Sagnir - 01.04.1990, Blaðsíða 53

Sagnir - 01.04.1990, Blaðsíða 53
„Hann fékk bók en hún . . ." af úrtakinu í rannsókninni. Að hans mati er hlutur kvenna of lítill til að hægt sé að álykta eitthvað um vinnu stúlkna og uppeldi.’ Hann kyngreinir þess vegna ekki störf barna á þessu tímabili og talar ekki um aðalstarf stelpna sem var barna- gæslan. Þessi grein er því hugsuð sem nokkurs konar viðbót við grein Guðmundar. Ég mun bregða upp lifandi myndum af vinnu og upp- eldi stúlkubarna og reyni að sýna fram á að hún hafi í mörgu verið ólík því sem strákar áttu að venjast. Heimildirnar sem ég nota eru þær elstu sinnar tegundar hér á landi. Það eru ekki nema 110 ár síð- an skriftarkennslu var komið á og eru ritaðar heimildir íslenskra al- þýðukvenna ekki miklar fyrir þann tíma. Með vali mínu á heimildum fer ég ákveðna leið og með því að nota minningarrit kvenna tel ég að viðhorf þeirra sjálfra komi best fram. Uppeldi strdka og stelpna I samfélagi sem var svo til skóla- laust má segja að nær allt uppeldi hafi farið fram á heimilunum. Flest börn í íslenskum sveitum hófu starfsævi sína á snúningum á heim- ilum. Aðallega voru þetta smástörf sem auðveldað gátu fullorðnum sporin, matarsendingar á engi, kúarekstur og sendiferðir eftir ýmsu smálegu. Halldóra Bjarnadóttir (f. 1873) í Vatnsdal segist hafa verið látin vinna öll þau verk sem þóttu hæfa ungu barni s.s. að fara með mat á engjar, sækja hross og reka kýr. Sonur vinnukonunnar annaðist þessi verk líka. Halldóra bætir því við að hún hafi einnig þurft að sinna innivinnu, sópa göngin, tæja ull, vinda hnykla og ýmislegt smá- legt. Ekki fylgir frásögninni að son- ur vinnukonunnar hafi tekið þátt í þessum störfum.4 Vinna íslenskra sveitabarna fylgdi ákveðinni hringrás og hverri árstíð fylgdu ákveðin störf. „Vorið var tími sauðburðar og fráfærna, sumarið hjásetu og heyvinnu, haustið fjárrags og ullarvinnu, vet- urinn tími innivinnu og fjár- mennsku, og svo verferða þar sem Börn við Ueyskap. um slrkt var að ræða." Hjásetan var það starf sem með réttu gat kallast barnavinna í sveitum á 19. öld. Hjá- setan fólst í því að gæta mjólkur- ánna eftir fráfærur og smala þeim til kvía kvölds og morgna. Víðast hvar hófst hjásetan í lok júní. Algengast var að börn byrjuðu að sitja hjá án- um um átta ára aldur.3 í mörgum frásögnum kemur fram að átta ára aldurinn markaði þau skil að börnin fóru að vinna ákveðin verk sem þau báru ábyrgð á og voru látin sæta refsingum ef þau sinntu þeim ekki nægilega vel.6 Þó að hjásetan hafi verið aðalstarf barna í sveitum tel ég að það hafi oftar komið í hlut drengja að sitja hjá ánum. Sigríður Bjömsdóttir (f. 1891) talar um að hjáseta hafi oftast komið í hlut drengjanna. Hún minnist nokkurra daga er hún fékk að fara með bræðrum sínum og hafði gaman af. Ennfremur segir hún að aðalstarf sitt sem barn hafi verið að gæta yngri systkina sinna.7 Að gæta barna og hjálpa til við inni- störf voru störf sem stelpur sinntu nær eingöngu umfram stráka. Þannig segir Gunnþórunn Sveins- dóttir (f. 1885), að um leið og krakk- arnir gátu eitthvað hafi þau verið látin hjálpa til við verkin. Hún segir að það hafi komið í hlut elstu stelpnanna að gæta yngri systkin- anna. Tveir elstu bræður hennar voru látnir sinna skepnunum en þær systurnar áttu að hjálpa móður þeirra í bænum. Þegar búið var að borða hafi þær systur borið fram ílátin og þvegið þau upp.8 Guðrún Borgfjörð (f. 1856) var sex ára þegar Klemens bróðir hennar fæddist. Hún þurfti að gæta hans og leiddist það mjög. Hún var átta ára gömul þegar hún fór að hjálpa móður sinni með ýmislegt, aðallega gætti hún þó bræðra sinna meðan móðir þeirra var úti á túni.9 Guðrún Guðmundsdóttir (f. 1863) á Hornafirði segir svo frá: Sumarið, sem ég var á fimmta árinu, átti ég að gæta Bergs bróð- ur míns, sem þá var fárra vikna . . . Mér fannst, að Guð- mundur bróðir minn ætti að að- stoða mig við barnagæzluna, en var þá svarað því, að strákar ættu aldrei að passa börn. Ég var því alltaf inni, þegar fullorðna fólkið var úti, og orgaði oft af leiðindum. Á meðan Guðmundur, sem var tveimur árum eldri en systir hans, og vinir hans léku sér á túninu, varð Guðrún að sitja álengdar og horfa á. Hann sagði, „ að það væri skömm fyrir mig að leika mér við stráka. " SAGNIR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.