Læknablaðið - 15.04.1999, Blaðsíða 70
342
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Umræöa og fréttir
Formannsspjall
s
Imynd lækna
í samskiptaferlinu skil-
greina menn gjarnan „ímynd“
sem safn tilfinninga sem mót-
takandi boðskaps upplifir.
Ýmsar skilgreiningar eru til á
hugtakinu almannatengsl. I
flestum myndum er um að
ræða einhvers konar gagn-
kvæma aðlögun félags eða
fyrirtækis annars vegar og við-
skiptavina eða almennings
hins vegar.
Imynd læknisins er skýr.
Hlutverk læknisins er að
lækna, Ifkna, fræða og rann-
saka. Hlutverk læknisins er
starf hans, aðalsmerki og
hornsteinn ímyndar hans.
Siðareglur lækna greina frá
hlutverki þeirra, ábyrgð sem
starfi þeirra fylgir og þær
kveða á um hinar siðferðilegu
kröfur sem læknisstarfinu
fylgja og sem læknum ber að
uppfylla, vilji þeir teljast
traustir og trúverðugir.
Siðareglur lækna setja þeim
meginreglur og markmið. Þær
kveða á um starfsaðferðir
lækna. Þær byggja á fag-,
þekkingar- og siðferðilegum
grunni. Læknum ber að varð-
veita ímynd sína og gæta þess
í hvrvetna að hún megi vera
góð. Því er lækninum mikil-
vægt að hafa í heiðri þá þætti
sem skapa hlutverk hans og
um leið starf. Hann verður
jafnframt að vera grandvar í
öllu lrferni og víkja ekki af
braut eðlilegra og heiðarlegra
vinnubragða. Lækninum er
mjög mikilvægt að uppfylla
þær siðferðilegu kröfur sem
læknisstarfinu fylgja og sem
kveðið er á um í siðareglum
lækna. Honum er jafn mikil-
vægt að virða alfarið ákvæði
um samband sitt við sjúklinga
eins og siðareglur lækna
kveða á um. Þá ákvarðast
ímynd læknisins mjög af því
trausti sem hægt er að bera til
læknastéttarinnar í heild sinni.
Traust, tiltrú og virðing fyrir
læknastéttinni allri er afar
miklvæg til að varðveita
ímynd læknisins og því ber
læknum að virða alfarið
ákvæði um samskipti lækna
eins og þau eru skráð í siða-
reglur lækna og læknum sæm-
ir aðeins efnisleg rökræða,
sett fram af virðingu og um-
burðarlyndi þegar þá greinir á
og þeir takast á um ágreining
sinn fyrir opnum tjöldum.
ímynd læknasamtakanna er
óskýrari en læknisins sem fag-
manns. Læknasamtökin hafa
sem stéttarfélag mótað sér
ákveðna ímynd í hugum al-
mennings í gegnum tíðina.
Góð almannatengsl læknasam-
takanna verða að vera í beinni
snertingu við starf, ímynd og
leiðtogahlutverk læknisins.
Læknum ber að taka þátt í al-
mennri umræðu um heilbrigð-
is- og velferðarmál með fag-
legu starfi sínu og með frum-
kvæði.
í ljósi þeirrar umræðu sem
orðið hefur á undanförnum
misserum um einstaka þætti í
heilbrigðiskerfinu hafa lækna-
samtökin þurft að tileinka sér
nauðsynlega tæknilega þekk-
ingu og kunnáttu er varðar nú-
tíma almannatengsl.
Með nútíma almanna-
tengslum er hægt að hjálpa til
við að skapa ákveðna ímynd
og því geta þeir sem vilja
koma sínum hagsmunamálum
á framfæri gert það í skjóli
fjárhagslegra burða. Þau leik-
tjöld sem almannatengsl geta
skapað falla fljótt ef innihald
skortir í boðskap leikaranna.
Sterk jákvæð ímynd lækna
og læknasamtakanna er nauð-
synleg. Gildir þar einu hvort
Formannaráðstefna
s
Læknafélags Islands
Formannaráðstefna LI 1999 verður haldin föstudaginn 14.
maí næstkomandi í Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Dagskrá ráð-
stefnunnar verður með hefðbundnu sniði, þar sem stjórn og
embættismenn félagsins niunu kynna starfsemi þess. Auk
þess verður fjallað sérstaklega um vinnutímatilskipun ESB
og fyrirsjáanlega aðlögun íslenskra lækna að henni.
Þá verður kynnt starf stjórnar LI að almannatengslum.
Laugardaginn 15. maí klukkan 9-12 er fyrirhugað að halda
málþing sem hlotið hefur vinnuheitið „Ný vísindi - eru
breyttir tímar í vændum í vísindarannsóknum á mönn-
um?“