Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Síða 41
FORNLEIFAR
þær kunna að vera. Eins er vafasamt hvort hægt sé að
byggja umhverfismat á slíkum skrám. Vel má þó
ímynda sér slíkar skráningar þegar einhverjar sérþarfir
eru fyrir hendi. Sérskrár af því tagi sem nefndar voru hér
að framan geta aldrei gefið neina heildarmynd af forn-
leifum viðkomandi svæða, þær eru aðeins góður fulltrúi
þeirra fomleifa sem skrárnar fjalla um hverju sinni.
Vafasamt er t.d. að skráning á hvalveiðistöðvum
Norðmanna í ísafjarðardjúpi komi að notum sem grunn-
ur að umhverfismati í einstökum fjörðum í Djúpinu þar
sem leggja á veg. Akvarðanataka á slíkum grunni er
hæpin, ef ekki ábyrgðarlaus, enda held ég ekki að
nokkrum dytti slíkt í hug. Eg nefni þetta hér aðeins til að
árétta ákveðin grundvallaratriði.
Við fornleifaskráningu er fylgt aðferðafræði, sem
ákveðin er áður en sjálf skráningarvinnan hefst. Má segja
að lykilatriði í þeirri vinnu sem nú fer fram varðandi að-
ferðafræðina sé skipulag og einfaldleiki, hvernig svo
sem það verður ákveðið þegar yfir lýkur. Þessi atriði fela
í sér að aðferðin verður fljótvirk og ódýr. Ef fomleifa-
skráin á að gagnast öllum sem hana þurfa að nota, svo
sem opinberum framkvæmdaraðilum, einkaaðilum,
skipulagsyfirvöldum og áhuga- og fræðimönnum, er
mikilvægt að skráð sé samkvæmt sama kerfi hvar sem er
á landinu. Þess ber að geta að ekki er til nein galdralausn
í þessu sambandi, mikilvægast er að hefjast sem fyrst
handa með það kerfi sem við getum sem best búið til
miðað við allar forsendur sem við höfum.
1. mynd. Kuml? Um þessar fornleifar er skrifaö i Ijósmyndaskrá:
„Mannvirki líkt og dys hjá Kaldbak i Hrunamannahreppi í
Árnessýslu."Tel ég litinn vafa leika á þvi aö hér sé um kuml aö
ræöa, enda sver þaö sig töluvert í ætt viö þau kuml sem fundist
hafa á Suöurlandi. Viröist eitt einkenni vera á slíkum fornleifum
aö þær hvíla utan i sjálfum toppnum, eins og þær vanti aöeins
herslumuninn á aö ná alla leiö. Greinilega má sjá steinaröö sem
umlykur kumlið („kanlkedja“ á sænsku) og aöra í því sjálfu.
Ekki hafa slíkar lausnir á umgjörö eöa i uppbyggingu veriö
kannaöar sérstaklega á íslandi og er mikill akur óplægöur þar.
Myndin er tekin áriö 1959. (Skyggnusafn Pjms. nr. 368. Ljós-
myndari trúlega Kristján Eldjárn.)
2. mynd. Refagildra hjá Húsafelli í Borgarfiröi. Slíkar fornleifar
eru mikilvægur minnisvaröi um baráttu manna viö varg, eins og
einu sinni var taliö. Opiö sem rebbi fór inn um sést fremst á
gildrunni. Myndin er tekin áriö 1967. (Skyggnusafn Þjms. nr.
1489. Ljósm. Pór Magnússon.)
Fornleifar
Fornleifar eru allar þær leifar sem mannaverk eru á og
eldri eru en hundrað ára. Þjóðminjalögin orða það á
svohljóðandi hátt í grein nr. 16, III. kafla: „777 fornleifa
teljast hvers kyns leifar fornra mannvirkja og annarra
staðhundinna rninja sem menn hafa gert eða mannaverk
eru (Þjóðminjalög nr. 88/1989). Að auki njóta
staðir sem tengjast þjóðtrú, siðum, venjum og þjóð-
sagnahefð, eins og hörgar, álfasteinar og uppsprettur,
vemdar laganna, enda séu þeir mikilvægur menningar-
arfur rétt eins og mannvirkin.
Skipta má fornleifum í tvo staði, annars vegar efnis-
legar fornleifar og hins vegar andlegar eða huglægar
fomleifar. Hinar efnislegu fornleifar eru það sem við í
daglegu tali köllum rústir eða tóttir. Þær eru áþreifanleg-
ar og greinilega orðnar til af mannavöldum. Hinar and-
legu fomleifar eru aftur á móti staðir sem tengjast hugar-
fari þjóðarinnar, eins og álfasteinar o.fl. Slíkir staðir eru
oft algerlega án allra beinna verksummerkja mannlegra
athafna, þó að vitundin um þá hafí stundum leitt af sér
óbein verksunimerki, svo sem á álagablettum þar sem
gras er aldrei slegið eða þar sem annað afskiptaleysi hef-
ur beinlínis orðið til þess að staðurinn varðveittist
óbreyttur og óhreyfður í aldir.
Þegar fram líða stundir bætast sífellt fleiri rústir og
önnur mannvirki í hóp fornleifa einfaldlega vegna
hundrað ára reglunnar. Að auki mun okkur lærast meir
og meir að lesa í landið og jafnvel nýjar tegundir fom-
leifa skjóta upp kollinum. Þannig lýkur í raun aldrei
fornleifaskráningu, nokkuð sem við verðum að sætta
okkur við, verra er ef hún byrjar aldrei!
Upphafiö
Hugmyndir um að skrá allar íslenskar fornleifar eiga
35