Læknablaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 32
308
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
gerviliðaaðgerð var 69 ár hjá báðum kynjum.
Fjöldi aðgerða jókst úr 94 árið 1982 í 221 að-
gerð 1996. Gerviliðaaðgerðum í mjöðm hefur
fjölgað stöðugt frá árinu 1982 og svo virðist
sem þörfinni sé enn ekki fullnægt. Hægt er að
reyna að spá fyrir um aðgerðarþörf á næstu ára-
tugum með því að taka tillit til ntannfjöldaspár
Hagstofu Islands fyrir Islendinga. Sé það gert
er hægt að spá því að aðgerðum fjölgi úr 221
árið 1996 í 250 árið 2005, í 300 árið 2015 og í
368 árið 2030 eða um tæp 2% á ári. Hér hefur
ekki verið tekið tillit til enduraðgerða en fjöldi
þeirra mun væntanlega einnig vaxa.
Alyktanir: Hér hefur verið gerð tilraun til að
meta þörf Islendinga fyrir gerviliðaaðgerðir
vegna frumkomnar slitgigtar í mjöðm næstu 30
árin. Aukning á ári um 2% jafngildir aukningu
sem nemur fjórum aðgerðum á ári að meðaltali.
Heilbrigðisyfirvöld þurfa að gera ráð fyrir
auknu fé til gerviliðaaðgerða jafnt og þétt á
næstu árum.
E-8. Nýir möguleikar í aftari festingum á
mótum höfuðs og hálshryggjar og háls-
og brjósthryggjar
Halldór Jóusson jr., Bogi Jónsson
Frá bœklunarskurðdeild Landspítalans
Inngangur: Ostöðugleiki milli höfuðs og
hálshryggjar (efri hálshrygg) annars vegar og
milli háls- og brjósthryggjar (neðri hálshrygg)
hins vegar getur valdið mænuklemmu með til-
heyrandi afleiðingum ef ekki er brugðist rétt
við. Þar sem svæðin eru líffærafræðilega mjög
ólík hefur mörgum aðferðum verið beitt í leit
að bestu lausninni. A síðari árum ruddu venju-
legar beinbrotaplötur sér til rúms sem góður
möguleiki, en vandamálið voru fyrirfram
ákveðin göt sem ekki pössuðu fyrir rétta stað-
setningu á öllum skrúfunum. Þá var farið að
nota stög með krókunt utan urn bogaþynnurnar,
en krókarnir losnuðu. Nú hafa komið á mark-
aðinn stög með skrúfufestingum sem gefa bæði
góðan styrk og örugga festingu, óháð gerð
sjúklings. Þar sem tækin hafa reynst vel við
mismunandi aðstæður teljum við nauðsynlegt
að skýra frá reynslu okkar og vekja athygli á
þessum nýja möguleika.
Efniviður og aðferðir: A eins og hálfs árs
tímabili hafa sex sjúklingar (ein kona og fimm
karlar, aldur 32-65 ára) verið meðhöndlaðir
með aftari spengingu í hálshryggnum, tveir C0-
C4 og fjórir C5-T3 vegna óstöðugleika. Ástæð-
an var óstöðugleiki eftir þynnunám (laminec-
tomia), bein- og mergbólga í efri hálshrygg og
brotaliðhlaup í þeim neðri. Notaðar voru tvær
tegundir af tækjum, AO Cervifix® og Olerud
Cervical®, en bæði tækin hafa fyrrgreindan
eiginleika. Skrúfurnar voru settar í höfuðkúpu,
liðhlass og liðbogarætur eftir líffærafræðileg-
um landamerkjum og með hliðargegnumlýs-
ingu. Hjá tveimur Bechterew sjúklingum með
brot í neðri hálshrygg var þessi festibúnaður
notaður eingöngu og ekkert að framan. Háls-
kragi var í sex vikur eftir aðgerð, stífur (Phila-
delphia) eftir efri- og mjúkur eftir neðri háls-
hryggjarspengingu. Auk mikilla verkja var
einn sjúklingur með einkenni langvarandi
mænuklemmu og tveir sjúklingar (Bechterew)
með þverlömun.
Niðurstöður: Bæði tækin reyndust mjög vel.
Það tók nokkurn tíma að fá rétta staðsetningu á
skrúfum annars vegar og síðan að tengja skrúf-
urnar við stögin hins vegar. Engin taugaversn-
un kom í kjölfar aðgerðanna og engin taugaein-
kenni eða blæðingar komu frá skrúfum. Sjúk-
lingurinn með langvarandi mænueinkenni varð
aftur sjálfbjarga og annar Bechterew sjúkling-
urinn varð vinnufær. Allar beinspangir hafa
gróið og engin merki eru um að skrúfur eða
stöp hafi losnað.
Ályktanir: Olerud Cervical® tækið reyndist
fjölhæfara. Þessi tegund festibúnaðar í aftan-
verðan hálshrygg er stórt framfaraskref í
möguleikum á meðferð sjúkdóma í bæði efri og
neðri hálshrygg. Þó bæði tækin hafi reynst vel í
meðförum þá er festitæknin með skrúfum í
raun mjög hættuleg.
E-9. Hálshnykkur. Faraldsfræðileg at-
hugun í Reykjavík 1974-1996
Ragnar Jónsson, Brynjólfur Mogensen
Frá bœklunarlœkningadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur
Inngangur: Tíðni hálshnykks í umferðarslys-
um hefur farið vaxandi. Árlegur kostnaður þjóð-
félagsins vegna afleiðinga hálshnykksáverka er
mjög hár. Tilgangur rannsóknarinnar var að
kanna faraldsfræði hálshnykkja í Reykjavík.
Efniviður og aðferðir: Gerð var tölvuúr-
vinnsla lögskráðra íbúa Reykjavíkur sem höfðu
leitað á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss
Reykjavíkur frá árunum 1974 til og með 1996
og voru greindir með hálshnykk. Upplýsingar
um íbúafjölda voru fengnar frá Hagstofu Is-
lands. Tíðnitölur eru miðaðar við 1.000 úr
hverju úrtaki.