Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Qupperneq 14
VEITUR
Nýtt vatnsból
Vatnsveitu Isafjarðar
Eyjólfur Bjarnason, fu. forstöðumaður tœknideildar Isafjarðar
í nútíma þjóðfélagi er
vatn ein af frumþörfum
samfélagsins. Því eru
vatnsveitur einn af mikil-
vægustu þátlum í rekstri
hvers bæjarfélags. Á ísa-
firði hefur aðveitukerfi
vatnsveitu verið byggt
upp á eftirfarandi hátt:
Fyrir ísafjörð hafa verið
tvö vatnsból, eitt í
Tungudal við jarðganga-
munnann og eitt á Dag-
verðardal. Aðveituæðar
frá þeim lágu í miðlunar-
tank í Stórurð, fyrir ofan
bæinn. í Hnífsdal er svo
þriðja vatnsbólið sem er
eingöngu fyrir þann bæj-
arhluta. Öll eru þessi
vatnsból yfirborðslón
með þeim rekstrarerfið-
leikum sem þeim fylgja.
Mikill tími og fjármagn
hefur farið í það á hverju
vori í leysingum að halda
vatnsbólum hreinum. I
engu af þessum vatnsból-
um var nægjanlegt magn
af vatni til að anna þörf
vatnsveitunnar, því þurfti
að hafa þau svo ntörg.
Vatnsþörf Isfirðinga er um
180-190 1/sek. Þetta er mikið magn
af vatni, en skýringin á allri þessari
vatnsþörf liggur í því að hér eru
mörg vatnsfrek fisk- og rækju-
vinnslufyrirtæki. Mælingar hafa
sýnt að hámarksnotkun í hverju
rækjuvinnsluhúsi getur verið allt að
24 1/sek. og um 12 1/sek. í frystihúsi,
Horft inn í fossvirki sem steypt hefur veriö utan um Fossinn í
Breiöadalsgöngum. Þaöan leiöir Vatnsveita Isafjaröar vatniö tæp-
lega þrjá kílómetra inni í göngunum aö gangaopinu.
en á ísafirði eru rekin þrjú stór
frystihús og þrjár stórar rækjuverk-
smiðjur.
Árið 1993 var byggð hreinsistöð í
Stórurð til að ná í burtu leir og öðr-
um óhreinindum og er kostnaður
við þær framkvæmdir orðinn ærinn.
Þrátt fyrir það að búið væri að
eyða miklu fjármagni í hreinsun
vatns var það samt kær-
komið þegar verktakar
við jarðgangagerð undir
Breiðadalsheiði komu á
vatnsæð sem gaf meira
en nægjanlegt vatn til að
anna allri vatnsþörf Is-
firðinga.
Fossinn, en svo er
staðurinn nefndur þar
sem vatnið kemur inn í
jarðgöngin, er í um 3,8
km fjarlægð frá ganga-
munna í Tungudal.
Vatnsmagn í honum er
um 600-1000 1/sek. en
nokkurrar árstíðarsveiflu
gætir en vatnsmagnið er
þó mun meira en vatns-
veitan notar. Rannsóknir
sýna að þetta er mjög
gott vatn og er hiti þess
urn 5 °C, jafn hiti allt
árið.
Nýtt vatnsból
Þegar einsýnt var orð-
ið að vatn í Fossinunt
væri stöðugt og myndi
nægja fyrir Isafjörð var
tekin sú ákvörðun að
leita eftir samþykki
Vegagerðar ríkisins um að fá að
nýta það. Var það auðfengið. Með
ákvörðun um að nýta jarðgangavatn
var jafnframt verið að taka ákvörð-
un um miklar framkvæmdir. Leggja
þarf nýjar aðveituæðar frá ganga-
munna. Aðra að Seljalandshverfi en
hina alla leið í Hnífsdal. Samtals eru
þetta um 13 km af 280 mm sverum
8