Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Qupperneq 47

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Qupperneq 47
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25 43 Eru tengsl milli húðhita og botnlangabólgu? Spágildi hefðbundinna rannsókna. Valgerður Rúnarsdóttir, Tómas Guðbjartsson, Jónas Magnússon. Handlækningadeild Landspítala. Læknadeild HÍ. Botnlangabólga er algeng en ekki einföld í greiningu. Hvorki eru til næmar né sértækar rannsóknir, sem taka fram sögu og skoðun við greiningu sjúkdómsins. Tilgangur rannsóknarinnar var; í fyrsta lagi að athuga fylgni húðhita yfir botnlangastað við botnlangabólgu, í öðru lagi að athuga næmi og spágildi hefðbundinna rannsókna við botnlangabólgu. Framsæ rannsókn var gerð af aðstoðarlæknum handlæknisdeildar á Bmt. Mældur var húðhiti yfir McBurney punkti og samsvarandi stað vinstra megin hjá 36 sjúklingum sem voru grunaðir um bráða botnlangabólgu. Skoðað var hvort >0,5°C hærri hiti yfir McBumey punkti hefði fylgni við sjúkdóminn í þeirri von að mælingin væri nothæf til greiningar. Alls voru 36 sjúklingar húðhitamældir, 22 þeirra höfðu botnlangabólgu, 14 ekki, en 27 fóru í aðgerð. Sex af 36 sjúklingum (16,7%) reyndust vera >0,5°C heitari yfir McBurney en aðeins 2 þeirra með botnlangabólgu (9%, 2/22). Fjórir sjúklinganna höfðu hitamun án botnlangabólgu (28,6%, 4/14). Þessar niðurstöður sýna að ekkert gagn er af húðhitamælingum af þessu tagi við greininguna. Tíðni annarra þátta hjá sjúklingunum var einnig skoðuð. Þá bættust við 12 sjúklingar þ.e. alls 48 sjúklingar, 34 með botnlangabólgu og 14 ekki. LÆKNINGAR Á LYFLÆKNINGADEILD. TILRAUN UM VIRKT GÆÐAEFTIRLIT. Fjölnir F. Guðmundsson og Þorkell Guðbrandsson, Lyflækningadeild Fjóróungssjúkrahússins á Akureyri. Lyflækningadeild FSA hefúr um þessar mundir verið rekin í 40 ár og verulegar breytingar á húsakynnum standa yfir. Af þessum sökum og öðmm þótti ástæða til að fara i saumana á starfsemi lækninga á deildinni með hugsanlegar breytingar í huga. Lyflækningadeild telur 32 rúm, 23 fyrir bráðaþjónustu og 9 fyrir rannsóknir og meðferðar- og eftirlitsstarfsemi á 5 daga grundvelli. Fjórir sérfræðingar í almennum lyf- lækningum í fúllu starfi (tveú með undirgrein í hjartalækningum, einn í meltingarfæralækningum og einn í lungnalæknhigum) og þrír aðstoðarlæknar starfa á deildinni. Afturvirk athugun var gerð á öllum innlögnum á árinu 1993 og framvirk athugun er í gangi á árinu 1994. Heildarfjöldi innlagna á árinu 1993 var 1258 (862 á bráðaþjónustudeildina og 396 á 5 daga deildina). Meðalaldur sjúklinga var 63.8 ± 17.7 ár. Meðallegutími var 7.6 ± 15.4 dagar (8.9 ± 18.3 dagar á bráðaþjónustudeildinni). Eftir athugmi á 1010 innlögnum skiptust ástæður innlagnar (ICD 9 flokkun) sem hér segir: Sjúkdómar blóðrásarkerfis 316 (31.3%), meltingarfærasjúkdómar 160 (15.8%), æxh (góðkynja og illkynja) 139 (13.8%), öndunarfæra- sjúkdómar 120 (11.9%), einkenni og illa skýrt ástand E 55 Með líkamshita >38°C voru 32,3% (11/34) af þeim með botnlangabólgu en 7,1% (1/14) hinna. 85,3% (29/34) höfðu hækkun á hvítum blóðkornum miðað við 14,3% (2/14) hinna. Vinstri hneigð f>12% stafir) höfðu staðfest 27,8% (5/18) þeirra sem höfðu sjúkdóminn en enginn hinna (0/11). Hækkað sökk höfðu 24,2% (8/33) en 7,1% (1/14) hinna. Hækkað CRP höfðu 40% beggja hópa (8/20 og 4/10). Eftir skoðun og sögu höfðu 97% (33/34) evmsli f hæ. fossa miðað við 75% (9/12) hinna. 32,3% (10/31) þeirra með botnlangabólgu höfðu evmsli rectalt til hæ. en 75% (9/12) hinna. Óeleði eða uppköst höfðu 73,5% (25/34) þeirra með sjúkdóminn en 64,3% (9/14) hinna. 6,1% (2/33) höfðu niðursang miðað við 7,1% (1/14) þeirra sem ekki höfðu bólginn botnlanga. Af þessu sést að af ofangreindum breytum sem litið er til þegar meta á líkur á bráðri botnlangabólgu er engin ein nógu næm eða sértæk til að kallast nothæf. Það er því fátt eitt sem hægt er að halla sér að varðandi greiningu og því líklegt að langt og gott "klíniskt nef sé mikilvægt nú sem endranær. r E 56 56 (55%), gigt og sjúkdómar stoðkerfis 36 (3.6%), blóðsjúkdómar 33 (3.3%), nýma-, þvag- og kynfæra- sjúkdómar 33 (3.3%), innkirtla- og efnaskipta- sjúkdómar 28 (2.8%), geðsjúkdómar 23 (2.3%), taugakerfissjúkdómar 21 (2.1%), húðsjúkdómar 19 (1.9%), smitsjúkdómar 13 (1.3%) og eitranir og slys 11 (1.1%). Niðurstöður ffamvirka hluta rannsóknar- innar verða einnig kynntar og bomar saman við aflurvirku athugunina. Með nákvæmri daglegri skráningu á ástæðum og einföldum þáttum varðandi innlagnir á lyflækningadeild virðist vera unnt að koma á fót vísi aö virku gæðaeftirliti með starfseminni, fljótt má gera úttekt á einstökum þáttum hennar og auðveldara ætti að vera að átta sig á þörf fyrir breytingar og umbætur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.