Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 27
UMHVERFISMÁL
voru settir hjá þeim litlir
gámar. Þessi seinni at-
riði eru í samræmi við
tillögur heilbrigðis-
nefndar Reykjavfkur um
markmið og stefnu í úr-
gangs- og mengunarmál-
um á höfuðborgarsvæð-
inu og samþykktar hafa
verið í borgarráði.
Forsendur
Ráðstefna Sameinuðu
þjóðanna í Ríó 1992
samþykkti víðtæka
framkvæmdaáætlun sem
hefur að geyma leiðir og
markmið sem þjóðum
heims er gerl að stefna
að til að stuðla að sjálf-
bærri þróun um allan
heim. Ríkisstjórn Islands
tók virkan þátt í starfi
ráðstefnunnar og vakti
að henni lokinni athygli
á málinu. Sjálfbær þróun
felur í sér að við lögum
athafnir okkar og lífsvið-
horf, nýtingu náttúru-
auðlinda og neyslu að
skilyrðum umhverfisins. Ein leiðin til að
nýta betur náttúruauðlindir er að draga úr
förgun á dagblaða- og tímaritapappír og auka þannig
endurvinnslu. Kostir endurvinnslu á pappír felast ekki
hvað síst í að verulega minni orka fer í það ferli og ekki
er þörf á klórþvotti sem er notaður við frumvinnslu hvíts
pappírs.
Inni á heimilunum skipa dagblöð og tímarit annan
sess í huga fólks heldur en þau efni önnur sem eru í
venjulegu eldhússorpi. Hér er um hreint sorp að ræða
sem óþarfi er að blanda við það sem kemur úr eldhúsinu.
Magn pappírs sem til fellur á ári er ekki nákvæmlega
þekkt. Ut frá innflutningstölum hefur verið áætlað að um
8.000 tonn af tímarita- og dagblaðapappír séu árlega
flutt til landsins. Ekki er ofáætlað að um 6.000 tonn fari
til dreifingar á höfuðborgarsvæðinu. Engin nákvæm at-
hugun hefur verið gerð á samsetningu húsasorps hér á
landi en lauslegar athuganir hér og reynsla erlendis, t.d. í
Noregi, benda til að magnið af endurvinnanlegum papp-
ír sé allt að 20% af þunga húsasorps. Húsasorp frá hverj-
um íbúa er áætlað um 200 kg á ári, þ.e. að pappír gæti
því verið um 40 kg, íbúar í Reykjavík eru um 104 þús-
und og áætlað magn þannig 4.160 tonn árlega. Önnur
könnun frá Noregi sýnir að ætla megi að um 100 kg af
pappa/pappír komi frá hverri fjölskyldu á ári.
1. Stórir gámar á fjöl-
förnum stöðum
Gámum hefur verið
komið fyrir á 20 fjöl-
förnum stöðum í borg-
inni. Staðirnir voru
valdir út frá því hversu
oft fólk gæti átt erindi
þangað og hversu gott
sé að stöðva bíl við
gáminn. Þá var talið
skipta máli hversu auð-
velt yrði að koma
gámabílum að. Versl-
anir og bensínstöðvar
eru þeir staðir sem helst
komu til álita. Verslanir
urðu fyrir valinu hjá
okkur en þær hafa þann
kost að fólk kemur
þangað oftar en þann
galla að heldur er
þrengra um þær og
velja þarf milli fleiri
rekstraraðila sem getur
valdið ágreiningi. Gott
samstarf hefur tekist
við alla aðila sem leitað
var til um staðarval
gáma. Þá var farið að
ábendingum skipulagsnefndar borgar-
innar og settir minni gámar, 1100 1 ker,
inn í eldri hverfin og við minni verslanir í Grafarvogi en
alls var bætt við 8 slíkum stöðum.
Þá höfðu borist ábendingar frá íbúum í þjónustuíbúð-
um aldraðra unr að þar hefðu íbúarnir þegar hafist handa
um flokkun dagblaða frá öðru sorpi. Rétt þótti að styðja
þetta framtak íbúanna með því að hafa þar sérstakt ílát
og skoða það sem hluta af þessari tilraun.
2. Grenndarstöðvar
Eitt sem vakti sérstaka athygli í Evrópuferð þeirri sem
getið var hér að ofan var hversu mörg sveitarfélög virð-
ast nýta ómannaðar grenndarstöðvar til söfnunar á end-
urvinnanlegu efni. A slíkum grenndarstöðvum eru gjam-
an gámar/ker fyrir pappír, pappa og dökkt og ljóst gler.
Viðmiðunartölur um staðarval og fjölda stöðvanna voru
ákveðnar þannig að ekki væru fleiri en 300 íbúðir á
hverja þeirra og helst ekki lengra en í 300 m gönguleið.
Tilraun með þessa aðferð, grenndarstöðvar, að safna
dagblaðapappír af tilteknum götuhornum er gerð í efra
og neðra Breiðholti. íbúar í þessum borgarhlutum eru
um 13.680. Sett hafa verið 23 1100 I ker á götuhom og
við gangstíga. Kostimir við þessa aðferð er að söfnunin
færist nær fólki og því ætti þátttaka almennings að
<z
£ "<J
f
I
<Z
Om |
f>að var fyrir u.þ.b. 2000 árum að
Kínverjar fundu aðferð til aö
frarrtleiða pappír úr bambusi.
í 50(jár varðveittu þeir þetta sem
leynSarmál, en þá komust
Japanir að því hvernig fara ætti að.
Frá Japan barst þekkingin til
Arabalandanna.
Árið ll00 lærðu ítalir og Spánverjar
fyrstir Evrópubúa að búa til pappír.
Það var meö uppfinningu Gutenbergs
á prentlistinni að pappírinn fór aö
hafa þá þýðingu sem hann hefur í
dag. Fram að þeinr tíma nýttist hann
aðeins þeim sárafáu í valda- og
menntastétt sem kunnu að lesa.
Orkunotkun við heimsframleiðslu á
pappír samsvarar orkunotkun 1430
álvera af sömu stærð og álverið í
Straumsvík.
R^PPÍR
endurteklð efni
2 l