Læknablaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 72
344
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Lög um gagnagrunn á heilbrigðissviði
Fyrirspurnir um gagnagrunn
og svör ráðherra
í byrjun febrúar lagði
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður fram á Alþingi
nokkrar fyrirspurnir til
heilbrigðisráðherra er
varða framkvæmd Iaga nr.
139/1998, um gagnagrunn á
heilbrigðissviði. Þingmaður-
inn óskaði eftir skriflegum
svöruin við allflestum fyrir-
spurnum og verður hér gerð
grein fyrir nokkrum svörum
ráðherra sem lögð hafa ver-
ið fram sem þingskjö! en
fyrirspurnirnar og svörin í
heild munu væntanlega birt-
ast á vefsíðu Alþingis.
I svörum ráðherra kemur
fram að á vegum ráðuneytis-
ins er verið að vinna að setn-
ingu ýmissa reglugerða er
varða framkvæmd laganna, en
því verki er hvergi nærri lok-
ið.
Ekki liggur enn fyrir hve
hátt gjald rekstrarleyfishafi
muni greiða fyrir rekstrarleyfi
eða vegna annars kostnaðar er
tengist starfrækslu gagna-
grunnsins. Ekki hefur verið
gengið frá fjárhagsáætlun
vegna starfs nefndar um gerð
og starfrækslu grunnsins og
engar kostnaðartölur liggja
fyrir.
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvenær verði
auglýst eftir umsækjendum
um rekstarleyfi gagnagrunns
Ekki liggur heldur fyrir
hvaða skilyrði verða sett um
varðveislu afrits af gagna-
grunninum.
Ráðherra hefur á hinn bóg-
inn skipað nefnd um gerð og
starfrækslu gagnagrunnsins
og eiga sæti í henni: Davíð
Þór Björgvinsson lagaprófess-
or sem er formaður, Jóhann
Ágúst Sigurðsson prófessor í
heimilislækningum og Ebba
Þóra Hvannberg lektor í tölv-
unarfræði. Varamenn eru Gest-
ur Jónsson hæstaréttarlög-
maður sem er varaformaður,
Torfi Magnússon forstöðu-
læknir á endurhæfinga- og
taugasviði Sjúkrahúss Reykja-
víkur og Anna Soffía Hauks-
dóttir verkfræðiprófessor.
í svari ráðherra við fyrir-
spurn um það hverjum, fyrir
hönd heilbrigðisstofnana, sé
ætlað að samþykkja afhend-
ingu upplýsinga sem unnar
eru úr sjúkraskrám, segir:
„Þeir, sem hcimild hafa til
að skuldbinda heilbrigðis-
stofnanir, hafa heimild til að
samþykkja afhendingu upp-
lýsinga sem unnar eru úr
sjúkraskrám til rekstrar-
leyfishafa. Heilbrigðisstofn-
anir skulu hafa samráð við
læknaráð og faglega stjórn-
endur viðkomandi stofnana
áður en gengið er til samn-
inga við rekstrarleyfishafa.“
Um það hvort samþykkis
verði leitað fyrir afhendingu
upplýsinga úr hverri einstakri
sjúkraskrá segir ráðherra:
„Ekki er gert ráð fyrir að leit-
að verði samþykkis fyrir af-
hendingu upplýsinga úr
hverri einstakri sjúkraskrá
U
I svari við fyrirspurn um
það hver sé eigandi upplýs-
inga sem skráðar eru eftir
sjúklingum og um sjúklinga í
sjúkraskrár vísar ráðherra
meðal annars í umræðu á Al-
þingi og umfjöllun fræði-
manna um lög um réttindi
sjúklinga og segir í niðurlagi
svarsins: „Með vísan til þess
sem að framan greinir er
enginn eigandi upplýsinga
sem skráðar eru eftir sjúk-
lingum eða um sjúklinga í
sjúkraskrár, samkvæmt lög-
fæðilegri merkingu hug-
taksins, en sjúkrastofnanir
og sjálfstætt starfandi heil-
brigðisstarfsmenn bera hins
vegar ábyrgð á varðveislu
þeirra.“
Úr svari ráðherra við fyrir-
spurn um hvort eyðublaði til
úrsagnar úr gagnagrunni verði
dreift á hvert heimili eða til
allra landsmanna er ekki unnt
að lesa að svo verði gert. Ráð-
herra ræðir einungis um fyrir-
liggjandi drög að upplýsinga-
bæklingi sem dreift verði til
heilbrigðisstofnana, sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfs-
manna og fleiri aðila.
Sérstaka athygli vekur svar
ráðherra við eftirfarandi fyrir-
spurn: „Hefur lœknir skýlaus-
an rétt til að hafna því að upp-
lýsingar sem frá honum og
sjúkingi hans eru komnar,
hafa verið fœrðar í sjúkraskrá
og eru hluti af trúnaðarsam-
bandi lœknis og sjúklings fari
í gagnagrunn á heilbrigðis-
sviði? “
Svar ráðherra er svohljóð-