgæfar (0,1 -1 %): Bjúgur, vökvasöfnun, uppþemba og aukin
matarlyst.
Önnur einkenni sem geta komið fram eru: kvíöi, hjartsláttarónot,
depurð, svimi, meltingatruflanir, verkir í fótum, breytingar á kyn-
hvöt, ógleði, útbrot, uppköst, þyngdarbreyting.
Milliverkanir: Hætta skal notkun á hormónagetnaöar-vörnum
þegar meðferö hefst meö Nuvelle og nota getnaðarvarnir sem
ekki innihalda hormón. Lyf sem virkja lifrarenzým, t.d. barbitúröt,
flogaveikilyf og rífampicín, geta dregiö úr verkunum lyfsins.
Varúð: Hætta skal töku lyfsins þegar í staö ef grunur er um þung-
un, ef mígreni eöa slæm höfuöverkjarköst byrja eöa versna viö
töku, ef slys, sjúkdómur eöa ráögerö skurðaðgerð eru talin geta
aukiö hættu á segamyndun, viö gulu, lifrabólgu, versnun á floga-
veiki og viö verulega hækkun á blóðþrýstingi, viö merki um blóö-
tappa, bláæöabólgu eöa segarek. Fyrirliggjandi sléttvöðvahnútar
í legi geta stækkaö vegna áhrifa frá estrógenum. Ef þetta kemur
í Ijós á að hætta meðferð.
Hjá sjúklingum meö vægan langvinnan lifrarsjúkdóm á aö fylgjast
meö lifrarstarfsemi á 8-12 vikna fresti. Endurtekin milliblæöing á
meðan á meöferö stendur kallar á athugun á legslímu og jafnvel
töku vefjasýnis.
Örsjaldan hafa komið fram góökynja og enn sjaldnar illkynja æxli
í lifur viö notkun hormónalyfja af svipuðu tagi og Nuvelle. Af þess-
um sökum skal hafa lifraræxli í huga viö greiningu ef kviðverkir,
stækkuö lifur eöa merki um blæðingar í kviöaholi koma fyrir.
Athugið: Lyfiö skal einungis gefiö eftir nákvæma almenna
læknisskoðun og kvenskoöun. Slíka skoöun á að endurtaka
a.m.k. einu sinni á ári við langtímameðferð, en að auki í hvert sinn
sem ber á truflunum á blæðingum. Áöur en meöferö hefst þarf aö
útiloka aö þungun sé til staöar.
Skammtastærðir handa fullorðnum: 1 tafla daglega. Meðferð
hefst á 5. degi tíöa eöa á hvaöa degi sem er eftir tíöahvörf. Fyrstu
16 dagana eru hvítu töflurnar teknar og síöari 12 dagana bleiku
töflurnar. Blæöing, lík tíöum, kemur 2-3 dögum eftir aö byrjaö
hefur veriö á nýrri pakkningu. Ekki er gert hlé á milli pakkninga.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfiö er ekki ætlað börnum.
Pakkningar og verð:
28 stk. (þynnupakkað) x 1; 1.599 kr.
28 stk. (þynnupakkað) x 3; 3.389 kr.
Thorarensen Lyf
Vatnagarðar 18 • 104 Reykjavík • Sími 530 7100