Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25
23
VÆGUR KVÍÐI OG ÞUNGLYNDI
Samanburður á slembiúrtaki
og þeirra, sem leita til læknis.
Höeni Óskarsson
Suðurgata 12, Reykjavík.
Tíðni kvíða og þunglyndis er talin
hærri hjá fólki, sem leita til heimilis-
lækna, f.o.f. vegna líkamlegra kvilla, en
hjá þeim, sem heilbrigðir eru. Fá sjúkl-
ingamir sjaldnast geðgreiningu né með-
ferð. Svipað má segja um innlagða sjúkl-
inga. Könnuð var tíðni vægs (subclinic-
al) þunglyndis og kvíða m.t.t. greiningar
og meðferðartíðni.
Aðferð: Tveir hópar voru bornir saman
m.t.t. kvíða og þunglyndis. í hópi A voru
546 einstaklingar, sem leituðu til heim-
ilislæknis á 10 heilsugæslustöðvum. í
hópi B voru 2.261 einstaklingar, slembi-
úrtak úr þjóðskrá, en einungis var haft
bréflegt samband við þá. Notaður var
Hospital Anxiety and Depression Scale
(HAD); í honum eru 14 spumingar um
kvíða og þunglyndi, sem viðkomandi
svarar sjálfur um leið og hann merkir
svör inn á listann. E 15
Niðurstaða: Hjá A voru marktækt
fleiri tilfelli mikils kvíða (p<0.001) og
væes kvíða (p<0.01) en hjá B. Tíðni þung-
lyndistilfella var svipuð, en tíðni vægs
þunglyndis var hærri (p<0.05) hjá A.
Meðaltalsgildi kvíða var hærra hjá A
(p<0.001), sömuleiðis meðaltalsgildi
þunglyndis (p<0.01).
Tíðni greiningar og meðferðar hjá þeim,
sem höfðu klíniskan kvíða eða þunglyndi
var mjög lág, og enn lægri hjá þeim, sem
höfðu vægan (subclinical) kvíða og þung-
lyndi.
Ályktun: Vægur kvíði og vægt þung-
lyndi er hærra hjá þeim einstaklingum,
sem leita læknis en hjá heilbrigðum og
greinist sjaldan. Þýðing þessa í klíniskri
læknisfræði er mikilvæg, því þessi
vandamál, fyrir utan það að hafa mót-
andi áhrif á hegðun sjúklinga, er þeir
leita læknis, hafa áhrif á upplifun og
túlkun einkenna og þar með á meðferð-
arheldni og gang sjúkdóms.
STREPTOCOCCUS PYOGENES - í NÝRRI SÓKN.
Skúli Ounnlaupsson. Karl G. Kristinsson, Ólafur
Steingrímsson. Sýklafræðideild Landspítalans
Streptococcus pyogenes er meðal algengustu
meinvaldandi baktería, en hún er ein aðalorsök háls-
bólgu og húðsýkinga. Síðkomnir aukakvillar eins og
glomerulonephritis og gigtsótt eru háðir ákveðnum M -
próteingerðum á yfirborði þessara baktería. Um og eftir
1987 varð meira vart við alvarlegar sýkingar af hennar
völdum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi aukn-
ing hefur verið tengd aukningu á M - próteingerð 1.
Stofngreining með T - próteingerð er mun einfaldari en
með M - próteingerð og gefa einnig faraldsfræðilegar
upplýsingar. Markmið rannsóknarinnar var að kanna
tíðni einstakra próteingerða auk þess að kanna faralds-
fræði þessara baktería hér á landi.
Farið var yfir ræktunaniðurstöður sýklafræðideildar
Lsp frá árinu 1986 til 93. T- próteingerð hluta þeirra
stofna, sem frystir höfðu verið, var könnuð með
kekkjunarprófi eftir ræktun í Todd Hewitt að forskrift
Efstratiou. Notuð voru T - prótein mótefni frá Chem-
opol, Pragh. T - próteingerð var könnuð á 384 stofnum
frá 1991-1993 og niðurstöður bornar saman við
niðurstöður frá árunum 1988-89. Auk þessa var T -
próteingerð þessara baktería athuguð hjá öllum stofnum
úr blóði á árunum 1989-93. Þrjátíu og einn stofn var
sendur til Bretlands (Hospital Infection Laboratory,
Central Public Health Laboratory, Colindale, London),
til greiningar á M - próteinum. Töluverður munur var á
tíðni einstakra T - próteingerða milli ára.
E 16
Eftirfarandi niðurstöður fengust úr kekkjunarprófum:
1988-9 1991 1992 1993
T-protein N (%) N (%) N (%) N (%)
T1 T4,28 T3,13,B3264 T5,11,12,27,44 T2.8.25 T6 Ógreindir 64 (30) 48 (23) 41 (19) 31(15) 22 (10) 2(1) 4(2) KD 116(70) 3(2) 37 (22) 5(3) 0 3(2) KD 61 (62) 13(13) 18(18) 6(6) 0 0 35 (29) 21 (18) 38 (32) 10 (8) 16(13) 0 0
Alls 212 165 99 120
Allir stofnar (31), sem sendir voru til Bretlands til
ákvörðunar á M-próteinum, höfðu hliðstæð T - prótein
(Mx,Tx; My,Ty o.s.fr.) nema einn. Hann var af stofn-
gerð Ml,13. Líkur benda til þess að sveiflur á algengi
sýkinganna síðastliðin ár tengist breytingum á stofn-
gerðum.
Athygli vekja sveiflur á algengi S. pyogenes síðustu
árin. Heildarfjöldi greininga á Sýklafræðideild Lsp voru:
1986, 732; 1987, 895; 1988, 975; 1989, 584; 1990,
1277; 1991, 1483; 1992, 887; 1993, 2057.
Tilsvarandi sveiflur urðu á tilkynningum til Land-
læknisembættisins á því árabili sem um ræðir. Árið 1993
voru yfir 6000 sýkingar tilkynntar til embættisins.