Læknablaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 108
374
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Fræðslustofnun lækna
Námskeið í stjórnun
Með áherslu á hagfræði, rekstur og fjármálastjórn
Verður haldið á haustmisseri 1999.
Námskeiðið verður haldið föstudaga og laugardaga (5-6 helgar), alls 88 kennslustundir.
Tímasetning verður nánar auglýst síðar.
Efni:
Hagfræði (grunnatriði), 16 kennslustundir: Kristján Jóhannsson
Heilsuhagfræði, 12 kennslustundir: auglýst síðar
Fjármálastjórnun, 40 kennslustundir: Kristján Jóhannsson
Stjórnun, áætlun, skipulag, 20 kennslustundir: Hafsteinn Bragason
Gera verður ráð fyrir heimanámi og lýkur námskeiðinu með prófi.
Námskeiðið er metið til jafns við fimm einingar í háskólanámi.
Verð: Kr. 45.000,-
Námskeiðið er ætlað öllum læknum sem áhuga hafa á stjórnun en forgang hafa læknar í
stjórnunarstöðum og þeir sem lokið hafa grunnnámskeiði í stjórnun og rekstri sem haldið
var á vegum Fræðslustofnunar lækna síðastliðið haust.
í undirbúningsnefnd eru: Guðjón Magnússon, Jóhannes M. Gunnarsson, Kristján Jóhanns-
son, Ludvig A. Guðmundsson, Stefán B. Matthíasson og Sveinn Magnússon.
Frá Skurðlæknafélagi íslands
Sameiginlegt þing Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags ís-
lands verður haldið á Hótel Sögu (Radisson SAS) fimmtudaginn 8. apríl og föstudaginn
9. apríl næstkomandi.
Aðalfundur Skurðlæknafélags íslands verður þann 9. apríl.
Árgjöld
Til að einfalda innheimtu árgjalda 1998 og 1999 (kr. 3.500) stingur stjórnin upp á að notuð
verði greiðslukortaþjónusta. Félagar eru beðnir um að senda nafn kortafyrirtækis, kortanúmer
sitt og gildistíma til ritara Skurðlæknafélags íslands Gunnhildar Jóhannsdóttur, handlækn-
ingadeild Landspítalans, sími 560 1330, bréfsími 560 1329, netfang gunnhild@rsp.is
Stjórn Skurðlæknafélags íslands