Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Blaðsíða 80
78
Frá öðrum löndum.
[Stefnir
Timbu rhlöður
okkar uið Huerfisgötu 54 og Laugaueg 39, hafa ncegar
timburbirgðir á boöstólum. — Þar kemur enginn aö
tómum kofunum fyrst um sinn — þuí
Timburfarmur
er nýkominn. — Hllar stcerðir. — Hiiar lengöir. — Uiðar-
gceðin alkunn. — Uerðið lcekkað, suo að hagkucemust
Timburkaup
munu menn, nú sem fyr, gera hjá
Timburu. Hrna Jónssonar
R e y k j a u í k.
ooooooooooooooooooooooooo ooooooooc> oooo<5
ar á þráðinn, og þær svo, að ýms-
ir voru hræddir um, að alt ætlaði
að fara út um þúfur.
Ástæðan var sú, að Mússólíni
þótti þær raddir gerast nokkuð
háværar, er sögðu, að páfinn hefði
hlunnfarið hann í samningunum.
Hélt hann því tvær stórar ræður,
aðra í þinginu og hina í öldunga-
ráðinu, og bar sig heldur en ekki
mannalega. Kvað hann ríkið verða
að ala menn upp til hernaðar að
sið fascista. Kristindómurinn
hefði að engu orðið, ef hann hefði
ekki borizt til Rómaborgar. Italska
ríkið hafi fullveldi yfir kaþólsku
kirkjunni. Samvizkufrelsi verði að
haldast. Ríkið hafi ekkert gefið
eftir og engu slept af eftirliti sínu
með klerkdóminum. Var fögnuður
mikill í fascistaherbúðunum yfir
þessum ræðum Mússólínis.
En brátt dró upp bliku. Páfi
ritaði Gasparri kardinála, sem
hefir haft allar samningagerðir af
hans hendi, alvöruþrungið bréf,
þar sem hann segir, að heldur
skuli allir samningar stranda, en
mönnum haldist uppi að halda
fram slíkum firrum sem Mússó-
líni hafði gert í þessum ræðum.
Það sé t. d. „verra en villutrú“
að halda því fram, að kristindóm-
urinn hefði orðið að gyðinglegum
sértrúarflokki og dáið út, ef hann
hefði ekki notið aðstoðar róma-