Sagnir - 01.04.1990, Blaðsíða 87
Kaupkonur og búðardömur
hann lést árið 1903 og rak hana í nokkur
ár. Hún er titluð kaupmaður árið 1909.40
21. Kristjana Thorsteinsson fékk borg-
arabréf 16. nóv. 1903. Hún var eigin-
kona hins stórvirka kaupmanns og út-
gerðarmanns, Th. Thorsteinsson.
22. Vigdís Teitsdóttir rak árið 1904
smáverslun á Vesturgötu 50A.41
23. Kristín Sigurðardóttir fékk borg-
arabréf 5. apríl 1904 og rak vefnaðar-
vöruverslun til dauðadags 1928. Versl-
un hennar var fyrst á Laugavegi 11, síð-
an í Fischersundi 1, þá á Hverfisgötu 30
en árið 1907 keypti hún húseignina
Laugaveg 20A og þar var verslunin síð-
an.42
24. Kristín Jónsdóttir. Kona með þessu
nafni rekur verslun á Laugavegi 11 árið
1904 og flytur þá í Fischersund 1 en árið
1907 verslar kona með þessu nafni á
Laugavegi 6.43 Spurning hvort um sömu
konuna sé að ræða.
25. Lilja M. Kr. Ólafsdóttir var komin
með verslun á Laugavegi 19 árið 1904
þar sem hún seldi líkkransa og jólakort
og árið eftir hafði hún flutt sig á Lauga-
veg 23 og var þá einnig með veitinga-
stofu.44
26. Svanborg Jónsdóttir fékk borgara-
bréf 19. júní 1905. Hún er titluð kaup-
maður á Njálsgötu 23 árið 1909.45
27. Þuríður Sigurðardóttir opnaði
Sápuverslunina í Austurstræti 6 árið
1905 og rak hana í mörg ár.46 Hún fékk
borgarabréf 27. júní 1905.
28. Helga Andersen er titluð klæðsali
árið 1909 og 1913 tilkynnti hún til firma-
skrár að hún ræki fyrirtækið Andersen
& Sön áfram.47 Hún mun hafa tekið við
rekstrinum eftir að maður hennar lést
árið 1905 en hann rak stóra fataverslun í
Aðalstræti 16.
29-30. Gunnhildur Thorsteinsson ljós-
myndari fékk borgarabréf 13. júlí 1905
og stofnaði sama ár fyrirtækið Gunn-
hildur Thorsteinsson & Co ásamt systur
sinni Helgu Thorsteinsson. Þær ráku Ijós-
myndastofu ásamt verslun með ljós-
myndavörum. Helga gekk út úr fyrir-
tækinu að tveimur árum liðnum.48
31. Gunnþórunn Halldórsdóttir fékk
borgarabréf 26.jan. 1905 og hóf vefnað-
arvöruverslun, til að byrja með ásamt
stallsystur sinni, Guðrúnu Jónassen, á
Amtmannsstíg 5. Gunnþórunn rak
verslun sína um áratugaskeið og var
síðar m.a. á Laugavegi 12 og í Eimskipa-
félagshúsinu.49
32. Sigríður Þ. Thorlacius. Hún fékk
borgarabréf 12. sept. 1906 og er titluð
kaupkona í Templarasundi í Niðurjöfn-
unarskrá Reykjavíkur 1907 og 1908.
33. Sigríður Einarsdóttir í Ingólfsstræti
6 fékk borgarabréf 29. jan. 1906.
34. Þórunn R. Guðmundsdóttir í Þing-
holtsstræti fékk borgarabréf 30. júní
1906.
35. Jórunn Guðmundsdóttir. Hún er
titluð kaupkona í Niðurjöfnunarskrá
Reykjavíkur 1907 og kaupmaður í Bæjar-
skrá Reykjavíkur 1909.
36. Guðrún Jónasson fékk borgarabréf
25. júlí 1907 og rak síðan eina þekktustu
sælgætisverslun bæjarins í Aðalstræti 8.
Hún var ógift.
37. Sigríður Sigurðardóttir fröken fékk
borgarabréf 7. sept. 1907. Hún rak veit-
ingasölu sem kölluð var Sigríðarstaðir
og seinna Café og conditori Skjald-
breið.50
38. Sigríður Þórðardóttir á Frakkastíg
12 var árið 1907 með sölu á prjóni.
39. Kristín Biering var með hatta- og
húfubúð í Tjarnargötu 8 árið 1908 en ár-
ið eftir var hún komin á Laugaveg 6.51
40. Kristín Þorvaldsdóttir fékk borg-
arabréf 30. júní 1908 og rak síðan versl-
un með listmuni, fyrst í húsi Jóns
Sveinssonar við Kirkjutorg, síðar í
Kirkjustræti 4.52
41. Guðrún Bjarnadóttir í Fiscersundi 3
fékk borgarabréf 18. nóv. 1908.
42. Helga Jónsdóttir á Amtmannsstíg 5
fékk borgarabréf 15. okt. 1909.
43. Kristín Jónsdóttir í Mýrarholti fékk
borgarabréf 16. des. 1909.
44. Þorbjörg Gunnlaugsdóttir fékk
borgarabréf 31. maí 1910. Hún mun þá
hafa tekið við rekstri hinnar þekktu
matvöruverslunar Jóns Þórðarsonar í
Bankastræti að manni sínum látnum.
45-46. Irma og Carla Olsen, danskar
mæðgur, hófu sælgætisgerð í Reykjavík
árið 1910 og opnuðu jafnframt Konfekt-
búðina í Bankastræti 7. Árið 1912 var
Konfektbúðin flutt í Austurstræti 17 og
þar var hún enn 1914.
47. Hansína Friðriksdóttir Hólm fékk
borgarabréf 5. maí 1911.
48. Kristín Árnadóttir fékk borgara-
bréf 19. apríl 1911. Hún rak verslunina
Sif árið 1912.53
49. Steinunn Stefánsdóttir ekkja fékk
borgarabréf 21. okt. 1911.
50. Jóna Bjarnadóttir á Njálsgötu fékk
borgarabréf 11. jan. 1912.
51. Steinunn Briem frú á Hverfisgötu
fékk borgarabréf 28. sept. 1912.
52. Vilborg Guðnadóttir ekkja fékk
borgarabréf 31. okt. 1912 og árið 1916
rak hún verslunina Gamla búðin á
Skólavörðustíg 5.54
53. Margrét Árnadóttir fékk borgara-
bréf 13. des. 1913. Hún var með Kon-
fektbúðina Heklu við Lækjartorg.
54. Margrét Stefánsdóttir Leví fékk
borgarabréf 18. mars 1913 og rak tób-
aksverslun á Laugavegi 12 og síðar
Laugavegi 6.55 Eftir 1920 varð Margrét
hins vegar einhver þekktasti hattakaup-
maður bæjarins.
55. Margrét Theodóra Rasmus var með
vefnaðarvöruverslun á Laugavegi 18 ár-
ið 1913 en sama ár keypti hún vefnaðar-
vöruverslunina Víking á Laugavegi 5 og
rak hana eftirleiðis.56 Hún fékk borgara-
bréf 10. sept. 1913.
56. Guðríður Árnadóttir Bramm fékk
borgarabréf 25. okt. 1913 og stofnaði
síðan og rak Fatabúðina í Hafnarstræti
16. Verslun hennar varð býsna stór í
sniðum og var komin með útibú á
Skólavörðustíg 21 árið 1928. Hún reisti
þar stórhýsi árið 1936 og þar er Fatabúð-
in enn rekin.57
SAGNIR 85