Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Blaðsíða 43
41
lituhögg og er þeirri aðgerð beitt enn í
dag við þennan kvilla.
Björn gerir að minnsta kosti 19 drer-
aðgerðir á Landakoti og gerir oftast ex-
tractio lentis linearis a.m. von Graefe, sem
þá var nær eingöngu beitt í nágrannalönd-
um og allt fram á fjórða eða fimmta tug
aldarinnar.
Ekki hefur greinarhöfundur fundið að
Björn hafi gert nema eina skjálgaðgerð á
inniliggjandi sjúklingi á sjúkrahúsinu,
enda voru slíkar aðgerðir sjaldgæfar á
þeim árum, bæði hér og erlendis. Aðgerðin
var gerð 21. jan. 1904 á 8 ára gömlum
dreng í Reykjavík. Var hann með inn-
hverfa skiálg á hægra auga og starfræna
sjóndepru. í klóróformsvæfingu var gerð-
ur sinaskurður á innri réttilvöðva skakka
augans cg voru augun nær réttstæð eftir
aðgerðina. Sjá 8. sögu.
Brottnám auga var gert fyrst 27. febr.
1903. Sextíu ára bóndi frá Skálholti leit-
aði til Björns vegna mikilla verkja í auga,
sem var blint. Var hann lagður inn á
spítalann og augað tekið. Sjá 9. sögu.
Frá upphafi hefur Landakot verið nær
eina athvarfið, ef alvarleg augnslys hafa
borið að höndum hér á landi Fyrsta sjúk-
ling með meiriháttar slys á auga bar að
garði 25. júlí 1903. Var það 14 ára dreng-
ur frá Fossnesi í Gnúpverjahreppi. Hafði
hann verið að járna hest og flís hrokkið
í auga. Hafði hún farið i gegnum glæru og
augasteinn varð ógagnsær. Var augasteinn-
inn numinn brott i þeirri von að flisin
leyndist þar, en það reyndist ekki vera
og var augað þá strax tekið og fannst þá
járnflís i glervökvanum. Sjá 10. sögu.
Björn gerði síðustu aðgerð sína á Landa-
koti 14. sept. 1909, var það ný glákuaðgerð,
sem áður er frá sagt. Skömmu síðar veikt-
ist hann skyndilega og dó 19. okt. 1909
aðeins 47 ára gamall.
Við hið sviplega fráfall Björns er enginn
til að taka við störfum hans. Guðmundur
Hannesson, sem varð héraðslæknir í
Reykjavík árið 1907 cg starfar jafnframt
á Landakotsspítala hefur að vísu fengizt
við augnlækningar á Akureyri, samhliða
héraðs- og sjúkrahússtörfum, en er of önn-
um kafinn við almenn læknisstörf og
kennslu að hann geti bætt við sig störfum
Björns.
Fig. 3 Andrés Fjeldsted, augnlæknir
(ophthalmologist).
í sjúklingaskrá Landakotsspítala er þess
ekki getið að Guðmundur hafi gert þar
augnaðgerð.
ANDRÉS FJELDSTED.
Það líður þó ekki nema rúmt misseri frá
andláti Björns unz nýr maður tekur við
störfum hans, Andrés Fjeldsted, frá Hvít-
árvöllum, þá nýbakaður augnlæknir. Sezt
hann að í Reykjavík vorið 1910.
Meðan hann var héraðslæknir í Þing-
eyrarhéraði 1902—1907, gerir hann nokkra
augnskurði. Er greint frá þeim í ársskýrsl-
um til landlæknis. Hann gerir þar a.m.k.
8 glákuaðgerðir, 2 dreraðgerðir, tekur
auga og gerir glæruskurð (sectio Sæmisch)
vegna skriðsæris á glæru. Mun Andrés
hafa kynnt sér nokkuð augnlækningar, er