Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Blaðsíða 44
40
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25
SÝKINGAR AF VÖLDUM PENSILlN ÓNÆMRA
PNEUMOCOCCA HJÁ FULLORÐNUM Á BORGAR-
SPÍTALA 1992 OG 1993.
Pétur B. Júlíusson1, Már Kristjánsson1, Karl G.
Kristinsson2, Stninn Jónsson1. Lyflækningadeild
Borgarspítala1, sýkladeild Landsspitala2.
Ónæmi pneumococca fyrir sýklalyfjum er
vaxandi vandamál. Vfir 80% pensilín ónæmra
pneumoccocca (PÓP) eru fjölónæmir (FÓP). Sýkingar
af völdum fjölónæmra pneumococca hafa veriö mikið
vandamál hjá börnum en síöustu árin hefur einnig
boriö á slíkum sýkingum hjá fullorönum.
Viö könnuöum tíöni sýkinga af völdum PÓP á
BSP á árunum 1992 og 1993, kllnlsk sérkenni og
afdrif. Fyrir hvern sjúkling meö sýkingu af völdum
PÓP voru fundnir 2 samanburöarsjúklingar meö
sýkingu af völdum pensilln næmra pneumococca
(PNP). Skoöaöar voru sjúkraskrár, spurningalistar
lagöir fyrir alla sjúklinga á lífi og nefkoksstrok tekið.
Leiörétt var fyrir kyni, aldri, sjúkdómsgreiningu og
tíma sýkingar.
Helstu niöurstööur má sjá I eftirfarandi töflu:
FÓP FÓP PW
F pldi sjíklinqí 13 2 137
Lungnabólga Id 2 23 kontról
Bfrkjjbólga Ehkennahus brrí 2 1 0 3 kontról
Jókv. blóírokt/ híiUirfiöldi bÚHrŒktanna 0/5 0/1 8/19
Látnir 3 1 4
1992 ræktuöust ónæmir pneumoccoccar frá
16% sjúklinga meö pneumococca sýkingar en 1993
ræktuöust þeir frá 6%. Ónæmir pneumococcar
ræktuöust ekki úr blóöi þeirra sjúklinga sem voru
meö sýkingar af völdum FÓP eöa PÓP en 42%
blóöræktana voru jákvæöar hjá kontról-sjúklingum
sýktum meö pensilín næmum pneumococcum. FÓP
ræktuöust úr 12 hrákasýnum og 1 fleyöruholsvökva-
sýni en PÓP ræktuðust úr 2 hrákasýnum.
Niöurstööur okkar sýna aö um 10%
pneumococca sýkinga á tímabilinu voru af völdum
pensilín ónæmra pneumococca. Flestir þeirra (81%)
voru fjölónæmir. Þær viröast einnig benda til þess aö
ónæmir pneumococcar hafi minni vírulens en pensilín
næmir pneumococcar.
__ VIRKNI PENICILLINS, RIFAMPINS OG
50 SULFADIAZINS GEGN NEISSERIA
MENINGITIDIS.
Helga Erlendsdóttir. Kristín E. Jónsdóttir, Bryndís
Sigurðardóttir, Ólafur Már Björnsson, Ólafur
Steingrímsson, Sigurður Guðmundsson.
Sýkladeild og lyflækningadeild Landspítalans og
Háskóli Islands.
Inngangur. Meningókokkar hafa löngum verið
taldir alnæmir fyrir penisillíni. Erlendis hefur hins
vegar nýlega farið að bera á verulega minnkuðu
næmi gegn þessu kjörlyfi. Skert næmi er skilgreint
sem MIC (lágmarks heftistyrkur) >0.1 pg/ml. Á
Spáni hefur þessum stofhum fjölgað úr 0.4% árið
1985 í 41.6% árið 1991. Ónæmi þessara stofna er
ekki vegna myndunar B-lactamasa heldur vegna
minni sækni sýklalyfsins í penisillínbindiprótein 2,
svipað og hjá penisillínónæmum pneumókokkum.
Fjölónæmir pneumókokkar hérlendis eru líklega
upprunnir á Spáni, og því forvitnilegt hvort um
meningokokka væri svipað farið. Einnig var næmi
rifampins kannað, en það er oft notað í
forvamarskyni gegn meningókokkasýkingum. Allt
að 14% ónæmi gegn rifampini hefur verið lýst
annars staðar. Ennfremur var virkni sulfadíazíns
könnuð en súlfaónæmi hefur verið notað sem
faraldursfræðilegt merki hjá meningókokkum.
Efniviðurinn var 200 meningókokkastofnar
sem varðveittir eru á Sýkladeild Landspítalans.
Elstu stofnarnir voru frá árinu 1977 en þeir
yngstu frá því í mars 1994. Voru þetta allir þeir
stofnar sem varðveist höfðu frá alvarlegum
meningókokkasýkingum. Næmispróf voru gerð
með E-test® (AB Biodisk, Solna, Svíþjóð).
Sýklalyfi er komið fyrir í kvörðuðum plaststrimli
sem settur var agarskálar og er MIC (pg/ml)
lesinn þar af.
Niðurstöður. Meningókokkur með minnkuðu
næmi gegn penicillíni fannst fyrst á Islandi frá
árinu 1981. Á árunum 1981-1987 reyndust 12
stofnar af 63 (19%) hafa minnkað næmi gegn
penicillíni (MIÖ=0.125 pg/ml). Allir nema einn
reyndust af hiúpgerð C. Rifampin reyndist mjög
virkt gegn öllum stofnum (MIÖ<1 pg/ml). Súlfa-
ónæmi (MIC>10 pg/ml) var háð því hvaða
hjúpgerðir voru á ferðinni á hverjum tí'ma. Allir
stoftiar (8) af hiúpgerð A reyndust súlfaónæmir,
einungis 4 af 64 (6.3%) af hiúpgerð C voru
ónæmir. Af hiúpgerð B reyndust 65 af 126
(51.6%) vera ónæmir gegn súlfa. Var ónæmið
breytilegt eftir árum allt frá því að allir reyndust
næmir (1987) og upp í 80% ónæmi (1994).
Ályktun. Þessar niðurstöður sýna að spænsk-
ættaðir penisillínónæmir meningókokkar hafa
ekki enn hafið landnám á Islandi, en ástæða er til
að vera vel á verði. Súlfanæmispróf er hjálp-
artæki í faraldsfræði og brýnt er að taka upp
aðferðir til undirflokkunar meningókokka til að
meta hættu á yfirvofandi faröldrum.