Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Síða 7

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Síða 7
AFMÆLI arfélög. Eitt er víst að meirihlutavilji varfyrir skiptingu hreppsins encla þótt íbúar á Raufar- höfn vœru því mótfallnir. Umræðan hafði staðið yfir um nokkurra ára skeið, en þegar ákvörðun var loks tekin gerðist það hratt. Svo hratt að það liðu ekki nema tveir mánuðir frá því að sýslunefnd mælti með því við félagsmálaráðherra að hann skipti Presthólahreppi í tvö hreppsfélög þar til ákvörðun lá fyrir um að svo skyldi verða. A fyrsta hreppsnefndarfundi hins nýfædda hrepps er Hólmsteinn Helgason kosinn odd- viti og varaoddviti Agúst Magnússon. Einnig var tilnefnt í fjórar nefndir, framfærslunefnd, byggingamefnd, hafnarnefnd og skattanefnd. Það er ekki fyrr en á þriðja fundi, vorfundi, er haldinn var í húsakynnunt barnaskólans 21. maí sama ár, að menn sjá hversu stórum og kostnaðarsömum framkvæmdum íbúar hins nýja hrepps stóðu frammi fyrir. Til fróð- leiks er meginefni fundargerðar þessa hrepps- fundar birt hér, en fyrst ber að greina frá nöfnum þeirra manna er kjörnir höfðu verið og sátu fyrsta fund hreppsnefndar. En þeir voru Agúst Nikulásson, Kristján Önundar- son, sr. Hólmgrímur Jósefsson, Agúst Magn- ússon og Hólmsteinn Helgason oddviti, eins og áður segir. „Mánudaginn 21. maí 1945 var fyrsti hreppsfundur í Raufarhafnarhreppi settur í barnaskólahúsinu kl. 4 e.h. af oddvita hreppsins, Hólmsteini Helgasyni. Aður en fundur var settur minntist oddviti þeirra íbúa hreppsins er látist höfðu síðan um áramót, þ.e síðan Raufarhöfn varð sérstakur hreppur. Oddviti lét fundarmenn rísa úr sætum til að votta hinum látnu virðingu sína. Þá setti odd- viti fundinn og nefndi til fundarritara Guð- mund Eiríksson. Þá var gengið til dagskrár: I. Skýrsla oddvita: a) Lesin upp dagskrá þessa fundar sem var í 12 liðum. b) Lesin upp og skýrð fundargerð hrepps- nefndarfunda frá 1944, þar sem ákvörðun var tekin og tillögur gerðar um að skipta þáver- andi Presthólahreppi í tvo hreppa, Presthóla- hrepp og Raufarhafnarhrepp. Einnig las odd- viti stjórnarráðsbréf er fyrirskipaði hreppa- skiptin. c) Þá gat oddviti um hreppsnefndarkosn- ingar í Raufarhafnarhreppi. íþróttahús, sundlaug og skóli. íþróttahúsiö. 71 3= Félagsheimiliö „Hnitbjörg". 1 97

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.