Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Blaðsíða 56
KYNNING SVEITARSTJORNARMANNA
Jóhanna B. Magnúsdóttir
ferðamálafulltrúi Skaft-
árhrepps
Jóhanna B.
Magnúsdóttir
hefur verið ráðin
ferðamálafulltrúi
Skaftárhrepps frá
15. júlí sl.
Jóhanna er
fædd í Reykjavík
árið 1946 og eru foreldrar hennar
Steinunn Jóhannsdóttir og Magnús
B. Sveinsson. Hún er alin upp í
Biskupstungum og í Miklaholts-
hreppi á Snæfellsnesi. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð 1990 og útskrifaðist
sama vor sem umhverfisfræðingur
frá Garðyrkjuskóla ríkisins.
Frá upphafi árs 1991 til ársloka
1993 starfaði hún sem umhverfis-
fulltrúi Ferðamálaráðs. Starfið var
m.a. fólgið í því að ferðast um land-
ið og kanna ástand á ferðamanna-
stöðum og gerði hún tillögur að úr-
bótum þar sem þeirra var þörf. Frá
árinu 1993 starfaði hún hjá fyrirtæk-
inu Isteka hf. í Reykjavík.
Jóhanna var meðal stofnenda
Sjálfboðaliðasamtaka urn náttúru-
vemd, sem stofnuð voru árið 1986,
var í stjórn þeirra samtaka frá upp-
hafi og formaður þeirra í fimm ár.
Hún var í stjóm Ferðafélags íslands
frá 1988-1994 og í stjórn Land-
verndar frá hausti 1989 til 1993.
Haustið 1993 var hún tilnefnd sem
varaformaður Náttúruverndarráðs.
Frá sama tíma hefur hún verið for-
maður ferðamálanefndar ráðsins, en
sú nefnd fjallar um ýmis mál er lúta
að ferðamennsku og hefur m.a. unn-
ið að tillögum að reglum um akstur
á snjó í samvinnu við ýmsa þá sem
slíkt stunda. Þá hefur hún starfað
sem sjálfboðaliði með Sjálfboða-
liðasamtökunum við stígagerð á
fjölsóttum ferðamannastöðum.
„Með hliðsjón af þessu tel ég mig
vera á réttum stað í Skaftárhreppi
þar sem lögð er áhersla á að stunda
umhverfisvæna ferðaþjónustu,“
sagði Jóhanna í samtali er hún var
beðin að segja Sveitarstjórnarmál-
um deili á sér. „Hér í hreppi munum
við halda áfram að þróa ferðaþjón-
ustuna sem sterka atvinnugrein, sem
á sér framtíð, án þess að skerða höf-
uðstólinn sem byggt er á. En til-
nefning hreppsins fyrir Islands hönd
til umhverfisverðlauna ferðaþjón-
ustunnar gefur okkur byr undir báða
vængi.“
Hún á þrjá syni sem allir eru upp-
komnir.
Anna Margrét Guðjóns-
dóttir ferðamálafulltrúi
Reykjavíkur
Eins og fram
kemur í frásögn-
inni af Atvinnu-
og ferðamála-
stofu Reykjavík-
ur hefur Anna
Margrét Guð-
jónsdóttir, ferða-
málafulltrúi Vestfjarða, verið ráðin
ferðamálafulltrúi á stofunni.
Anna Margrét var kynnt í 4. tbl.
Sveitarstjómarmála 1994.
Þjóðhátíðarsjóður CwJ
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1996
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til
stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og
menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúruvemdar á vegum
Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varðveislu fomminja, gamalla bygginga og
annarra menningarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans, og komi
þar einnig til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag til þeirra verkefna, sem styrkt em, en verði
ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.“
Stefnt er að úthlutun fyrri hluta ársins 1996.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 1996. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Eyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýsingar
gefur ritari stjómar, Sveinbjöm Hafliðason, í síma 569 9600.
Þjóðhátíðarsjóður
246