Hermes - 01.12.1988, Síða 75
73
Ágrip um skólastjóra
og yfirkennara
Samvinnuskólans
✓
Aður en Samvinnuskólinn var stofnaður stóðu þrír menn einkum fyrir námskeið-
um og fyrirlestrahaldi um samvinnu- og verslunarmál á vegum samvinnufélaganna:
Sigurður Jónsson í Ystafelli í Köldukinn, Hallgrímur Kristinsson frá Reykhúsum í
Eyjafirði og Jónas Jónsson frá Hriflu.
Jónas Jónsson frá Hriflu var skóla-
stjóri Samvinnuskólans í Reykja-
vík 1918-27 og aftur 1932-1955.
Hann er talinn „faðir" Samvinnu-
skólans.
Jónas fæddist 1. maí 1885 í
Hriflu í Bárðardal. Hann stundaði
nám í Askov, Kaupmannahöfn,
Berlín, Oxford, London og París,
þ.á.m. við Kennaraháskólann í
Kaupmannahöfn. Hannvarkenn-
ari við Kennaraháskóla íslands frá
1909 uns hann tók við stjórn Sam-
vinnuskólans við stofnun hans.
Jónas var alþingismaður 1922-1949. Hann var dóms- og
menntamálaráðherra 1927-1932. Hann var umsvifamikill
stjórnmálaleiðtogi og rithöfundur, þ.á.m. ritstjóri Skinfaxa
1911-1917 og Samvinnunnar um langt árabil. Auk þess skrifaði
hann fjölda blaðagreina og bóka um þjóðmál, menningarmál,
sagnfræði og bókmenntir.
Jónas var kvæntur Guðrúnu Stefánsdóttur og áttu þau tvær
dætur. Hann lést 1968.
Guðlaugur Rósinkranz var yfir-
kennari Samvinnuskólans 1932-
1949 og gegndi starfi skólastjóra
Samvinnuskólans um nokkurt
skeið í forföllum Jónasar Jónsson-
ar árið 1932.
Guðlaugur fæddist 11. febrúar
1903 í Tröð í Önundarfirði. Hann
lauk kennaraprófi og stundaði
þjóðfélagsfræði- og hagfræðinám í
Svíþjóð og Bretlandi.
Guðlaugur varð kennari við
Samvinnuskólann 1930. Hann
varð Þjóðleikhússstjóri frá stofnun þess 1949. Hann tók mikinn
þátt í félagsmálum, einkum í Norræna félaginu.
Guðlaugur var fyrst kvæntur Láru Stefánsdóttur en síðar
Sigurlaugu Rósinkranz og átti fjögur börn.
Þorkell Jóhannesson var skóla-
stjóri Samvinnuskólans í Reykja-
vík 1927-1931.
Þorkell fæddist 6. desember
1895 á Syðra-Fjalli í Aðaldal.
Hann lauk meistaraprófi við Há-
skóla íslands 1927 og hlaut dokt-
orstitil við Kaupmannahafnarhá-
skóla 1933.
Þorkell var Landsbókavörður
um skeið og varð prófessor í sagn-
fræði við Háskóla íslands 1944 og
var háskólarektor um skeið. Hann
var virtur og afkastamikill fræðimaður og liggur fjöldi rita og
ritgerða um sagnfræði eftir hann.
Þorkell var kvæntur Hrefnu Bergsdóttur og áttu þau eina
dónur.
Guðmundur Sveinsson var skóla-
stjóri Samvinnuskólans að Bifröst
1955-1974. Hann er kallaður
„faðir" Bifrastarskólans.
Guðmundur fæddist í Reykja-
vík 28. apríl 1921. Hann lauk guð-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
1945 og stundaði framhaldsnám í
Kaupmannahöfn, Lundi og Man-
chester.
Guðmundur var prestur í Hest-
þingum í Borgarfirði 1945-1955 og
um skeið kennari við Guðfræði-
deild Háskóla Islands en tók að sér að undirbúa flutning Sam-
vinnuskólans til Bifrastar og endurmótun hans 1955. Guð-
mundur hefur verið skólastjóri Fjölbrautaskólans í Breiðholti í
Reykjavík frá upphafi þess skóla 1974.
Guðmundur er kvæntur Guðlaugu Einarsdóttur sem um
árabil var skólahúsmóðir að Bifröst og eiga þau þrjár dætur.