Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.04.1931, Síða 74
168
Verndarvættimar við vög-gu barasins.
[Stefnir
sér sendibréf, skrifað á ljós-rós-
rauðan pappír.
„Kæru vinir! 0, hve eg gleðst
yfir litlu dóttur ykkar. Hamingj-
an gefi, að hún verði hraust og
hamingjusöm, og fær um að taka
á móti því fyrirmyndar-uppeldi,
sem nú á að fara að byrja. Upp
frá þessum degi mun eg þrá þá
stund, þegar þú, kæra Elsa, hefir
lokið uppeldi hennar í anda hug-
sjóna þinna. Þú manst hverju þú
hefir lofað. Heill og heiður fylgi
starfi þínu. Alma“.
Augu okkar húsráðanda mætt-
ust.
„Þessar hugsjónir og þessi lof-
orð hefi eg vitanlega ekki haft
nokkra hugmynd um hingað til“,
andvarpaði húsráðandinn og
brosir ltaldranalega.
En enginn dráttur breytist í
andliti húsfreyjunnar. Það er
eins og það sé innsiglað með sjö
innsiglum Opinberunarbókarinn-
ar, og svipurinn alvöruþrunginn,
sem svipur þess, er tekið hefir þá
ákvörðun að ala upp nýja og
betri kynslóð. Hún var komin
með nýtt heillaóskabréf í hend-
ina.
„Hamingjusömu vinir! Eg er
nýbúin að sjá gleðitíðindin í
blaðinu. Farsæld, heilbrigði og
langt líf! Koapra.
E.S. Um leið gríp eg tækifær-
ið til þess að benda þér, kæri
Kári, á þær stórmiklu framfarir,
sem orðnar eru á sviði líftrygg-
inganna. Einkum að því er snert-
ir barnatryggingar. Og sérstak-
lega hjá félagi okkar „Pohjan-
táhti“. Það er alveg ágætt. Þú
verður steinhissa, þegar þú heyr-
ir skilmálana. Sjáumst bráðum“.
„Framfarirnar eru sannarlega
meira en litlar“, segi eg hlæj-
andi. „Eg man ekki til, að eg
hafi nokkru sinni vitað samfagn-
anda snúa sér eins beint að mál-
efninu og þennan“.
„Og hann er viss með að koma
sínu fram“, andvarpar húsráð-
andi. „Ef eg þekki hann rétt, þá
kemur hann hingað áður en vik-
an er á enda, og þar með verð-
ur líf og framtíð Önnu Maríu
tryggð“.
„Eins og vera ber“, segir hús-
freyja og veifar nýju bréfi.
„Mínar innilegustu hamingju-
óskir! Megi dóttir ykkar umfraru
allt verða frjáls og sjálfstseð
kona; eg óska þess, að æfistarf
hennar verði ekki að hlaða und-
ir karlmennina, en að hún riti
sitt eigið nafn gullnum stöfum
heiðurs og frama við hlið karl-
mannanna í annála föðurlands-
ins. Velkomin, litla stúlka, sem