Læknablaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
293
námskeiðinu lauk og stóðu í 11,4 daga (staðal-
skekkja 2,2).
Alyktanir: Ekki er hægt að ráðleggja endur-
teknar sundlaugarferðir á stuttum tíma nema
gæði vatnsins séu tryggð með reglulegu eftirliti
og ræktunum á bæði kólíbakteríum og P. aeru-
ginosa.
Inngangur
Hlustarbólga (otitis externa) er bólga í hlust
og ytra eyra. Vegna hlykkjóttrar lögunar hlustar
og eins vegna þess að hún endar blint eru sýk-
ingar algengar en þær einkennast af kláða,
verk, útferð frá eyra og jafnvel hita (1). Undir
eðlilegum kringumstæðum eru bakteríur til
staðar í hlust 65% einstaklinga, aðallega loft-
sæknar (aerobic) bakteríur eða í 80% ræktana
en loftfælnar (anaerobic) í 3% ræktana og
blönduð flóra í 17% ræktana (2). Af loftsækn-
um bakteríum voru Staphylococcus epider-
midis, alfa-hemólýtískir streptókokkar og
diphteroíð tegundir algengastar (2). Hlustar-
bólgan getur haft brátt upphaf og staðið stutt
eða verið viðvarandi og erfið viðureignar sem
oftast ræðst af almennu ástandi sjúklings (3,4).
Skipta má hlustarbólgu í tvo flokka, afmarkaða
(circumscribed) og dreifða (diffuse). í fyrri
flokknum er sýkingin takmörkuð við hársekk-
ina í brjóskhluta hlustarinnar og oftast orsökuð
af Staphylococcus aureus. I síðari flokknum er
sýkingin dreifð um alla hlustina, með breyti-
legri hegðun, allt frá mildri auðmeðhöndlan-
legri sýkingu til alvarlegrar sýkingar með
dreifingu í aðliggjandi bein eða jafnvel inn í
höfuðkúpu, þá með óafturkræfum afleiðingum
(5). I þessu formi hlustarbólgu er orsökin oftast
bakteríusýking ásamt samverkandi orsakaþátt-
Table I. Temperature, germ count.free cloride and pH value in
sw'imming pool andJacuzzi three days after the sw’imming course.
Temperature (°C) Germ count / ml Free Cloride pH
Pool 30 8 2.5 8.3
Jacuzzi Reference 40 0 50 8.65
values - 100 1 7.2-8.0
um sem oftast tengjast mikilli vatnsböðun (6).
Bakteríumynstrið í hlustarbólgu tengist oft yfir-
vexti baktería sem finnast í hlust heilbrigðra
einstaklinga fyrir utan P. aeruginosa sem rækt-
ast oftast í hlustarbólgu sem eini orsakaþáttur-
inn en er sjaldan að finna í heilbrigðri hlust
(7,8). Það er umdeilt hvort P. aeruginosa berst
að utan eða sé ofvöxtur fyrirliggjandi baktería
en í einni rannsókn ræktaðist P. aeruginosa í
11% tilfella (5). Þó er talið líklegra að bakterí-
an berist oftar utan frá enda er P. aeruginosa al-
mennt ekki talin til eðlilegrar flóru hlustar (10).
Þessi rannsókn lýsir hlustarbólgufaraldri í
heimavistarskóla á Austurlandi meðan á og eft-
ir að börnin tóku þátt í tveggja vikna sundnám-
skeiði, þar sem þau fóru margsinnis á dag í
laugina, en þess á milli dvöldu þau einnig í
heitum potti á staðnum.
Efniviður
Tuttugu og sjö börn í heimavistarskóla á
Austurlandi, 12 stúlkur og 15 drengir, á aldrin-
um 10 til 14 ára tóku þátt í sundnámskeiði er
stóð í tvær vikur (mánudagur-föstudags). Þau
voru fjörutíu mínútur í lauginni í hvert skipti,
fjórum sinnum á dag en þess á milli dvöldu þau
töluvert í heitum potti. Laugin og heiti pottur-
inn voru utandyra. Þremur dögum eftir að nám-
skeiðinu lauk var laugin rannsökuð af fulltrúa
heilbrigðiseftirlits Austurlands með staðlaðri
sýnatöku (tafla I). Strax og hlustarbólgutilfell-
um meðal barnanna fjölgaði og grunsemdir um
faraldur vöknuðu voru öll bömin skoðuð af
tveimur læknum. Hlust og hljóðhimna voru
skoðuð með eyrnasmásjá og hljóðholsmæling
var gerð á öllum börnunum. Að auki var tekið
var strok úr báðum hlustum þeirra með tilliti til
bakteríuvaxtar. A grundvelli læknisskoðunar
voru einkenni flokkuð í: væg, miðlungs og
mikil en meðferðin var byggð á þessari flokkun
(tafla II). Þau börn sem höfðu væg eða miðl-
ungs einkenni fengu meðferð með hýdrókorti-
són acetati, oxýtetracýklíni og pólýmýxín-B
eyrnadropum (HTP, Pfizer), (fjórir dropar
Table II. Classification, microscopic fmdings, treatment and number of children ajfected with external otitis after swimming course
(HTP=hydrocortisone with terramycin and polymyxin B; BA=boric acid 3%; Al-padding=aluminiumsubacitrat padding; EAM=
external acoustic meatus)
None Mild Moderate Severe
Microscopic findings No symptoms Diffuse redness of skin Diffuse redness and inflammation of the skin EAM closed by inflammation
Treatment None HTP and BA HTP and BA Al-padding
Number affected 10 7 4 6