Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Qupperneq 62
STJÓRNSÝSLA
Upplýsingakerfi Garöabæjar. Landfræöileg
irtæki sem nota landfræðilegar upp-
lýsingar og fjárfesta í tölvubúnaði til
vinnslu þeirra gagna. Að stuðla að
samræmingu, samstarfi og að betri
nýtingu landfræðilegra gagna er því
eðlilegur þáttur í þeirra starfi.
LISA vinnur markvisst að því:
Að það verði einfalt og ódýrt að
afla upplýsinga um hvaða gögn eru
til.
Að það verði auðvelt að fá upp-
lýsingar um þessi gögn.
Að ákveðnir gagnagrunnar verði
aðgengilegir fyrir alla.
Að það verði auðvelt að fá að-
gang að gögnum og nota.
Að landfræðileg gögn verði á
hagstæðu verði.
greining.
Landfrædileg upplýsinga-
kerfi sveitarfélaganna
Flest sveitarfélög og stofnanir
þeirra hafa gagnagrunna á þessu
sviði sem augljóslega er mikil hag-
ræðing í að samnýta með landfræði-
legu upplýsingakerfi. Ýmis sveitar-
félög hér á landi nýta sér þessa
tækni nú þegar og eru Reykjavíkur-
borg, Garðabær og Akureyri komin
hvað lengst í LUK-vinnslu. Önnur,
eins og Egilsstaðabær, Hornafjarð-
arbær, Húsavík, Hveragerði, Isa-
fjörður og Mosfellsbær, eru einnig
komin af stað með LUK-vinnslu hjá
sér.
Gögn sveitarfélaga sem fyrst eru
sett inn í landfræðilegt upplýsinga-
kerfi eru upplýsingar um lagnir
veitustofnana, lóðamörk. lóðastærð-
ir, mælipunkta, skipulagskort. land-
nýtingu, fasteignir, vegakerfi
o.s.frv. Síðan er hægt að gera áætl-
anir og framreikna upplýsingarnar á
ýmsa vegu. Möguleikarnir með
notkun gagna í landfræðilegu upp-
lýsingakerfi eru óþrjótandi. Ef t.d.
eru fyrirhugaðar framkvæmdir á til-
teknu svæði er á auðveldan hátt
hægt að sjá nákvæma staðsetningu
lagna, lóða og núverandi landnýt-
ingu. Einnig er t.d. hægt að sjá hver
er aldursdreifing og fjöldi íbúa í
ákveðnum hverfum og nota á ýmsa
vegu við áætlanagerð.
MINNING
Jónas Hafsteinsson, odd-
viti Vindhælishrepps
Jónas Haf-
steinsson, odd-
viti Vindhælis-
hrepps í Aust-
ur-Húnavatns-
sýslu, lést hinn
22. nóvember
sl., 62 ára að
aldri. Jónas var
fæddur að Húnsstöðum í Austur-
Húnavatnssýslu 16. ágúst 1933, en
fluttist ársgamall með foreldrum
sínum að Njálsstöðum í Vindhælis-
hreppi í sömu sýslu og átti þar
heima allan sinn aldur.
Jónas lét félagsmál snemma til sín
taka og var kosinn í hreppsnefnd
Vindhælishrepps árið 1962 og síðan
oddviti árið 1974. Gegndi hann því
embætti til dauðadags. Hafði hann
þá starfað að sveitarstjórnarmálum
og ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Vindhælishrepp samfellt í 33 ár.
Eftirlifandi kona hans er Anna
Sigurlaug Guðmannsdóttir og eiga
þau einn son, auk þess sem Jónas
átti þrjú börn fyrir.
56