Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 31

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 31
Gynera Nýja getnaðarvarnartaflan frá SCHERING sem vert var að bíða eftir Gynera (Schering, 870100) TÖFLUR; G 03 A A 10 R O Hver tafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 30 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Eiginleikar: Hormónablanda til getnaðarvarna með lágum östrógenskammti. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi. Þau umbrotna í lifur að hluta til við fyrstu umferð. Aðgengi etinýlöstradíóls er um 45%, en gestodens um 80%. Útskiljast með þvagi og saur. Lyfið kemur í veg fyrir getnað með því að hindra egglos, hindrar festingu eggs við legslímhúð og breyta eiginleikum slíms í leghálsopi. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa lyfið konum með æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Væqar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, migrene, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvíld. Varúð: Konum, sem reykja, er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícín geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á 1. degi tíðablæðinga, og er þá tekin ein tafla á dag í 21 dag samfleytt á sama tíma sólarhringsins. Síðan er 7 daga hlé áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður. Fyrstu 14 dagana, sem töflurnar eru teknar, veita þær ekki örugga getnaðan/örn og þarf því að nota aðra getnaðarvörn þann tíma. Þetta gildir aðeins um fyrsta mánuð meðferðarinnar. Pakkningar: 21 stk. x 1 (þynnupakkað); 21 stk. x 3 (þynnupakkað). Skráning lyfsins er bundin því skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð. Stefán Thorarensen Sídumúla 32 l08Revkjavík Sími 91-686044 SCHERING

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.