Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Blaðsíða 18

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Blaðsíða 18
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST Nýja sundlaugin á Dalvík. Turnbyggingin vekur athygli enda sérstæö. Ný sundlaug á Dalvík Rögnvaldur S. Friðbjörnsson bœjarstjóri Saga sundíþróttarinnar á Dalvík og í Svarfaðardal á sér talsvert langa sögu eins og víðast hvar annars staðar. Fyrsta sundlaugin var byggð í landi Laugahlíðar í Svarfaðardal, 5 km frá Dalvík. Hún var tekin í notk- un á sumardaginn fyrsta 1929. Þessi sundlaug var reist að frumkvæði ungmennafélaganna í hreppnum. Byggingin er öll steinsteypt, bæði þak og veggir, og er 12,5 x 6 m. Þessi sundlaug er enn í notkun og er í eigu og rekin af Svarfaðardals- hreppi og Dalvíkurbæ. Síðan er sett upp útisundlaug á Dalvík árið 1972 sem vera átti til bráðabirgða þar til ný sundlaug kæmi á Dalvík. Mögu- leikar til að reisa sundlaug á Dalvík voru ekki til staöar fyrr en 1969, með tilkomu hitaveitu á staðnum. Miklar umræður hafa átt sér stað frá þessum tíma um byggingu sund- laugar, en það er ekki fyrr en 20. júní 1992 sem Hjalti Þorsteinsson á Dalvík tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri sundlaug. Sunnudaginn 2. október 1994 er sundlaugin tekin formlega í notkun. Þetta er stór- glæsilegt mannvirki sem óhætt er að segja að gjörbreytti allri aðstöðu til sundiðkunar á staðnum. Uppsteypa hússins var boðin út meðal heimamanna og átti Tréverk hf. lægsta tilboðið. Var síðan samið við verktakann um áframhald fram- kvæmda. Byggingin var gerð fok- held árið 1992, laugarsvæðið var steypt upp 1993 en innréttingu og frágangi lokið á árinu 1994. Heild- arkostnaður við bygginguna og um- hverfi hennar er um 170 milljónir króna. Nýja sundlaugin er útilaug, 25 x 12,5 metrar, með vaðlaug, 208
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.