Hermes - 01.12.1988, Page 12

Hermes - 01.12.1988, Page 12
10 Bæjarnafnib Hrifla er óafmáanlega skráö í Islandssöguna. Nú er þar stórl bú og vel hýst. En í þessum litla bæ fæddist 1. maí 1885 drengur sem var skírbur Jónas og var síöan viö hann kenndur. Teikning Daniels Bruun 1896. Sumarið 1908, að lokinni vetrarvist í Kaupmannahöfn, starfaði Jónas við þýð- ingar í Berlín hjá þýskum jarðfræðingi sem var að semja fræðirit um ísland. Honum gafst jafnframt góður tími til að skoða söfn og sögufrægar byggingar í borginni og kynna sér skólahald þar. Um haustið hélt hann ferðum sínum áfram um Þýskaland, heimsótti sögustaði og listasöfn í Wittenberg, Leipzig, Dresden, Weimar og Frankfurt. og las sagnfræðibækur og skáldverk meðal Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ). Útskr. 1940. Sjómaöur og skrifstofumaöur í Vest- mannaeyjum. Eftir hann liggur mikiö efni og nokkrar bækur bæöi í bundnu máli og lausu. Var einnig kunnur vísnasöngvari. Vorvísa er úr bókinni Eyja vísur sem út kom 1970. Ási í Bæ Vorvísa Ég heyrði vorið vœngjwn blaka, og vonir mínar itndir taka, því ég er barn með sumarsinni og sólarþrá í vitund minni. Er blikar sœr und bláu Itveli og blœrinn vaggar smáu stéli og ástin skín úr augum þínum, ég uni glaður kjörum mínum. Pegar sígur sólin rauð, sundin gulli þekur, í Itjarta mínu á ég auð sem enginn frá mér tekur. Ég heyrði vorið vængjum blaka, og vonir mtnar ttndir taka, því ég er barn með sumarsinni og sólarþrá í vitund minni. annars eftir þýsku meistarana Goethe og Schiller. Ferðinni var heitið til Oxford á Englandi til náms við John Ruskin College. Englandsdvölin var hápunktur nær þriggja ára þroskafarar Jónasar um Ev- rópu og hafði mikil áhrif á viðhorf hans. Ruskinskólinn var stundum kallaður háskóli öreiganna. Þetta var verka- mannaskóli, þar sem ungum almúga- mönnum, verðandi forystumönnum í ensku verkalýðshreyfingunni og flokki hennar, var komið til nokkurs þroska. Megináhersla var lögð á fræðslu um þjóðfélagið og hagkerfið frá sjónarhóli jafnaðarstefnunnar, sem þá var að eflast til áhrifa á Englandi. Nám Jónasar í skólanum varð þó styttra en á horfðist í fyrstu, en sem fyrr lagði hann mesta áherslu á sjálfsnám utan kennslustunda. I Englandi kynntist Jónas breskri þingræðishefð og margháttuðu umbóta- starfi frjálslyndra afla. Sú viðkynning sannfærði hann um, að til Englands ættu Islendingar að sækja fyrirmyndir. I jólaleyfinu heimsótti hann London og París og kynnti sér þar söfn, sögufræg- ar byggingar og merkar nvjungar. Er líða tók að vori 1909 hugaði hann sérstaklega að skólahaldi í Englandi, því þá höfðu forráðamenn hins nýja íslenska kennara- skóla ráðið hann til starfa frá og með haustinu. Ungmennaleiðtoginn Fyrstu árin eftir heimkomuna frá Eng- landi sinnti Jónas kennslu, ritstörfum og frekara sjálfsnámi samhliða því að hann stofnaði heimili í Reykjavík. Aðalstarf Jónasar var æfingakennsla við Kennaraskólann. Hann fór þar nýjar brautir sem mæltust vel fyrir meðal nem- endanna. Upp úr frásögn Jónasar í kennslustundum spruttu kennslubækur um Islandssögu og náttúrufræði. íslands- saga hans, sem kom út í tveimur hlutum árin 1915 og 1916, varð ein allra vin- sælasta og lífseigasta kennslubók sem samin hefur verið á íslensku. Eftir fyrsta veturinn í Reykjavík hélt Jónas norður í land til sumardvalar hjá Kristjáni bróður sínum. sem þá var flutt- ur frá Hriflu að næsta bæ. Fremstafelli. Þegar Jónas hélt suður aftur um haustið var væntanleg eiginkona hans, Guðrún Stefánsdóttir frá Granastöðum í Köldu- kinn, með í för. Sumarið 1911 héldu Jónas og Guðrún til útlanda til frekara náms: hún til dvalar á Englandi en hann til Parísar að læra frönsku. I París eignaðist Jónas vinafólk sem Guðrún dvaldi hjá næsta vetur. Með vorinu 1912 kom Guðrún heim. Þá gaf séra Friðrik Friðriksson þau Jónas saman. Þau hófu búskap í íbúð við Skólavörðustíg 35 sem Jónas leigði af foreldrum Guðjóns Samúelssonar. húsa- meistara. Þar eignuðust Guðrún og Jón- as dætur sínar tvær, Auði árið 1913 og Gerði 1916. Þegar Jónas kom heim frá París haust- ið 1911 var hann beðinn um að taka að sér ritstjórn Skinfaxa, málgagns ung- mennafélaganna. Sú hreyfing hafði bor- ist til íslands frá Noregi. Fvrsta félagið var stofnað árið 1906. Fleiri fylgdu í kjöl-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Hermes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.