Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Síða 30

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Síða 30
28 LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25 SLAGBILSÓHLJÓÐ ALDRAÐRA Á E 25 BRÁÐASJÚKRAHÚSI Tryggvi Þ. Egilsson, Torfi F. Jónasson, Gizur Goitskálksson, Pálmi V. Jónsson. Rannsóknadcild og lyflækningadeild Borgarspítala, ReykjavQc. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta faraldsfræði, orsakir og næmi og sértækni klinisks mats slagbils hjartaóhljóða aldraðra. Rannsóknin tók til 101 sólarhrings á tímabilinu febrúar 1993 lil febrúar 1994. Efniviðurinn var allir þeir sem voru 80 ára á innlagnarárinu eða eldri og voru innlagðir bráu á lyflækningadcild Borgarspítalans. 16 sjúklingar (sj.) voru útilokaöir frá rannsókninni vegna áður þekktra hjartalokusjúkdóma. Auk þess náöist ekki að skoða 44 sj. Deildarlæknir skoðaði og hjanahlustaði 153 sj., meðalaldur þeirra var 85 ár, 60 karlar og 93 konur. f framhaldi voru þeir sem liltækir voru hlustaðir af tveim sérfræöingum og síðar hjartaómskoöaöir. Könnuð var næmi og sértækni í greiningu óhljóðanna svo og grcining skv. hjartaómskoðun. Beitt var tvívíddar- og Dopplerómun og var ósæðarþröng skilgreind scm > 30 mmHg þrýstifall yfir ósæðarloku. Deildarlæknir greindi slagbilsóhljóð í 80 sj., þ.e. 52% hlustaðra. Mcðalaldur þcirra var 86 ár, 24 karlar og 56 konur. Niðurslöður hjarlaómskoðunar 57 sj. með slagbilsóhljóð eru sýndir í töflu 1 (sumir þeirra höfðu meira en einn lokusjúkdóm). Tafla 1 Fjöldi í%ómaðra') Hám.þrýstifall (mmHg) dreifins meðalrnl Óskölk.(þrf.<30mmHg) 44(77) 0-29.8 * GráÖa 1 19 Gráða 2 21 Gráða 3 3 Gráöa 4 1 Ósæðarþröng 8(14) 30-71 50 Væg (þrf.30-49mmHg) 4(7) 30-45 37 Mikil (brf>50 rnmHg 4(7) 53-71 63 Míturlokuleki 25(44) Gráöa 1 19 Gráða2 4 Gráða 3 2 Gráða4 0 *(Sjö sj. með ósæðalokukölkun höfðu yfir 20 mmHg þrýstifall). Næmi og sértækni kliniskrar skoðunar mismunandi lækna til greiningar lokusjúkdóma er sýnd í töflu 2. Tafla 2 Niðurstöður hjartaómskoðunar ósæðarlkölk.ósæðarbr.míturleki Deildarl. Næmi 54% 62% 44% Sért. 85% 73% 69% öldrunarl. Næmi 55% 100% 24% Sért. 92% 77% 90% Hjartal. Næmi 56% 87% 52% Sért. 92% 71% 97% Niöurstöður rannsóknarinnar benda til þess að slagbilsóhljóð séu afar algeng meðal aldraðra. Ósæðarlokukölkun er algengasta orsökin en mílurlokuleki og ósæðarþröng eru einnig algeng. Klinisk flokkun þeirra virðist óáreiðanleg nema til komi hjartaómun. ^ Brjóstverkir á heilsugæslustöð- sjúkdómsgreiningar og afdrif Alma Eir Svavarsdóttir, Magnús R. Jónasson, Gunnar Helgi Guðmundsson, Katrín Fjeldsted Heilsugæslustöðin í Fossvogi, Reykjavík. Bijóstverkur er einkenni sem getur verið merki um lífshættulegan sjúkdóm en einnig sárasaklaust fyrirbæri. Er því mjög mikilvægt að undirrót verkjarins sé rétt greind og að viðeigandi meðferð sé beitt. Hvatinn að þessari rannsókn er áhugi höfunda á að vita hvort sú tilgáta þeirra sé rétt að þeir sem leita með þessa kvörtun til heilsugæslulækna í þéttbýli, séu oftar en ekki með meinlausa sjúkdóma. Þetta er afturvirk rannsókn þar sem skoðaðar voru sjúkraskrár sjúklinga sem leituðu til Heilsugæslu- stöðvarinnar í Fossvogi árin 1989 og 1990 og kvörtuðu um bijóstverki. Þetta voru 189 sjúklingar sem komu í 193 skipti vegna þessarar kvörtunar. Við litum á hvemig þessir sjúklingar voru rannsakaðir, hvaða sjúkdómsgreiningar og úrlausnir þeir fengu og afdrif allra þeirra voru könnuð í sept. 1993. Stoðkerfissjúkdómar reyndust vera ástæða einkennanna í tæplega 50% tilvika (93 sjúklingar). Hjartasjúkdómar voru ástæða kvörtunarinnar í 17,9% dlfella (34 sjúklingar) og þar af voru 2,1% með greininguna brátt hjartadrep. Ógreindir bijóstveridr voru 9,5% (18 sjúklingar). Við athugun á skoðun og rannsóknum á sjúklingum með stoðkerfissjúkdóma má sjá að sjúkdómsgreiningin er að mestu byggð á kh'nískri skoðun þar sem sjúkrasagan skiptir miklu máli og voru afdrif sjúklinganna mjög góð því 93% þeirra taldi sig einkennalausa þremur dl fjómm árum síðar. Af þeim sjúklingum sem voru greindir með hjartasjúkdóm sem undirliggjandi orsök brjóstverkjanna töldu sex sig vera einkennalausa þegar afdrif voru könnuð. Flestir þeirra sjúklinga sem fengu greininguna - ógreindir bijóstverkir - voru einkennalausir þegar könnuð voru afdrif eða 16 af 18 sjúklingum. Hvað varðar meðferð þá voru 83% af sjúklingunum meðhöndlaðir af heimilislæknum. Ástæða til innlagnar var hjá 18 sjúklingum og álit annars sérfræðings var fengið fyrir 15 sjúklinga. Niðurstöður okkar studdu því þann grun er settur var fram í upphafi. Það er álit okkar að vel hafi tekist til með greiningar og úrlausnir þeirra sem leituðu vegna bijóstverkja til heilsugæslustöðvarinnar hvort sem um alvarlega eða meinlausari sjúkdóma var að ræða.

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.