Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Blaðsíða 61
STJÓRNSÝSLA
Víða erlendis hefur verið sýnt fram
á að skilvirkni og hagræðing eykst
með LUK-vinnslu. Það er því talað
um landfræðileg gögn sem auðlind
sem verði að hagnýta og gera að-
gengilega. Á sama hátt er rætt um
landfræðileg gögn sem vannýtta
auðlind þar sem samræmingu og
samnýtingu með gögnin er lítið
sinnt.
Oft er ekki hægt að tengja saman
upplýsingar frá ýmsum stofnunum
og fyrirtækjum um eitt tiltekið
svæði vegna þess að ekki eru til
samræmdar reglur um hvemig á að
skilgreina og lýsa hlutum. Þetta
þýðir að erfitt er að samnýta gögn á
milli stofnana og fyrirtækja. Dæmi
um þetta er að svæði geta verið
margkortlögð og verið að safna
sömu eða sams konar upplýsingum
um t.d. náttúrufar og mannvirki hjá
ýmsum stofnunum og fyrirtækjum.
Samræming
Samræming landfræðilegra gagna
felst í því að koma á vinnureglum
um samskipti og gagnaflutninga,
um staðla, um framsetningu gagna
og samræmda notkun greinitalna.
Skilgreina þarf eignar- og höfundar-
rétt og tryggja öryggi gagna en jafn-
framt að sjá til þess að gögn verði
aðgengileg og afnotaréttur tryggður.
Stórt skref í átt að betri samræm-
ingu á þessu sviði hér á landi var
tekið 1991-1993 með Tilraunaverk-
efni umhverfisráðuneytisins um
staðfræðikortagerð, gróðurkortagerð
og landfræðileg upplýsingakerfi. í
framhaldi af því verkefni voru
stofnuð samtökin LISA, samtök um
samræmd landfræðileg upplýsinga-
kerfi á Islandi.
LÍSA
LÍSA er samstarfsvettvangur
stofnaður með það markmið að
stuðla að samstarfi stofnana og fyr-
irtækja um staðbundnar upplýsingar
þar sem hver stofnun eða fyrirtæki
leggur til upplýsingar um gögn á
sínu sérsviði.
í samtökunum eru margar opin-
berar stofnanir, sveitarfélög og fyr-
Landfræðileg gögn og landfræðileg upplýsingakerfi.
Landupplýsingakerfi Reykjavíkurborgar, LUKR. Grunnkort af borgarhluta í Reykjavík.
Dæmi um tengingu við ytri gagnagrunna.
-i ■
ALDURSDREI FING ÍBÚA
HH IUH ,>BÍS>
IBÚAFJÖLDI: 32
pf —== IMMIIMMMII MjI
IA 1
55