Læknablaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 64
336
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
án vandamála og var það vegna tannviðgerðar.
Drengurinn kom eftir miðnætti eftir langt
ferðalag og var búinn að hafa slæma verki frá
áverka.
Svæfing: Fyrirhuguð var bráð barkaþræðing.
Eftir súrefnisgjöf, atrópín (0,006 mg/kg) og
fentanýl (0,8 míkróg/kg), var drengurinn svæfð-
ur með Penthotal (6,25 mg/kg) og gefið succ-
inylcholine (1 mg/kg) strax á eftir. Eftir óvenju
kröftuga vöðvakippi var reynt að barkaþræða
en þá var sjúklingur stífur í kjálkaliðum og
ekki hægt að opna munninn nema lítilsháttar.
Hann var algjörlega slappur í útlimum og létt
að blása lofti í lungun. Gefið var vecuronium
(0,1 mg/kg) og ísóflúran. Hann var síðan barka-
þræddur án vandræða þó ekki væri hægt að
opna munninn að fullu. Fljótlega eftir það ber á
vaxandi hlutþrýstingi koltvísýrings í lok útönd-
unar þrátt fyrir hlutfallslega mikla öndun. Um
það bil 10 mínútum eftir upphaf svæfingar
voru fyrstu blóðgös mæld (kl. 04:20). Því næst
var lokað fyrir ísóflúran og glaðloft, settur
hitamælir og síðan tekin fram karfa með dan-
trolene. Gefið var tribonat. Dantrolene var
blandað og gefið 2,5 mg/kg og voru þá liðnar
um 20 mínútur frá upphafi svæfingar. Arangur
þessarar lyfjagjafar kom strax í ljós með lækk-
andi koltvísýringi og síðar lækkandi hita.
Hæsta gildi koltvísýrings var 84 mmHg og hita
38,2°C. Rúmum tveimur tímum eftir svæfingu
var drengurinn fluttur inn á gjörgæslu eftir að
barkarenna var fjarlægð. Hann var þá í algjör-
lega stöðugu ástandi en þreyttur og syfjaður.
Olnboginn var settur í lið með einu handtaki
einhvern tímann snemma í ferlinu. Drengurinn
lá á gjörgæsludeild í tvo sólarhringa og útskrif-
aðist af sjúkrahúsinu eftir viku við góða heilsu.
Umræða: Illkynja háhiti er einn alvarlegasti
fylgikvilli sem upp getur komið í svæfingu.
Þetta er sjaldgæfur fylgikvilli, tíðni á bilinu
1/15.000-1/260.000 svæfinga. Það er mikil-
vægt að hafa á takteinum meðferðaráætlun við
illkynja háhita á öllum þeim stöðum þar sem
svæfingar fara fram. Á FSA var þegar til í einni
körfu allt sem til þurfti til fyrstu meðferðar.
Þeim undirbúningi má þakka hversu vel gekk
að koma meðferð í gang þrátt fyrir lítinn mann-
skap um miðja nótt.
S-13. Bráðaköll á Landspítalanum 1998
Katrín María Þormar, Oddur Fjalldal, Jón
Sigurðsson
Frá svœfingadeild Landspítalans.
Inngangur: Bráðaköll hafa verið í notkun á
Landspítalanum til margra ára. Þegar hringt er
í neyðarnúmer skiptiborðs 2222 er ákveðið
teymi ræst á tiltekinn vettvang með sérstöku
bráðakalli. Teymið skipa vakthafandi aðstoðar-
eða deildarlæknar á svæfingadeild, lyfjadeild
og skurðdeild. Bráðaköll hafa algeran forgang
og ber að nota einungis í neyð.
Efniviður og aðferðir: Gerð var úttekt á tíðni
og tegund bráðakalla á Landspítalanum árið
1998. Deildarlæknar á svæfingadeild skráðu
hjá sér þau bráðaköll sem þeir sinntu á þar til
gert eyðublað. Þar komu fram upplýsingar um
tímasetningu kalls, hversu lengi læknarnir voru
á staðinn, hversu lengi þeir dvöldu og hver
vettvangurinn var. Einnig hvort neyðarástand
var við komu læknis, hvaða ástæða var til
kallsins, hvort veitt var lífsbjargandi meðferð,
hvort sjúklingur var fluttur af vettvangi á aðrar
deildir eða hvort sjúklingur lést.
Niðurstöður: Alls voru skráð 67 bráðaútköll
árið 1998. Ljóst er að þau voru fleiri þar sem
einhver brestur var á skráningu. Utköllin skipt-
ust hlutfallslega jafnt á dagvinnu- og eftir-
vinnutíma. Meðallengd útkalls var 22 mínútur.
Flest útköll voru á bráðamóttöku, æðarann-
sókn, hjartadeild og hjartaskurðdeild. 164% til-
vika var neyðarástand við komu læknis á vett-
vang. I 24% útkalla var veitt lífsbjargandi með-
ferð. Sjúklingur var fluttur af vettvangi í 34%
útkalla en um andlát sjúklings á vettvangi var
að ræða í 25% útkalla. Flest útköll voru vegna
hjartastopps, sleglatifs eða sleglahraðtakts. I
Blóðprufur.
Dagur 1 1 1 1 1 2 3 6 30
Tími 04:20 05:00 06:00 08:00 20:00 08:00 - - -
Hbg/1 - - 115 112 116 118 - - 138
K mmól/1 - 6,7 4,7 4,2 3,8 4„0 - - -
pH 7,24 7,46 7,29 7,3 7,4 7,4 - - -
pO^ mmHg 152 278 135 131 88 89 - - -
sat 99 100 99 99 97 97 - - -
pCO^ mmHg 58,5 34,4 52 50 41 40 - - -
BE mmól/1 -2,6 1,7 -1,3 -0,4 1,2 1,1 - - -
CK (U/L) - - 2439 - 10030 7615 3560 1004 208