Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1978, Qupperneq 84
82
ar, þegar bindigetan er trufluð. Hér er
bindigetan í serum sjúklingsins borin sam-
an við bindigetu í serum, sem inniheldur
eðlilegt magn af Ti og TBG. Normalgildi
hér eru 0,88—1,11 (án eininga, þar sem
þetta er hlutfall milli gildanna).
ÁHRIF HORMÓNS Á LÍKAMANN.
Þau er hægt að mæla á óbeinan hátt
t.d. með efnaskiptamælingu (BMR). Þessi
mælingaraðferð naut mikilla vinsælda um
árabil, e.t.v. vegna þess að ekki var um
aðrar að velja, til þess að staðfesta kliniskt
mat. Enda er það svo, að þegar um thyro-
toxicosu er að ræða, þá eru „efnaskiptin“
nánast alltaf hækkuð og þegar um hypo-
thyrosu er að ræða, mælast þau nær alltaf
lág. Ekki er mælingaraðferðinni um að
kenna, þótt læknar hafi á stundum lagt
meira upp úr henni en klinisku mati. Þessi
mæling er sjaldan gerð nú, en á ekki skil-
ið þá óvirðingu sem henni er sýnd.
Reflex relaxationstími.
Þessi tími er mælanlega lengdur hjá
sjúklingum með hypothyrosu og til er tæki,
sem mælir hann og skrásetur (photomoto-
meter). Tíminn er styttur í thyrotoxicosu,
en ekki er nægjanlega mikill munur á því
og hjá heilbrigðu fólki, til þess að mæling
sé markverð. í þessu sambandi má geta
þess, að vanur læknir getur metið þennan
tíma með mikilli nákvæmni, er hann at-
hugar upphandleggs- eða öklareflex.
Cholesterol
Cholesterol hækkar gjarnan við hypo-
thyrosu en mæling á því hefur ekki þýð-
ingu lengur við greiningu á sjúkdómnum.
Á þetta er þó minnst til að minna á að at-
huga möguleika á hypothyrosu hjá sjúk-
lingum, sem hafa hátt cholesterol.
THYROTROPIN RELEASING
HORMON, TRH.
Árið 1969 tókst að einangra nýjan hor-
mon, sem framleiddur er í miðheila (hypo-
thalamus) og verkar á heiladingul, fram-
leiðslu hans og útskilnað á TSH. Þessi nýi
hormon er tri-peptid og nefndur Thyro-
tropin Releasing Hormon. Ágæt yfirlit yfir
verkanir TRH hafa nýlega birzt (1, 7,8).
TRH er nú til í upplausn til innspýting-
ar og hefur verið talsvert notað til próf-
unar á sjúklingum. Þegar TRH er gefið
heflbrigðu fólki í æð, verður hækkun á
TSH, sem nær hámarki á 20—30 mín.
Þessi hækkun getur orðið yfir 320% (1).
Á þessu byggist TRH-stimulation.
Byrjað er að mæla TSH, þá gefnar 200
einingar af TRH í æð og blóðprufur tekn-
ar í TSH-mælingar í nokkur skipti á viss-
um fresti, venjulega eftir 20 og 60 mín.
Sjúklingar með primera hypothyrosu hafa
hækkað TSH í blóði. Við TRH-stimulation
verður hækkunin enn meiri og stendur
lengur en hjá heilbrigðu fólki. (mynd 3).
TSH
100 - TRH INNDÆLING
50 -
40 -
30 - / HYPOTHVROSA
20 - /
10 - 5 - EÐLILEGT
THYROTOXIKOSA
0 20 40 60 min.
MYND 3 TRH ÖRVUN
Sé Ti lækkað og TSH hækkað er það
nóg til að greina primera hypothyrosu og
því óþarfi að gera TRH-stimulation hjá
þeim sjúklingum.
Hins vegar getur TRH stimulation hjálp-
að til að greina milli sekunderar hypothy-
rosu (t.d. vegna æxlis í heiladingli) og
terierar hypothyrosu (vegna sjúkdóms í
miðheila).
Þá er með TRH-stimulation stundum
hægt að greina primera hypothyrosu á byrj-
J