Sveitarstjórnarmál - 01.12.1995, Blaðsíða 7
AFMÆLI
arfélög. Eitt er víst að meirihlutavilji varfyrir
skiptingu hreppsins encla þótt íbúar á Raufar-
höfn vœru því mótfallnir.
Umræðan hafði staðið yfir um nokkurra
ára skeið, en þegar ákvörðun var loks tekin
gerðist það hratt. Svo hratt að það liðu ekki
nema tveir mánuðir frá því að sýslunefnd
mælti með því við félagsmálaráðherra að
hann skipti Presthólahreppi í tvö hreppsfélög
þar til ákvörðun lá fyrir um að svo skyldi
verða.
A fyrsta hreppsnefndarfundi hins nýfædda
hrepps er Hólmsteinn Helgason kosinn odd-
viti og varaoddviti Agúst Magnússon. Einnig
var tilnefnt í fjórar nefndir, framfærslunefnd,
byggingamefnd, hafnarnefnd og skattanefnd.
Það er ekki fyrr en á þriðja fundi, vorfundi,
er haldinn var í húsakynnunt barnaskólans
21. maí sama ár, að menn sjá hversu stórum
og kostnaðarsömum framkvæmdum íbúar
hins nýja hrepps stóðu frammi fyrir. Til fróð-
leiks er meginefni fundargerðar þessa hrepps-
fundar birt hér, en fyrst ber að greina frá
nöfnum þeirra manna er kjörnir höfðu verið
og sátu fyrsta fund hreppsnefndar. En þeir
voru Agúst Nikulásson, Kristján Önundar-
son, sr. Hólmgrímur Jósefsson, Agúst Magn-
ússon og Hólmsteinn Helgason oddviti, eins
og áður segir.
„Mánudaginn 21. maí 1945 var fyrsti
hreppsfundur í Raufarhafnarhreppi settur í
barnaskólahúsinu kl. 4 e.h. af oddvita
hreppsins, Hólmsteini Helgasyni.
Aður en fundur var settur minntist oddviti
þeirra íbúa hreppsins er látist höfðu síðan um
áramót, þ.e síðan Raufarhöfn varð sérstakur
hreppur.
Oddviti lét fundarmenn rísa úr sætum til að
votta hinum látnu virðingu sína. Þá setti odd-
viti fundinn og nefndi til fundarritara Guð-
mund Eiríksson.
Þá var gengið til dagskrár:
I. Skýrsla oddvita:
a) Lesin upp dagskrá þessa fundar sem var
í 12 liðum.
b) Lesin upp og skýrð fundargerð hrepps-
nefndarfunda frá 1944, þar sem ákvörðun var
tekin og tillögur gerðar um að skipta þáver-
andi Presthólahreppi í tvo hreppa, Presthóla-
hrepp og Raufarhafnarhrepp. Einnig las odd-
viti stjórnarráðsbréf er fyrirskipaði hreppa-
skiptin.
c) Þá gat oddviti um hreppsnefndarkosn-
ingar í Raufarhafnarhreppi.
íþróttahús, sundlaug og skóli.
íþróttahúsiö.
71 3=
Félagsheimiliö „Hnitbjörg".
1 97