Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 55

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 55
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25 49 NÝGENGI KRABBAMEINA MEÐAL SJÓMANNA Á ÍSLANDI Vilhjálmur Rafnsson, Hólmfríður Gunnarsdóttir Atvinnusjúkdómadeild Vinnueítirlits ríkisins INNGANGUR Rannsóknir á farmönnum og fiskimönnum hafa sýnt háa tíðni krabbameina í öndunarfærum sem talin er stafa af því að þeir hafi orðið fyrir mengun asbests eða miklum reykingum. í öðrum rannsóknum hafa sést merki um asbestmengun á lungnamyndum sjómanna og enn aðrar rannsóknir hafa greint frá mesótelíóma hjá sjómönnum. Magakrabbamein hefur einnig verið tíðara hjá sjómönnum en öðrum. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga nýgengi krabbameina meðal íslenskra sjómanna með áherslu á krabbamein í maga og lungum. EFNI OG AÐFERÐIR Þetta er aftursýn hóprannsókn. Rannsóknarhópurinn var fenginn ffá Lífeyrissjóði sjómanna en í honum voru 27 884 karlar sem greitt hafði verið fyrir í sjóðinn á árunum 1958 til 1986. Með leyfi Tölvunefndar var skrá yfir sjómennina samankeyrð á kennitölum við Dánarmeinaskrá og Krabbameinsskrá. Á þennan hátt fundust þau krabbamein sem greinst höfðu hjá sjómönnunum. Væntigildi voru reiknuð á grunni mannára í rannsóknarhópnum og nýgengitölum krabbameina hjá öllum íslenskum körlum, sem fengnar voru frá Krabbameinsskrá. Síðan var reiknað staðlað nýgengihlutfall og 95% öryggismörk. p Nýgengihlutfallið var einnig reiknað með hliðsjón af ^ ®' því í hve mörg ár hafði verið greitt fyrir mennina í sjóðinn. NIÐURSTÖÐUR Fleiri krabbamein höfðu greinst meðal sjómannanna en væntigildi sagði til um (758 krabbamein á móti væntigildinu 688.43) sem gaf staðlaða nýgengihlutfallið 1.10, öryggismörk 1.03-1.18. Það var meira af krabbameinum í maga, endaþarmi, barkakýli, lungum og húð (annað en sortuæxli) en vænta mátti, nýgengihlutfóllin fyrir þessi krabbamein voru 1.29, 1.44, 1.77, 1.61 og 1.51. Þegar nýgengi krabbameina var athugað með hliðsjón af því hve lengi menn höfðu greitt til sjóðsins kom í ljós að staðlað nýgengihlutfall lungnalaabbameins var hátt í öllum hópunum. Magakrabbamein var því tíðara því lengur sem menn höfðu verið í sjóðnum og sama gilti um hvítblæði. ÁLYKTANIR Ekki eru til upplýsingar um asbestsmengun í íslenskum skipum. Þó er vitað að það hefur verið mikið notað við smíði skipa og viðhald. Samkvæmt reykingakönnunum reykja sjómenn hér á landi ekki meira en aðrir. Lungnakrabbamein og magakrabbamein var tíðara í þessum hópi sjómanna en meðal allra íslendinga. Hvort um er að kenna efnamengun, reykingum eða matarvenjum verður ekkert sagt um með vissu af niðurstöðum þessarar rannsóknar. DÁNARMEIN OG NÝGENGI KRABBAMEINA MEÐAL LÆKNA SAMANBORIÐ VIÐ LÖGFRÆÐINGA Vilhjálmur Rafnsson, Hólmfríður Gunnarsdóttir Atvinnusjúkdómadeild Vinnueftirlits ríkisins INNGANGUR Erlendar rannsóknir á dánarmeinum og nýgengi krabbameina meðal lækna hafa sýnt lægri tíðni hjá þeim en öðrum körlum þegar um ræðir heildardánartíðni og öll krabbamein. Þetta hefúr oft verið skýrt með því að læknar njóti þess að standa ofarlega í þjóðfélagsstiganum. Þess vegna hafa nýrri rannsóknir borið lækna saman við hópa sem taldir eru í svipaðri þjóðfélagsstöðu. í þeim rannsóknum hafa sjálfsmorð, hjartasjúkdómar, lungna- og heilakrabbamein verið tíðari meðal lækna en annarra. Markmið þessarar rannsóknar var að bera saman lækna og lögfræðinga með hliðsjón af dánarmeinum og krabbameinum, með áherslu á sjálfsmorðum, hjartasjúkdómum, heila-, lungna- og blóðkrabbameini. EFNI OG AÐFERÐIR Þetta er aftursýn hóprannsókn sem gerð var á 862 læknum og 678 lögfræðingum sem skráðir voru í Læknatali og Lögfræðingatali. Með tölvutengingu á kennitölum var afdrifa hópanna leitað í Dánarmeinaskrá og Krabbameinsskrá. Væntigildi voru fundin með margfeldi mannára í rannsóknarhópunum og dánartalna og nýgengitalna fyrir íslenska karla. Síðan voru reiknuð út stöðluð dánar- og nýgengihlutfóll og þau borin saman milli hópanna með hlutfallslegum samanburði. Auk þessa voru dánarmein ^ gg og krabbamein athuguð eftir sérgreinum læknanna. NIÐURSTÖÐUR Hlutfallslega færri læknar en lögfræðingar höfðu dáið og var dánartíðni meðal læknanna einkum lægri vegna krabbameina, magakrabbameins, heilablóðfalla og öndunarfærasjúkdóma. Sjálfsmorð voru á hinn bóginn um 60% tíðari meðal lækna en lögfræðinga. í heild voru krabbamein tíðari meðal lögfræðinga en lækna en heilakrabbamein var þó um 150% tíðara meðal lækna en löglærðra og hjá læknum var ristilkrabbamein tölfræðilega marktækt tíðara en hjá öðrum íslenskum körlum. Læknar sem ekki höfðu fengið sérfræðiviðurkenningu höfðu hærri dánartíðni en starfsfélagar þeirra sem orðið höfðu sérfræðingar. Læknar án sérfræðiviðurkenningar höfðu marktækt hærri dánartíðni vegna heilakrabbameins og sjálfsmorða en aðrir Islendingar og lögfræðingar. Ekki var meir um hjartasjúkdóma, lungna- og blóðkrabbamein meðal lækna en annarra. Þeir læknar sem voru sérfræðingar í lyflækningum og skyldum greinum höfðu tölfræðilega marktækt hærra nýgengi ristilkrabbameins en aðrir karlar. ÁLYKTANIR Niðurstöðumar staðfesta heldur lægri heildardánartíðni lækna en lögfræðinga en þær benda hins vegar til meiri sjálfsmorðhættu meðal lækna. Innbyrðis eru læknamir ólíkir. Þeir sem ekki verða sérfræðingar hafa hærri dánartíðni einkum vegna heilakrabbameins og sjálfsmorða. Af þessari rannsókn verður há tíðni sjálfsmorða og ákveðinna krabbameina ekki skýrð og er þörf frekara rannsókna til þess.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.