Sveitarstjórnarmál - 01.03.1996, Page 67
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfundur Eyþings 1995
Þriðji aðalfundur Eyþings var
haldinn í Reykjahlíð í Mývatnssveit
tvo fallega haustdaga, 31. ágúst og 1.
september 1995. Aðalfundarfulltrúar
voru 43 að tölu en með gestum og
áheymarfulltrúum voru fundarmenn
þegar flest var 72.
Fyrri fundardaginn voru venju-
bundin aðalfundarstörf. Auk þess
skilaði áliti sínu starfshópur um laga-
breytingar sem Sigríður Stefánsdótt-
ir, bæjarfulltrúi á Akureyri, mælti
fyrir og starfshópur um umhverfis-
og ferðamál en Sigurjón Benedikts-
son, bæjarfulltrúi á Húsavfk, mælti
fyrir því. Loks flutti umdæmisstjóri
RARIK á Norðurlandi eystra afar
fróðlegt erindi um raforkukerfið og
gjaldskrár fyrir raforku. Deginum
lauk með hátíðarkvöldverði á Hótel
Reynihlíð.
Yfirfærsla alls grunnskóla-
kostnaöarins
Helsta málefni fundarins var fyrir-
huguð yfirfærsla alls grunnskóla-
kostnaðar til sveitarfélaga og var um
það fjallað seinni fundardaginn.
Fyrstir framsögumanna voru Einar
Njálsson, formaður Eyþings, og
Hjalti Jóhannesson framkvæmda-
stjóri sem skýrðu frá tillögum stjóm-
ar um fyrirkomulag á sérfræðiþjón-
ustu fyrir skóla í kjördæminu. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga og
fulltrúi í verkefnisstjórn um yfir-
færslu gmnnskólans, skýrði því næst
frá stöðu mála og stefnu sambands-
ins í þessu máli. Trausti Þorsteins-
son, fræðslustjóri á Norðurlandi
eystra, greindi frá verkefnum
fræðsluskrifstofa og hlutverki þeirra.
Svanhildur M. Olafsdóttir, formaður
skólamálaráðs Kennarasambands Is-
lands, flutti því næst erindi. Benedikt
Sigurðarson, fulltrúi Félags skóla-
stjóra á Norðurlandi eystra, hélt er-
indi þar sem hann drap á mörg atriði
er varða yfirfærslu skólanna og
hvaða áherslubreytingar hann telur
að muni verða í starfi þeirra. Loks
fjallaði Garðar Jónsson, viðskipta-
fræðingur hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, um Jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga og hugmyndir sem settar
hafa verið fram um hlutverk sam-
bandsins við yfirfærsluna.
Að loknum framsöguræðum urðu
miklar umræður um flutning grunn-
skólans til sveitarfélaganna og ekki
síst þann afmarkaða hluta þess stóra
máls sem er sérfræðiþjónusta við
skóla. Samkvæmt grunnskólalögum
leggur ríkið niður fræðsluskrifstofur
sínar þann 1. ágúst 1996. Landsþing
og fulltrúaráð Sambands íslenskra
sveitarfélaga hafði vísað því til
landshlutasamtakanna að gera tillög-
ur um framkvæmd þjónustunnar eftir
þann tíma. Sérfræðiþjónusta við
skóla er þess eðlis að flestir hafa ver-
ið sammála um að meiri eða rninni
samvinnu væri þörf ef meðalstór og
fámenn sveitarfélög eða skólar þeirra
ættu að hafa aðgang að viðunandi
þjónustu.
Miklar umræður urðu um hvemig
leysa ætti þetta mál og komu fram
ýmsar skoðanir en að lokum var
samþykkt samhljóða svofelld álykt-
un:
„Aðalfundur Eyþings mælir með
að sett verði á stofn ný þjónustumið-
stöð til að sinna þeim sérfræði- og
ráðgjafarverkefnum sem tilgreind
eru í 42. og 43. grein grunnskóla-
laga. Einnig yfirtaki þjónustumið-
stöðin þau verkefni sem núverandi
fræðsluskrifstofa hefur sinnt og ekki
er fjallað um í lögunum.
Miðstöðinni er ætlað að þjóna al-
menna grunnskólanum. Jafnframt
verði kannað að hvaða marki sé hag-
kvæmt að hún þjóni einnig öðrum
stofnunum. Einkum verði litið til
leikskóla, tónlistarskóla, félagsþjón-
ustu sveitarfélaga, þar með talin
barnaverndarmál og þjónusta við
fatlaða.
Miðstöðin hlíti einni yfirstjórn,
sem kosin er af aðalfundi Eyþings.
Gert er ráð fyrir að starfseminni geti
verið valinn staður í fleiri en einu
byggðarlagi í umdæminu. Aðalfund-
urinn samþykkir að fela starfshópi
sem skipaður var á aðalfundi 1994
ásamt fulltrúa tilnefndum af stjórn
Eyþings og fulltrúa tilnefndum af
Bandalagi kennara á Norðurlandi
eystra (BKNE) að halda áfram vinnu
við eftirtalin meginverkefni:
• að undirbúa yfirtöku á þeim verk-
efnum sem tilgreind eru í 1. máls-
grein.
• að vinna upp tilllögur að yfirtöku
sveitarfélaganna á sérkennsluþjón-
ustu, eins og Bröttuhlíðar- og
Hvammshlíðarskóla.
• að vinna upp tillögur að hugsan-
legri útvíkkun þjónustunnar, sbr.
upptalningu í 2. málsgrein.
Starfshópurinn hafi í vinnu sinni
samráð við starfsfólk fræðsluskrif-
stofu og aðra aðila sem tengjast um-
ræddum málaflokkum.
Starfshópurinn skili tillögum til
stjómar Eyþings fyrir næstu áramót.
Stefnt verði síðan að sem víðtækastri
kynningu á tillögunum fyrir sveitar-
stjórnarmenn og aðra sem málinu
tengjast."
Eignarhald á grunnskóla-
mannvirkjum
I framhaldi af umræðum um
grunnskólamál lögðu Sigurður Rún-
ar Ragnarsson, sveitarstjóri í Mý-
vatnssveit, og fleiri fram tillögu að
ályktun um eignarhald á grunnskóla-
mannvirkjum. Tillagan, sem sam-