Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Side 39
37
Guðmundur Björnsson
FYRSTU AUGNSKURÐIR Á LANDAKOTSSPÍTALA
Augnsjúklingar Björns Ólafssonar og Andrésar
Fjeldsted á Landakoti 1902—1923.
Allt frá því að Landakotsspítalinn var
stofnsettur haustið 1902 hafa augnlækning-
ar verið snar þáttur í starfsemi sjúkrahúss-
ins og má segja, að þar hafi frá fyrstu tíð
verið miðstöð augnskurðlækninga á íslandi.
Augnlæknar hafa alltaf starfað við sjúkra-
húsið og flestar meiriháttar augnaðgerðir
hér á landi, hafa verið framkvæmdar þar.
Alls hafa starfað þar 11 augnlæknar og
lengst allra Kristján Sveinsson, er hóf þar
starf 1933 og lét af störfum fyrir aldurs-
sakir árið 1971.
Formleg augndeild var þó ekki stofn-
sett við spítalann fyrr en árið 1969 og var
Bergsveinn Ólafsson fyrsti yfirlæknir henn-
ar. Þegar sérmenntun verðandi augnlækna
hófst á augndeildinni og kennsla lækna-
nema í augnsjúkdómafræði fluttist að
Landakoti, var stofnuð þar göngudeild
haustið 1973.
Vegna þáttar Landakotsspitala í augn-
lækningum hér á landi í þrjá aldarfjórð-
unga, þykir tilhlýðilegt á þessum tímamót-
um í sögu spítalans að geta að nokkru
þeirra aðgerða, sem fyrstu augnlæknar
spitalans framkvæmdu þar, enda þótt heim-
ildir séu af skornum skammti.
IJJÖRN ÓLAFSSON.
Fyrsti augnlæknir á Landakoti var Björn
Ólafsson frá Ási í Hegranesi f. 11. apríl
1862. Hann útskrifaðist úr Læknaskólan-
um 1888 og nam siðan augnlæknisfræði í
Kaupmannahöfn næstu tvö ár. Hann var
fyrstur allra islenzkra lækna að leggja
stund á sérgrein. Árið 1890 gerðist hann
héraðslæknir á Akranesi, sem þá var auka-
læknishérað.
Jafnframt héraðslæknisstörfum stundaði
hann augnlækningar og gerði á Skipa-
skagaárum sínum margar meiriháttar
augnaðgerðir, er báru hróður hans um
landið.
Til Reykjavíkur flyzt hann í ársbyrjun
1894 og stundar augnlækningar nær ein-
göngu eftir það með 2000 króna árlegum
styrk úr landssjóði, en skilyrði fyrir
styrknum var, að hann annaðist kennslu í
augnsjúkdómum við Læknaskólann og ferð-
aðist á sumrum með strandferðaskipum
kringum landið til þess að almenningur
ætti sem hægast með að ná til hans.
Eftir að Björn sezt að í Reykjavík mætti
ætla að aðstaða hans til skurðlækninga
Fig. 1 Björn Ólafsson, augnlæknir
(ophthalmologist).