Sagnir - 01.06.2004, Blaðsíða 85
að í skrifum sín á milli voru þær opnar og einlægar. Ástæðan fyrir
því að þær voru svona einlægar gæti einmitt verið sú að þær höfðu
aldrei hist og voru í raun vonlitlar um það. Þær tóku því enga per-
sónulega áhættu með því að segja nákvæmlega það sem þeim lá á
hjarta. Þetta varð eins konar töfrasamband. Þær ímynduðu sér
hvor aðra á einhvern ákveðinn hátt og gáfu svo ákveðna mynd af
sjálfri sér sem varð sönn vegna þess að það bjó ekkert að baki. Þær
reyndu ekki að koma neinum áróðri til skila heldur tjáðu einfald-
lega tilfinningar sínar og skoðanir. Bréf systranna geta því veitt
okkur innsýn í líf og sjálfsmynd ungra kvenna af annarri kynslóð
Vestur-íslendinga, kvenna sem voru fæddar í Vesturheimi og aldar
upp á „íslenskan hátt“ af foreldrum sem töluðu aðeins íslensku.
Bréf þeirra geta því veitt innsýn í það hvaða augum Vestur-íslend-
ingar, sem aldrei höfðu komið til gamla landsins, litu Island.
PERSÓNUR OG LEIKENDUR
Bréfritarar voru tvær ungar stúlkur, systurnar Stefanía Elínþóra
og Ragnheiður Helga Þórðardætur. Foreldrar þeirra, þau Þórður
Bjarnason og Rebekka Stefánsdóttir, fluttu til Vesturheims árið
1887.6 Þau giftu sig árið 1880 og fluttust að Búðum í Hlöðuvík þar
sem þau bjuggu um fimm ára skeið. Árin 1885-1887 var Þórður
bóndi á Látrum í Aðalvík áður en hann fluttist búferlum til Vestur-
heims ásamt konu sinni og einu barni, Guðrúnu litlu sem var fædd
árið 1884.7 Þau komu sér upp framtíðarheimili að Skíðastöðum í
Árnesbyggð og þar ólu þau upp börnin sín fimm, Guðrúnu (f.
1884), Bjarna (f.1888), Ragnheiði (f. 1894), Stefaníu (f. 1899) og
Þórð (f. 1902).8
Stefanía og Ragnheiður byrjuðu ungar að skrifast á við frænku
sína á Hesteyri, Soffíu Guðrúnu Vagnsdóttur. Faðir Soffíu, Vagn
Benediktsson, var bróðursonur Þórðar, föður systranna. Stefanía
var töluvert duglegri við skriftirnar en Ragnheiður og eru mun
fleiri bréf í safninu frá Stebbu sem var gælunafn hennar. Fyrsta
bréfið frá henni var skrifað í júlí árið 1913 en þá var hún „13 ára og
verð 14 ára 18. Júlí.“9 Fyrsta varðveitta bréfið frá Ránku, en það
var gælunafn Ragnheiðar, var ritað árið 1915. Stebba virðist því
hafa riðið á vaðið en það er þó ekki alveg víst því einhver bréf
vantar inn í og sum virðast hafa týnst í pósti á leiðinni til íslands.
Oft fylgjast bréfin þeirra að, það er að segja þær skrifa á sama tíma,
líklega til að spara burðargjaldið því þær senda bréfin í sama um-
slagi. Bréfin frá Ragnheiði eru samtals 38 og spanna 19 ára tímabil.
Bréfin frá Stefaníu eru 66 og ná yfir 34 ára tímabil. Bréfin frá
Ránku eru færri bæði vegna þess að líf hennar fékk skjótan endi en
einnig vegna þess að hún var minna heima en Stebba. Síðasta bréf-
ið í safninu var dagsett 29. janúar 1947 og er frá Stefaníu en mér
þykir líklegt að þær Stefanía og Soffía hafi haldið áfram að skrifast
á fram að láti Stefaníu árið 1964.10 Ástæðan fyrir því að bréfin í
þessu safni eru ekki fleiri er líklega sú að Soffía fluttist frá Hesteyri
til Reykjavíkur árið 1950 ásamt eiginmanni sínum.ll Árið 1952
fluttust síðustu íbúar Sléttuhrepps í burtu og hefur hann verið í
eyði síðan en þegar fjölmennast var í hreppnum bjuggu þar um
fimmhundruð manns.12
í gegnum tíðina hlustuðu þær á foreldra
sína, önnur skyldmenni og íslendinga sem
þær þekktu segja sögur af íslandi. Þeim
fannst þær vera íslenskar en höfðu í raun-
inni ekkert ísland til að heimfæra þessa
tilfinningu upp á.
Ragnheiður og Stefanía voru báðar fæddar í Kanada. Eina
reynsla þeirra af íslandi var í gegnum foreldra þeirra sem lærðu
ekki að tala ensku og þvf var einungis töluð íslenska á heimilinu.
Stúlkurnar kynntust svo heimahögum foreldra sinna á íslandi í
gegnum bréfaskriftir sínar við Soffíu en það voru einu tengslin sem
þær höfðu við ísland. í gegnum tíðina hlustuðu þær á foreldra sína,
önnur skyldmenni og íslendinga sem þær þekktu segja sögur af fs-
landi. Þeim fannst þær vera íslenskar en höfðu í rauninni ekkert fs-
land til að heimfæra þessa tilfinningu upp á vegna þess að þær vissu
ekki hvað eða hvernig ísland var.
NÁM OG STÖRF SYSTRANNA Á SKÍÐASTÖÐUM
Fyrsta bréfið í bréfasafninu er frá Stefaníu árið 1913. Hún var þá
tæplega 14 ára og enn í barnaskóla. Ragnheiður er hins vegar fimm
árum eldri og því farin að vinna fyrir sér.
« •* E ER FÆDD í CANADA OG ÞVÍ CANADÍSK AÐ Æ 7 T ... u SAGnir 24 árgangur 04 83