Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Qupperneq 31
Gynera
Nýja getnaðarvarnartaflan
frá SCHERING
sem vert var
að bíða eftir
Gynera (Schering, 870100) TÖFLUR; G 03 A A 10 R O
Hver tafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 30 míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg. Eiginleikar: Hormónablanda til getnaðarvarna með lágum
östrógenskammti. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi. Þau umbrotna í lifur að hluta til við fyrstu umferð. Aðgengi etinýlöstradíóls er um 45%, en
gestodens um 80%. Útskiljast með þvagi og saur. Lyfið kemur í veg fyrir getnað með því að hindra egglos, hindrar festingu eggs við legslímhúð og breyta
eiginleikum slíms í leghálsopi. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa lyfið konum með
æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur
geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Væqar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur,
migrene, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur
og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvíld. Varúð: Konum, sem reykja, er miklu hættara við
alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja,
lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícín geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtímis.
Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir:
Meðferð hefst á 1. degi tíðablæðinga, og er þá tekin ein tafla á dag í 21 dag samfleytt á sama tíma sólarhringsins. Síðan er 7 daga hlé áður en næsti skammtur
er tekinn á sama hátt og áður. Fyrstu 14 dagana, sem töflurnar eru teknar, veita þær ekki örugga getnaðan/örn og þarf því að nota aðra getnaðarvörn þann
tíma. Þetta gildir aðeins um fyrsta mánuð meðferðarinnar. Pakkningar: 21 stk. x 1 (þynnupakkað); 21 stk. x 3 (þynnupakkað).
Skráning lyfsins er bundin því skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð.
Stefán Thorarensen
Sídumúla 32 l08Revkjavík Sími 91-686044
SCHERING