Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Síða 31
UMHVERFISMÁL
SPILLIEFNI ER HVERSKYNS
ÚRGANGUR SEM INNIHELDUR
EFNI SEM VALDIÐ GETA SKAÐLEGUM
ÁHRIFUM Á HEILSUFAR
FÓLKS OG SKAÐAÐ NÁTTÚRUNA.
DÆMI UM SPILLIEFNI SEM FALLA TIL A HEIMILUM:
STERK HREINSIEFNI OG BLETTAEYÐAR
SÝRUR OG LÚTAR brennisteinsýra og vítissóti.
OLÍUEFNI Ítlí/oT'0"0
LÍFRÆN LEYSIEFNI
ASBEST t.d. bremsuborðar
MALNING, LAKK OG FUAVARNAREFNI
RAFGEYMAR
MEINDYRA-, SKORDYRA OG PLONTUEITUR
FREON isskópor og frystikist
RAFHLOÐUR
KVIKASILFURSHITAMÆLAR
LIM
OLLUM EFNUM SEM VAFI LEIKUR A
HVORT AÐ TEUIST TIL SPILLIEFNA EÐA EKKI
SKAL SKILA TIL MÓnÖKUSTÖÐVA.
SPILUEFNUM MÁ EKKI
BLANDA SAMAN
VIÐ ANNAN ÚRGANG!
MOTTAKA A SPILLIEFNUM ER VIÐ SORPBRENNSLUSTOÐ
SORPBRENNSLUSTOÐIN: OPIÐ ALLA DAGA FRA KL. 08:00 TIL 19:00.
AÐ AUKI: MÁNUD .. MIÐVIKUD. OG FÖSTUD. FRÁ KL. 20:00 TIL 22:00.
LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA FRÁ KL. 13:00 TIL 17:00.
Bakhliö upplýsingablaös umhverfismálará&s Húsavíkur um spilliefni.
úrgangur sendur til Kommunekemi A/S í
Danmörku til förgunar en síðustu ár hefur
fengist leyfi til förgunar á nokkrum efnum
hér á landi.
Spilliefnum er skipt í flokka, t.d. saman-
ber áðumefnda upptalningu í viðauka 4 með
mengunarvamareglugerð. Einnig er hægt að
benda á bækling frá Sorpu bs. Reykjavík um
leiðbeiningar um flokkun og frágang spilli-
efna. Hér verður ekki reynt að skipta spilli-
efnum í sömu flokka og þar eru upptaldir,
heldur talið til það helsta sem getur fallið til
á heimilum. Einnig er gerð grein fyrir því
hvernig förgun á þessum tegundum efna
sem berast til Sorpu bs. í Reykjavík er nú
háttað. Rétt er að taka fram að hér er ekki
um neina endanlega upptalningu á efnum að
ræða.
Olíuúrgangur, svo sem smurolía, notaðar
olíusíur, lampaolía og steinolía. Að flokkun
lokinni er Iljótandi olíu fargað í ofni Sem-
entsverksmiðjunnar hf. á Akranesi. Fastur
olíuúrgangur er sendur til brennslu.
Ymis efni fyrir bílinn, svo sem frostlögur,
ísvari, vélahreinsir, bflabón, bremsuborðar
o.s.frv. Förgun þessara efna er nokkuð mis-
munandi, sumt er heimilt að urða á sérstök-
um urðunarstað, annað er sent utan til förg-
unar.
Málning, svo sem vatnsmálning, olíu-
málning, lím, málningareyðir, viðarvamar-
efni, sparsl og kítti. Hluti af vatnsmálningu
er endurunninn, annars er vatnsmálning urð-
uð á sérstökum urðunarstað. Olíumálning,
lím o.fl. er sent til förgunar erlendis.
Eiturefni og áburður, svo sem illgres-
iseyðir og skordýraeitur, pottaplöntuáburður og
garðáburður. Sent til förgunar erlendis.
Sýrur og lútar, svo sem saltsýra, brennisteinssýra og
vítissódi. Sent til förgunar erlendis.
Hreinsiefni, svo sem hreinsiefni fyrir salerni, ofn-
hreinsiefni, blettaeyðir og gólfbón. Sent til förgunar er-
lendis.
Lífræn leysiefni, svo sem tréspíri, terpentína og þynn-
ir. Klórfríum efnum er fargað í ofni Sementsverksmiðj-
unnar hf. á Akranesi. Annað sent utan til förgunar.
Ýmislegt, rafhlöður og rafgeymar, lyf, úðabrúsar og
kvikasilfurshitamælar. Sent utan til förgunar.
Á ísskápum og frystikistum eru kæliefni sem verður
að losa af þeim með réttum hætti áður en þessum tækj-
um er fargað. Kæliefnum er fargað hjá Kommunekemi
A/S í Danmörku.
Skil á spilliefnum
Á höfuðborgarsvæðinu hafa spilliefnamóttökur verið
starfræktar síðan 1990. Reynslan af rekstri þeirra sýnir
að skil á spilliefnum frá heimilum eykst stöðugt. Á hinn
bóginn eru skil á spilliefnum frá fyrirtækjum ekki nógu
góð. Þannig virðist ekki nægjanlegt að koma á móttöku
spilliefna, annar hvati að skilum þessara efna verður að
vera. Þannig hvati væri til dæmis að sett yrðu gjöld,
nokkurs konar eyðingargjöld við innflutning eða fram-
leiðslu á þeim efnum sem verða að hættulegum efnaúr-
gangi.
Auka þarf þekkingu almennings á spilliefnum, þannig
að umgengni með þessi efni verði betri.
Umhverfismálaráð Húsavíkur hefur t.d. látið útbúa upp-
lýsingablað sem sent hefur verið til heimila á Húsavík.
Á þessu blaði er upptalning á nokkrum spilliefnum og
sagt frá því hvemig hægt er að losna við þau. Hér er um
gott framtak að ræða sem e.t.v. fleiri gætu tekið sér til
fyrirmyndar.
25