Sagnir - 01.06.2004, Page 17

Sagnir - 01.06.2004, Page 17
Eru yfirlitsrít best til þess fallin aö kenna sögu? Sú aðferð að kenna yfirlitssögu fyrst tel ég mjög mikilvæga til þess að öðlast ákveðin grunn. Ég held að þegar við segjum að slík grunnþekking sé ekki nauðsynleg þá vill það gleymast að grunn- þekkingin er ákveðinn stökkpallur að dýpri skilningi. Það er erfitt að draga ályktanir og kafa dýpra í söguna ef yfirlitsþekkingin er engin. Hins vegar má spyrja hvort þessi aðferð sé nauðsynleg í há- skóla. Einn nemandi minn sem fór í sagnfræðinám í háskólanum sagði við mig að hann væri að fara sama hringinn í þriðja sinn; fyrst var gróft yfirlit í grunnskóla, þá kom yfirlitskennsla í fram- haldsskóla og loks nokkrir yfirlitsáfangar í háskólanum. Spurning- in er hvort ekki megi samræma kennsluna milli skólastiga og þá hvort nauðsyn sé að halda áfram tímabilaskiptri yfirlitskennslu í háskólanámi. Hvernig finnst þér aö mœtti samrœma kennsluna? Hugmyndin er að 16 ára nemandi komi í framhaldsskóla og hljóti kennslu í yfirlitssögu og þannig mætti losna við þá gríðarlegu yfir- ferð sem einkennir háskólasagnfræðina. Það þarf að eiga sér stað ákveðin hugarfarsbreyting hjá kennurum. Við erum oft of upp- teknir af því að leiða nemendur í gegnum söguna í stað þess að treysta þeim fyrir þekkingaleitinni. Ég trúi að með því að semja góða yfirlitsbók geti nemendur sótt sér þekkinguna sjálfir og í kennslu megi þá fara dýpra ofan í ákveðin efni. Stundum virka yf- irlitsritin sem þægilegt kennsluform fyrir suma kennara; þá þarf minna að hafa fyrir kennslunni því öll umgjörðin er til staðar. f valáföngunum þarf að hafa meira fyrir efninu, leita það uppi hverju sinni. Það er ákveðin hætta á því fyrir kennara að hjakka alltaf í sama farinu. Það liggur í eðli kennslunnar að gera það sama og eftir ákveðin tíma er komin hefð fyrir einhverju efni umfram annað. Við vorum mörgjákvæð gagnvart nýju námskránni því hún losaði okkur undan þessu hefðbundna kennsluformi og bauð upp á meira val. Hugmyndin var að auka samkeppni milli greina og bjóða upp á meira val, en eins og áður sagði þá skortir reynsluna af þessari nýju námskrá til þess að geta fullyrt um hvort þessi hugs- un gengur upp. Ég hef trú á því að sögubækur geti skipt máli. Það er tíska í dag að tala illa um sögubækur Jónasar frá Hriflu en þær voru frábærar að því leyti að þær vöktu áhuga. Mér fannst þær mjög skemmtileg- ar sem krakki. Hann setti söguna upp á vafasaman hátt, stillti upp góðu gegn illu eins og söguskoðunin um góðu íslendingana gegn vondu Dönunum. Gunnar Karlsson hefur nefnt þetta vekjandi sögu. Að vekja nemendur til umhugsunar er einmitt það sem grunn- og barnaskólar geta gert best. Mér finnst oft mikilvægt að taka afstöðu, t.d. varðandi nasismann. Og ég legg ekki sjónarmið deiluaðila í kalda stríðinu að jöfnu.. Ég er kannski afslappaðri í áföngum þar sem þroskaðri nemendur eru en það er hægt að fara yfir strikið. Einnig er mögulegt að vera eins hlutlaus og hægt er og drepa allan áhuga. Það er lenska í háskólanum að setja fyrirvara við allt saman en það er hægt að ganga of langt í þeim efnum. Þetta er skiljanlega viðkvæmt málefni þar sem innræting í skólum hefur verið deilumál og kennarar orðnir gætnari í kennslu. Við eig- um að geta treyst nemendum sem gagnrýnt hugsandi verum. LÁRA MAGNÚSARDÓTTIR Fædd árið 1960, tók verslunarpróf og lauk stúdentsprófi frá M.H. Hún útskrifaðist úr Háskóla íslands með B.A.- gráðu í sagnfræöi. Stundaði framhaldsnám í miðaldafræð- um við sama skóla og miðaldasagnfræði við Háskólann í Genf. Lára lærðí spænsku á árunum 1980-82 og frönsku 1995-96 og lauk námskeíði fyrir aðstoðarmenn við kvik- myndagerð við Kvikinyndaskóla islands 1998. Hún er nú í doktorsnámi víð Háskóla islands. Af hverju valdiröu sagnfrœöi? Ég hóf nám í almennum málvísindum en fannst vanta meiri menntun og hætti við að taka þau til 90 eininga af því að í svona lítilli skor eru svo fá námskeið í boði og mér fannst ég ekki geta beint náminu að neinu sérstöku. Mig langaði ekki að læra bókmenntir og vildi þess vegna ekki taka íslensku sem aukagrein, þótt ég hefði tekið þar marga málfræðikúrsa. Ég endaði því eiginlega fyrir tilviljun í sagn- fræði. í mínum huga var sagnfræði strákafag sem mér fannst ekki voðalega spennandi til að byrja með, en þegar ég hóf nám þar var aftur á móti konum að fjölga í deildinni. Að- ferðafræðikennslan í sagnfræðinni fannst mér frábær, það var ekkert svoleiðis í íslenskunni og málvísindunum. Mér fannst ég læra mikið og fann líka að fagið átti ágætlega við mig að mörgu leyti. Aginn í aðferðinni var góður skóli og að mörgu leyti hentaði tjáningarmáti sagnfræðinnar mér betur en í málfræði. Ég var mjög ánægð með kennsluhættina. Hvert er þitt sérsvið í faginu? Ég skrifaði B.A.-ritgerð mína hjá Gísla Gunnarssyni og spurði í henni hvað hafi mótað heimsmynd alþýðu annað en kirkjan á 18. öld. Hugmyndin vaknaði þegar ég tók nám- skeið hjá Inga Sigurðssyni prófessor og las um upplýsingar- LÁRA MAGN O N
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.