Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 70

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1994, Side 70
64 LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 25 CROHN'S SJÚKDÓMUR Á ÍSLANDI 1980- F 91 1989. AFTURVIRK, FARALDSFRÆÐILEG RANNSÓKN Siguröur Björnsson, Jóhann Heiðar Jóhannsson, Einar Oddsson, lyflækningadeild Borgarspítala, Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði og lyfjadeild Landspítala. Gerð var könnup á nýgengi Crohn's sjúkdóms (svæðis- garnabólgu) á íslandi árin 1980-1989 og niðurstöður bornar saman við sambærilega rannsókn 30 ára tímabilið 1950-1979. Öil bólgin mjógirnis- og ristilsýni, sem bárust í vefjagreiningu voru athuguð og grunsamlegum tilfellum fylgt eftir með því að fara yfir sjúkraskýrslur og röntgen- og ristilspeglunarlýsingar. Viðurkenndum skilmerkjum var síðan beitt við sjúkdómsgreiningu, en skrá yfir þá sjúklinga sem greindust með sjúkdóminn 1950-1979 auðveldaði staðfestingu á því að eingöngu væri um ný sjúkdómstilfelli að ræða. Á tímabilinu fundust 75 einstaklingar með Crohn's sjúkdóm, 36 karlar og 39 konur, kynjahlutfall 0.92. Á fyrra 5 ára tímabilinu, 1980-1984, var nýgengið 2.73, hjá körlum 2.2, en hjá konum 3.27. Á seinna 5 ára tímabilinu, 1985-1989, var nýgengi 3.48, hjá körlum 3.71 og hjá konum 3.25. Aldursdreifing var 5-79 ár, en 25% sjúklinganna voru á aldrinum 20-29 ára. Hæsta aldursbundna nýgengið var á aldrinum 60-69 ára, 8.14. Nýgengið reyndist 3.1/100.000 fyrir allt 10 ára tímabilið. Sjúkdómurinn greindist oftast í ristli eingöngu, 40 tilfelli (53.3%), þar næst í endahluta dausgarnar (terminal ileum) 18 tilfelli (24%), en bæði með bólgubreytingar í dausgörn og ristli greindust 16 tilfelli (21.3%). Einkennandi bólga í maga fannst hjá einum sjúklingi (1.3%). Kynjamunur var á fjölda tilfella af Crohn's sjúkdómi í dausgörn (12 karlar/6 konur), en annars var kyndreifing jöfn. Innan 6 mánaða frá byrjun einkenna greindust 57% sjúklinganna, 97% vistuðust um tíma á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins og 8% áttu ættingja með sjúkdóminn. Nýgengi Crohn's sjúkdóms hefur vaxið stöðugt árin 1980-1989 og rúmlega þrefaldast ef miðað er við tímabilið 1970-1979. Aukningin er talin raunveruleg og ekki byggð á breyttum greiningaraðferðum. c FRAMVIRK RANNSÓKN Á NÝGENGI t SÁRARISTILBÓLGU OG SVÆÐISGARNA- BÓLGU Á ÍSLANDI 1991-1993. Sigurður Björnsson, Jóhann Heiðar Jóhannsson, Einar Oddsson. Lyflækningadeild Borgarspítala, Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði og lyfjadeild Landspftala. Leit var gerð að nýjum tilfellum af þarmabólgusjúkdórrú (inflammatory bowel disease) hjá Islendingum á tveggja ára tímabili frá 1. október 1991 til 30. september 1993. Rannsóknin er hluti af framvirkri, evrópskri könnun sem nær til 20 svæða í Norður-, Mið- og Suður-Evrópu og hefur það að aðalmarkmiði að fmna og bera saman nýgengi á þessum ólíku svæðum og að kanna nokkra áhrifaþætti. Sameiginlegu rannsókninni er stýrt frá Hollandi, en samræmdri rannsóknaráætlun með staðlaðri upplýsingasöfnun er ætlað að tryggja sambærilegar niðurstöður. ísland er eina heila landið sem rannsóknin nær til. Leit að einstökum sjúkdóms- tilfellum hér á landi byggðist fyrst og fremst á könnun á niðurstöðum vefjagreininga, en einnig að nokkru leyti á niðurstöðum röntgenrannsókna og ristilspeglana. Leitar- aðferðin er sambærileg þeirri sem beitt var þegar nýgengi þarmabólgusjúkdóms árin 1980-1989 var kannað. Nú var einnig safnað ýmsum upplýsingum um áhættuþætti, fjölskyldusögu, sjúkdómseinkenni, greiningaraðferðir, rannsóknir, meðferð og afdrif sjúklinganna. Á tímabilinu greindust 142 einstaklingar með langvinnan þarmabólgusjúkdóm, 100 höfðu sáraristil- bólgu (colitis ulcerosa) og 36 voru með svæðis- garnabólgu (Crohn's disease), en 6 voru með óflokkanlegan ristilbólgusjúkdóm (indeterrrúnate colitis). Nýgengi sáraristilbólgu var 19,25/100.000 og nýgengi svæðisgarnabólgu var 6,95/100.000. Kynjahlutfall (karlar/konur) var 1.44 fyrir sáraristilbólgu og 0,89 fyrir svæðisgamabólgu. Aldur sjúklinganna við greiningu var á bilinu 12-87 ár, en meðalaldur sjúklinga með sáraristilbólgu var 39,5 ár og meðalaldur sjúklinga með svæðisgamabólgu 34,5 ár. Talsverður hluti eða 34% þeirra sem greindust með sáraristilbólgu og 55,5% þeirra sem greindust með svæðisgarnabólgu, höfðu lengri en þriggja mánaða sjúkrasögu við sjúkdómsgreiningu. Algengustu einkennin voru blóð eða slím í hægðum, kviðverkir og tíðar hægðir (niðurgangur). Útbreiðslu bólgubreytinganna var þannig háttað, að hjá sjúklingum með sáraristilbólgu vom þær takmarkaðar við endaþarm hjá 32%, náðu upp í bugaristil hjá 38%, og enn lengra upp eftir ristlinum hjá 30%. Hjá sjúklingum með svæðisgarnabólgu voru bólgubreytingarnar hins vegar bundnar við ristil hjá 36,1%, náðu til svæða bæði í ristli og neðri hluta mjógirnis hjá 44,4%, en voru hins vegar bundnar við mjógimi hjá 16,7%. Meginniðurstaða íslenska hluta könnunarinnar er sú að nýgengi sáraristilbólgu og svæðisgamabólgu hér á landi hafi aukist verulega miðað við tímabilið 1980- 1989. Fyrra árið, sem hin samevrópska rannsókn nær til, er nýgengi hæst á íslandi, en nýgengistölur seinna ársins á hinum svæðunum liggja ekki fyrir. Æskilegt væri að kanna ástæður þessara breytinga enn betur.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.