Hermes - 01.12.1988, Síða 109
107
Dagbjört Torfadóttir
Nemendasamband
Samvinnuskólans
Þaö eru liðin 30 ár. Svo hratt flýgur stund. Það er sem gerst hafí í gær
að nemendasamband Samvinnuskólans var stofnað á fjölmennum
fundi í samkomusal Sambandsshússins við Sölvhólsgötu. Þetta var 14.
september 1958. Hvað var hér á ferðinni, hver var tilgangurinn?
Tvisvar áður hafði slík stofnun átt sér stað, en félagsskapnum ekki
orðið Iangra lífdaga auðið. Tilgangurinn nú var augljós og kemur vel
fram í fyrstu lögum sambandsins sem samþykkt voru á stofnfundin-
um. Þar segir í 4. grein.
„Tilgangur sambandsins er að vinna að vexti og viðgangi Sam-
vinnuskólans og efla kynni meðal yngri og eldri nemenda. “
s
fyrstu stjórn NSS voru Sigurvin Ein-
arsson, Kristinn Guðnason, Jón Þór
Jóhannsson, Magnea Sigurðardóttir
og Anna Björnsdóttir. Formaður var
Sigurvin Einarsson.
Það var hugmyndin á þessum tíma að
nemendur Reykjavíkurskólans yrðu
þátttakendur í sambandinu og er meiri-
hluti fyrstu stjórnarinnar úr þeirra hópi.
Þetta hefur ekki orðið raunin nema í litl-
um mæli fyrstu árin, hinsvegar ná Ár-
bækurnar yfir alla nemendur frá upp-
hafi.
5. gr. laga NSS skilgreindi hvernig ná
skyldi þeim markmiðum sem það setti
sér.
Stjóm Nemendasambandsins á 30 ára afmæli. Fremri röð f.v.: Hugrún Einarsdóttir, Dagbjört
Torfadóttir, formaður, Þorkell Hjörleifsson. Aftari röð f.v.: Steingerður Einarsdóttir, Reynir
Ingibjartsson, Eyþór Elfasson og Óli H. Þórðarson.
Fyrsta stjórn Nemendasambandsins. F.v.:
Kristinn Cuðnason, Magnea Sigurðardóttir,
Sigurvin Einarsson, formaður, Anna Björns-
dóttir og Jón Þór jóhannsson.
Dagbjört Torfadóttir, útskr. 1958. Hún
hefur unnið ýmis skrifstofustörf og vinnur
nú á endurskoðunarskrifstofu. Útskrifaðist
frá Öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlið 1987.
„ Tilgcmgi sínum hyggst sambandið
ná með því að halda árlega nem-
endamót að Bifröst fyrstu helgi
júnímánaðar og skemmtikvöld
þegar henta þykir. “
Starf hinna fyrstu ára
Áðurnefndum markmiðum hefur verið
reynt að ná með ýmsu móti og hefur NSS
orðið að laga sig að breyttum aðstæðum
á ýmsan hátt, margföldun félagsmanna,
sem nú eru eitthvað á annað þúsund, og
stórfelldar breytingar í þjóðfélaginu eru
mikilvægir þættir. Ekki hefur starfsemi
þess heldur verið óumdeild gegnum árin.
Fyrsta nemendamótið var haldið helg-
ina 6. og 7. júní 1959 og aðalfundur
samhliða því og var svo fram til ársins
1967, að þessi starfsemi fluttist til
Reykjavíkur.
Eitt af fyrstu málunum sem NSS beitti
sér fyrir var að láta útbúa hring Sam-
vinnuskólans sem orðið gæti einingar-
tákn félagsmanna. Þetta mál átti sér
langan aðdraganda en í stjórnartíð Ola
H. Þórðarsonar, starfsárið 1964-65,