Hermes - 01.12.1988, Page 3
Guðmundur R. Jóhannsson,
ritstjóri afmælisritsins.
HERMES
16. árg., afmælisrit 1988.
Samvinnuskólinn 70 ára
1918-1988
Nemendasamband Samvinnuskólans 30 ára
1958-1988.
Útg.: Nemendasamband Samvinnuskólans.
Ritstj. og ábm.: Cuðmundur R. Jóhannsson.
Höfundar efnis:
Andrés Kristjánsson,
Dagbjört Torfadóttir, Elías Snæland Jónsson,
Cuðrún Sigurjónsdóttir, Jón Sigurðsson, Kári
Jónason, Sigurður Hreiðar Hreiðarsson,
Snorri Þorsteinsson, Svavar Lárusson.
Val á skáldskap:
Óli H. Þórðarson í samráði við
Helgi Sæmundsson.
Ljósmyndir og val málverka:
Kristján Pétur Cuðnason.
Umsjón með auglýsingum:
Reynir Ingibjartsson.
Forsíða: Cunnar Steinþórsson.
Prófarkalestur: Rannveig Haraldsdóttir.
Útlitsteiknun: Nýtt útlit, Selfossi.
Litgreining: Korpus hf.
Setning, umbrot, filmuvinna, prentun og
bókband: Prentsmiðjan Edda hf.
Afgreiðsla og dreifing:
Nemendasamband Samvinnuskólans,
Hamragörðum, Hávallagötu 24,101
Reykjavík.
Símar: 91 -2 12 13 og 91 -2 19 44.
Guðm. R. Jóhannsson
Aðfararorð
á þessu hausti er Samvinnuskólinn 70 ára og Nemenda-
/1 samband Samvinnuskólans 30 ára. Báðir þessir aðilar
.. ...lifa góðu lífi. Samvinnuskólinn hefur jafnan lagað sig
að breyttum aðstœðum samfélagsins og Nemendasambandið
hefur á þróttmikinn hátt verið tákn þess sem skólinn hefur lagt
áherslu á; samheldni fólks og félagslegan þroska.
íþessu riti, sem ber heitið Hermes og var nafn á tímariti sem
Nemendasambandið gafút lengi, er reynt að varpa Ijósi á nokk-
urn hluta starfs Samvinnuskólans og nemenda hans. Það er þó
auðvitað mjögyfirborðskenntþvíum hvert það atriðisem hérer
farið höndum um, mætti gera bók og hana vœna íflestum tilvik-
um. Samt vonum við að þetta rit endurveki minningar nemenda
um skólaársín ogþeirsem ekkiþekkja Samvinnuskólann afeig-
in raun, verði einhvers fróðari um starfhans og tilgang.
Þá er hér einnig laust mál og bundið eftir nokkra nemendur
skólans um árin. Eru hér bæði landskunnir höfundar og eins
aðrir sem eru þekktari á öðrum sviðum en bókmenntalegu.
Einnig eru litmyndir afmálverkum fimm kunnustu málara sem
í skólanum hafa verið. Hér er aðeins um örlitla kynningu að
ræða á nokkrum mönnum, en staðreyndin ersú, að íSamvinnu-
skólanum hafa alltfrá byrjun til þessa dags setið ritfærir menn í
besta lagi, margir mjög drátthagir og tónlistarmenn góðir.
Eins og gefur að skilja er alltaf vandi er velja skal og hafna.
Hér er þó þeirri meginlínu fylgt við val efnis og mynda að láta
efnisgæði ráða. Af því skapast eftil vill nokkurt misvægi milli
tímabila, og eru lesendur beðnir að virða það til vorkunnar.
Samvinnuskólinn stendur nú áþessu afmœli einu sinni enn á
tímamótum. Breyttar aðstæður í menntun þjóðarinnar leiddu í
haust til róttœkra breytinga á starfi skólans og gerðu hann að
háskóla, en segja má að á sínum bestu tímabilum hafi Sam-
vinnuskólinn verið háskóliþótthann bæri ekkiþað nafn. Öllum
nemendum skólans og velunnurum er ánægjuefni að fylgjast
með þessum breytingum og finna að skólinn þeirra lœtur ekki
deigan síga.
Nemendasamband Samvinnuskólans stendur að þessari út-
gáfu. Til liðs við okkur höfum viðfengið, eins ogglöggt má sjá,
nokkra sæmdarmenn bœði úr hópi nemenda og utan hans. En
alltafmá betur gera og alla þá vankanta sem finna má á útgáf-
unni verður ritstjórinn að taka á sig. En allt um það viljum við
að litið sé á ritþetta sem óð nemenda Samvinnuskólans til skól-
ans síns og með því fylgja hugheilar afmælisóskir og von um
glæsta framtíð í anda frumherjanna.